Þjóðhátíð í Eyjum

„Legg til að fólk dusti rykið af Nylon textunum fyrir brekkuna“
Söngkonan Klara Elias frumsýnir síðasta myndbandið í röð órafmagnaðra Þjóðhátíðarlaga hér á Lífinu á Vísi á morgun klukkan 12:30.

„Hún kann að halda mér niðri á jörðinni ef hausinn fer á eitthvað flug“
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins, sér um brekkusönginn í ár. Hann stóð vaktina í síðasta brekkusöng þar sem engir áhorfendur voru í dalnum en söng sig inn í hjörtu margra landsmanna á skjánum heima. Blaðamaður tók púlsinn á Magnúsi Kjartani, sem fór á sína fyrstu Þjóðhátíð fyrir rúmum tveimur áratugum.

„Svo ræski ég mig, set upp sólgleraugun og negli á svið“
Hljómsveitin Hipsumphaps gerði garðinn frægan með fyrsta laginu sínu Lífið sem mig langar í sem kom út árið 2019. Sveitin hefur síðan þá verið vinsæl víða um landið og spilað á ýmsum hátíðum. Blaðamaður tók púlsinn á Fannari Inga, söngvara sveitarinnar.

„Við bjuggum eitthvað til og nú kunna aðrir það“
Hljómsveitin FLOTT er skipuð fimm tónlistarkonum úr ólíkum áttum tónlistarheimsins, þeim Ragnhildi, Sylvíu, Sólrúnu Mjöll, Eyrúnu og Vigdísi. FLOTT hefur vakið athygli undanfarin misseri, voru sem dæmi með lag í Áramótaskaupinu og skrifuðu í vetur undir samning við Sony. Stelpurnar koma fram á Þjóðhátíð í ár en þetta er í fyrsta skipti sem þær sækja hátíðina.

Allir að verða tilbúnir fyrir sögulega Þjóðhátíð: „Þetta er svo töfrandi staður“
Mikil eftirvænting er í Eyjamönnum fyrir Þjóðhátíð þetta árið eftir vonbrigði síðustu tvö ár. Í annað sinn í sögunni er Þjóðhátíðarlagið samið og flutt af konu og í fyrsta sinn verða aðeins konur á sviðinu þar sem Kvennakór Vestmannaeyja verður með Klöru Elias að flytja lagið Eyjanótt. Fyrsta æfingin fór fram á dögunum og er óhætt að segja að einhverjir verði með gæsahúð eftir tvær vikur.

Halda orkustiginu í hæstu hæðum
Hljómsveitin Stuðlabandið er þaulvön að koma fram og halda uppi stemningu en Stuðlabandið hefur spilað á stærstu útihátíðum Íslands undanfarin ár.

Þjóðhátíð 2022: Frumsýning á órafmagnaðri útgáfu af Ástin á sér stað
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýrri útgáfu Þjóðhátíðarlagsins Ástin á sér stað. Klara Elias og Sverrir Bergmann sameinuðu krafta sína á dögunum og senda hér frá sér órafmagnaða útgáfu af þessu lagi.

Tekur lögin sem skapa mestu stemninguna
Tónlistarkonan Guðrún Árný hefur vakið athygli í íslenska tónlistarheiminum fyrir kraftmikla rödd sína. Hún er þaulvön að koma fram og syngja fyrir stóran hóp áhorfenda og hlakkar mikið til að syngja fyrir og með öllum Þjóðhátíðargestum í ár.

Frumflytja nýja útgáfu af Ástin á sér stað hjá Lífinu á Vísi
Tónlistarfólkið Klara og Sverrir Bergmann frumsýna nýja og órafmagnaða útgáfu af laginu Ástin á sér stað hér á Lífinu á Vísi klukkan 12:30 á morgun.

Spila í brúðkaupum þar sem brúðhjónin hafa kynnst á Tjarnarsviðinu undir tónum hljómsveitarinnar
Hljómsveitin Brimnes er þaulvön að koma fram og skemmta fólki en hún spilaði á sinni fyrstu Þjóðhátíð fyrir 19 árum síðan. Allir meðlimir sveitarinnar eru fæddir og uppaldir í Eyjum og segja ekkert í heiminum jafnast á við Þjóðhátíð. Þá er í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá þeim að sjá fólk verða ástfangið þegar það dansar saman við þeirra tóna.

„Gleymdum vissulega öllu þegar við mættum á svið“
Hljómsveitin Sprite Zero Klan skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 með laginu Tíkin Mín. Þeir eiga að baki sér ófá öflug danslög og þar á meðal nokkur lög sem eru tileinkuð Þjóðhátíð en Sprite Zero Klan verður einmitt í dalnum í ár.

Verður eiginlega alltaf stressaður áður en hann stígur á svið
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti er í hópi þess listafólks sem kemur fram á Þjóðhátíð í ár. Hann fór fyrst á hátíðina fyrir átta árum síðan og segist ætla að leggja allt í atriðið sitt í ár.

Frumsýning á nýrri útgáfu af Lífið er yndislegt
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á glænýrri útgáfu af Lífið er yndislegt þar sem tónlistarfólkið Klara Elias og Hreimur syngja órafmagnaða útgáfu af þessu sögulega Þjóðhátíðarlagi.

Frumsýna nýja útgáfu á sögulegu Þjóðhátíðarlagi á Vísi á morgun
Klara Elias og Hreimur frumsýna nýja og órafmagnaða útgáfu af Lífið er yndislegt hér á Lífinu á Vísi á morgun klukkan 11:30. Hreimur gerði lagið sögulegt á sínum tíma en Lífið er yndislegt er eitt þekktasta Þjóðhátíðarlag allra tíma.

Enn bætist í dagskrána á Þjóðhátíð
Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún, Ragga Gísla, Hreimur, Aldamótatónleikarnir og Herbert Guðmundsson bætast á sívaxandi lista þeirra sem munu koma fram á Þjóðhátíð í ár. Þetta verður frumraun Herberts í dalnum.

Brekkusöngurinn: „Það er sannur heiður að fá þetta verkefni“
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun leiða brekkusönginn á Þjóðhátíð í ár. Hann er góðkunnur hátíðinni en hefur komið þar fram síðan 2016 og stýrði brekkusöngnum í fyrra fyrir tóma brekkuna.

Birgitta Haukdal, Herra Hnetusmjör og Guðrún Árný mæta í dalinn
Dagskráin fyrir Þjóðhátíð stækkar enn og er ljóst að brekkan mun loga af stemningu en Herra Hnetusmjör, Birgitta Haukdal og Guðrún Árný hafa bæst við landslið listafólks sem mun koma fram á stóra sviðinu í Herjólfsdal á þjóðhátíð.

Klara frumsýnir myndbandið við Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt
Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins í ár, Eyjanótt. Saga Sig er leikstjóri myndbandsins, Stella Rósenkranz framleiðandi og Klara Elias listrænn stjórnandi. Lagið er flutt af Klöru og samið af henni og Ölmu Goodman.

Frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins 2022 á Vísi á morgun
Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband Þjóðhátíðarlagsins Eyjanótt eftir Klöru Elias á morgun klukkan 12:00, föstudag 10. júní.

Klara Elias frumflutti Þjóðhátíðarlagið 2022
Söngkonan Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem heitir Eyjanótt, kom út fyrr í dag á allar helstu streymisveitur og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun.

Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár
Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja 2022 er Klara Elias söngkona og lagahöfundur. Aðeins einu sinni áður hefur hið opinbera þjóðhátíðarlag verið samið og flutt af konu og var það lagið og var það lagið Sjáumst þar eftir Röggu Gísla árið 2017.

Fleiri listamenn bætast við dagskrá Þjóðhátíðar
Dagskráin fyrir Þjóðhátíð í Eyjum í ár er að verða klár. Þjóðhátíðarnefnd kynnti í dag að Aron Can mun koma fram á stóra sviðinu í Herjólfsdal.

Bríet og Bubbi mæta á langþráða Þjóðhátíð
Það er loksins komið að því að Þjóðhátíð í Eyjum fari fram eftir að hafa legið niðri síðustu tvö ár vegna heimsfaraldursins. Landslið listamanna er nú þegar á dagskránni og á enn eftir að bætast við í flóruna eftir því sem nær dregur.

Undirbúningur hafinn fyrir Þjóðhátíð en ekkert meitlað í stein í ljósi reynslunnar
Undirbúningur er hafinn fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar en hátíðinni var aflýst árið 2020 og 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Fiskideginum mikla á Dalvík hefur aftur á móti verið aflýst. Framkvæmdastjóri ÍBV reiknar með að Þjóðhátíð fari fram með eðlilegu sniði og vonar að Dalvíkingar reynist ekki sannspáir um stöðu mála.

Ingó segist ekki hafa neinu að tapa lengur
Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála.

Til stendur að veita Þjóðhátíð í Eyjum ríkisstyrk vegna messufalls
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að til standi að veita Þjóðhátíðar í Eyjum ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV en hátíðinni hefur verið frestað nú í tvö ár.

Þjóðhátíð aflýst annað árið í röð
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum mun ekki fara fram með neinum hætti í ár.

Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“
Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári.

Óánægja með brekkusönginn á samfélagsmiðlum
Margir sem keyptu sér aðgang að streymi brekkusöngsins á Þjóðhátíð hafa lýst yfir óánægju með kaupin.

Vonar að kindurnar í dalnum jarmi undir með sér
Brekkusöngur á Þjóðhátíð fer fram í fyrsta sinn fyrir tómri brekkunni í kvöld. Hátt í sextíu manns hafa unnið að uppsetningu enda var ákveðið að bjóða upp á dagskrá í fullri stærð og svo getur fólk keypt sér aðgang að streymi.