Fíkn
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 25 ›
Svona útrýmum við skipulögðum brotahópum Nýlega lagði lögreglan hald á 100 kg af kókaíni sem voru falin í vörusendingu. Þetta er langmesta magn ólöglegra vímuefna sem hefur verið haldlagt í einu hérlendis. Þó telur lögreglan að haldlagningin hafi ekki teljandi áhrif á framboð á markaði. Skoðun 30.8.2022 11:00
„Við erum á algerlega rangri braut“: Strákarnir okkar brjótast inn og stelpurnar selja sig Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari segir að íslensk stjórnvöld eigi að gefa það frjálst hvaða vímuefna menn neyta; lögleiða vímuefni, með öðrum orðum. Bannstefnan hafi valdið meiri skaða en hún hefur skilað árangri. Innlent 25.8.2022 09:13
40 prósent meintra kókaínefna innihéldu alls ekkert kókaín Ríkisrekin rannsóknarmiðstöð þar sem neytendur eiturlyfja geta komið og látið prófa efnin sem þeir kaupa hefur nú verið starfrækt í Canberra í Ástralíu í einn mánuð en niðurstöður prófananna eru sláandi. Erlent 25.8.2022 08:09
Stríðið er tapað Stríðið gegn vímuefnum er tapað. Það virðist ekki skipta máli hversu miklum peningum og starfskröftum við verjum í það, einhvern veginn standa vímuefnin alltaf upp sem sigurvegarinn. Ekki einu sinni langstærsta haldlagning á kókaíni í sögunni er talin hafa nein teljandi áhrif á vímuefnamarkaðinn. Sölumenn hafa alla vega ekki miklar áhyggjur: „Það er alltaf nóg til af dópi.“ Skoðun 19.8.2022 12:00
Lyfjaverslanirnar dæmdar fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum Alríkisdómstóll hefur úrskurðað að þrjár stærstu lyfjaverslanakeðjur Bandaríkjanna þurfi að greiða 650 milljónir dala í sekt fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum í tveimur sýslum í Ohio. Umræddar keðjur eru Wallgreens Boots, CVS og lyfjaverslanir Walmart. Erlent 18.8.2022 07:51
Bréf frá Láru: Að losna úr viðjum matarfíknar Lára Kristín Pedersen er þrefaldur Íslandsmeistari í fótbolta, tvöfaldur bikarmeistari, hefur leikið tæplega tvö hundruð leiki í efstu deild, fyrir íslenska landsliðið og sem atvinnumaður erlendis. Allt meðfram því að glíma við matarfíkn. Í bókinni Veran í moldinni: Hugarheimur matarfíkils í leit að bata segir þessi 28 ára Mosfellingur frá baráttu sinni við þennan sjúkdóm sem er svo mörgum hulinn; leitinni að lausn, risum og föllum, skömminni sem er fylgifiskur fíknarinnar og leiðinni til bata. Íslenski boltinn 13.8.2022 10:00
OxyContin-faraldur og innlögnum á Vog fjölgar Stöðug fjölgun hefur verið á innlögnum inn á Vog vegna ópíóíða en verðkönnun SÁÁ gefur til kynna að framboð á opíóíðum hér á landi hafi aukist síðustu ár. Lögreglan hefur haldlagt mikið af ópíóðanum OxyContin síðustu misseri og læknar á Vogi hafa áhyggjur af þróuninni. Innlent 5.8.2022 14:46
„Mikilvægt að þetta komi allt frá persónulegum og berskjölduðum stað“ Aron Ingi Davíðsson vakti athygli sem einn af eigendum og meðlimum Áttunnar á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en Aron flutti meðal annars til Los Angeles til að læra leikstjórn og handritsgerð við New York Film Academy. Nú vinnur hann að því að skrifa þáttaseríu með framleiðslufyrirtækinu ZikZak þar sem Sigurjón Sighvatsson er yfirframleiðandi en um er að ræða unglingaseríu sem kemur inn á ýmis málefni og byggir á persónulegri reynslu. Blaðamaður tók púlsinn á Aroni Inga. Lífið 3.8.2022 07:00
Algerlega áfengis- og vímuefnalaus útihátíð um verslunarmannahelgi SÁÁ hefur blásið til fjölskylduhátíðar á Skógum um verslunarmannahelgi. Hátíðin er frábrugðin flestum öðrum þeim sem fram fara um helgina, enda verður áfengi ekki haft um hönd. Skipuleggjandi á von á því að allt að þúsund manns taki þátt í gleðinni. Innlent 28.7.2022 06:30
Greiða milljarða dala vegna ópíóðasölu Teva og Actavis Ísraelski lyfjarisinn Teva hefur komist að sátt utan dómstóla um að greiða 4,25 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 585 milljörðum króna, í sáttagreiðslur fyrir hlut sinn í ópíóðafaraldrinum svo kallaða vestanhafs. Innlent 27.7.2022 11:24
Tabúið um hugvíkkandi efni í edrúmennsku Ég hlustaði 12 spora fund í kvöld þar sem fjöldi fólks tjáði sig hver á fætur öðrum um sína tvöföldu sjúkdómsgreiningu. Fíknisjúkdóm og athyglisbrest, fíknisjúkdóm og ADHD, fíknisjúkdóm og ofsakvíða, fíknisjúkdóm og geðhvarfarsýki og ég gæti haldið eitthvað áfram. Skoðun 26.7.2022 11:00
Aðeins þriðjungur andvígur afglæpavæðingu neysluskammta Tæpur helmingur Íslendinga er hlynntur því að hætta að skilgreina vörslu neysluskammta fíkniefna sem lögbrot. Þetta eru niðurstöður úr nýrri könnun Maskínu. Kjósendur Sósíalistaflokksins eru líklegastir til að styðja afglæpavæðinguna. Innlent 21.7.2022 13:49
Staðan vissulega flókin og ýmislegt sem starfshópurinn þarf að vinna úr Áform heilbrigðisráðherra um afnám refsingar fyrir veikasta hópinn hefur vakið hörð viðbrögð en heilbrigðisráðherra segir ekkert ákveðið í þeim málum. Mikil vinna sé fram undan hjá starfshópi við framkvæmdina, meðal annars með tilliti til laga. Of snemmt sé að ræða hvort refsing verði afnumin fyrir vörslu neysluskammta fyrir alla. Innlent 17.7.2022 18:34
Bakslag í baráttunni og framkvæmdin ómöguleg: „Þetta er bara stórkostlega galin hugmynd“ Þingflokksformaður Pírata segir hugmyndir um að afnema refsingu aðeins fyrir ákveðinn hóp stórgallaðar og spyr hvort halda eigi fíklaskrá ríkisins. Sérfræðingur í skaðaminnkun segir tillöguna bakslag í baráttunni og telur hana á skjön við lög. Innlent 16.7.2022 21:58
Tillaga heilbrigðisráðherra sé fráleit: „Þetta er bara ekki framkvæmanlegt og örugglega ekki löglegt“ Tillaga heilbrigðisráðherra um afnám refsingar fyrir veikasta hóp fíkla hefur vakið hörð viðbrögð en formaður Snarrótarinnar efast að tillagan sé í samræmi við lög. Ákvörðun ráðherrans sé til þess fallin að slá ryki í augun á fólki þar sem ljóst sé að afglæpavæðing neysluskammta verði tekin af dagskrá. Innlent 16.7.2022 15:00
Vill afnema refsingu fyrir veikasta hópinn Heilbrigðisráðuneytið hefur sett tillögu að lagasetningu í samráðsgátt sem lýtur að afnámi refsingar fyrir veikasta hóp fíkla í tilteknum tilvikum með tiltekið magn og efni ávana- og fíkniefna. Innlent 15.7.2022 16:13
Annar hver fangi með ADHD Rannsóknir nýs geðheilbrigðisteymis fangelsa landsins benda til þess að um helmingur fanga sé með taugaþroskaröskunina ADHD. Innlent 8.7.2022 11:58
Hefur áhyggjur af aukinni dagdrykkju eldri borgara Alkóhólistum fjölgar ört í hópi eldri borgara á Íslandi og tæp tvöföldun hefur orðið í dagdrykkju 61 árs og eldri, samkvæmt innlagnartölum á Vogi. Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af þróuninni og segir áfengisdýrkun ríkja í samfélaginu. Innlent 28.6.2022 19:08
Bjargey kemur þeim sem á þurfa að halda til bjargar Bjargey, nýtt meðferðarheimili ætlað börnum og stúlkum, var formlega opnað í Eyjafjarðarsveit í gær. Meðferðin sem þar er veitt er lífspursmál fyrir þá sem á henni þurfa að halda að mati aðstandenda heimilisins. Innlent 28.6.2022 08:55
Anna Hildur endurkjörin formaður SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ nú fyrr í kvöld og Þráinn Farestveit varaformaður sömuleiðis. Núverandi stjórn félagasamtakanna hélt velli þrátt fyrir mótframboð. 368 einstaklingar sóttu fundinn og fór hann vel fram að sögn varaformanns. Innlent 21.6.2022 22:22
„Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Mikið hefur gengið á hjá SÁÁ síðustu mánuði. Deilur við Sjúkratryggingar Íslands, Einarsmálið svo kallaða þar sem fyrrum formaður varð uppvís að því að hafa keypt vændi. Fyrirhugað formannsframboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur sem síðan var dregið til baka vegna skítkasts og leiðinda. Óánægjuraddir að skrifa aðsendar greinar. Atvinnulíf 17.6.2022 08:02
Af hverju er unga fólkið ekki að nýta sér þjónustu SÁÁ? Á Sjúkrahúsinu Vogi hefur unglingum sem eru 19 ára og yngri fækkað mjög mikið undanfarin ár. Frá árinu 2000 til ársins 2018 voru innritanir hjá þessum aldurshópi um 200 til 300 á ári hverju. Skoðun 9.6.2022 14:31
Leggjum raunverulega áherslu á skaðaminnkun Mér barst nýlega svar frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi um vörslu ávana- og fíkniefna til eigin nota. Svarið sem ég fékk var því miður ófullkomið, sem sagt á þá leið að ekki væri unnt að fá svar varðandi umbeðið tímabil. Tilgangur fyrirspurnarinnar var að skoða þróun lagaframkvæmdar varðandi ávana- og fíkniefni sem lýtur að vörslu svonefndra neysluskammta. Skoðun 7.6.2022 07:30
„Ópíumvampírur“ ferðast til Spánar í leit að auðveldri vímu Ferðamenn koma víðsvegar að úr Evrópu að árbökkum Tagus-ár á Íberíuskaga til að stelast í morfínríkan safa ópíumvalmúans. Afurðir plöntunnar eru notaðar til framleiðslu sterkra verkjalyfja en ferðamennirnir verka þær ólöglega í vímuskyni og hafa fyrir vikið hlotið heitið „ópíumvampírur“. Þessi hættulegi túrismi er liður í mikillu aukningu á neyslu ópíums og ópíum-afleiddra efna í heiminum. Erlent 3.6.2022 15:00
„Hélt að líf mitt væri búið þegar ég hætti að drekka“ Þær Bryndís Morrison og María Kaldalón eiga það sameiginlegt að hafa hætt að drekka og hafa þær báðar komist að því að lífið var þá ekki búið, þvert á það sem þær héldu að myndi gerast. Saman halda þær úti hlaðvarpinu Taka tvö og er það um edrúmennskuna. Lífið 31.5.2022 10:30
Tryggja þarf greiðan aðgang að neyðarlyfinu Naloxone til framtíðar! Stórt framfaraskref í skaðaminnkandi þjónustu á Íslandi var tekið nú á dögunum þegar Naloxone nefúðinn var loksins aðgengilegur að kostnaðarlausu í gegnum Frú Ragnheiðar verkefnið hjá Rauða krossinum. Skoðun 27.5.2022 15:00
Þrisvar sneri ég við í tröppunum Í fyrsta skiptið komst ég upp hálfar tröppurnar en sneri þá við. Líka í annað skiptið. „Nei andskotinn, ég get þetta ekki,“ hugsaði ég með mér, með hjartað í buxunum. Skoðun 19.5.2022 14:30
Anna Hildur og Þráinn vilja áfram leiða SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður hafa tilkynnt að þau gefi kost á sér til að halda áfram á næsta aðalfundi samtakanna. Innlent 17.5.2022 14:36
Gleðilega Álfahátíð Kæru samherjar og vinir. Í vikunni verður Álfasala SÁÁ í 34. skiptið, en frá upphafi hefur Álfasalan verið eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið á vegum SÁÁ. Ég vil hvetja alla landsmenn til að kaupa Álfinn og styðja og styrkja þannig það mikilvæga starf sem fram fer á vegum SÁÁ. Skoðun 4.5.2022 08:00
Hver er munurinn á því að neyta fíkniefna í jakkafötum eða í neyðarskýli? Umræðunni um einstaklinga sem glíma við fíknisjúkdóma hættir til að verða afar neikvæð gagnvart þeim sem um ræðir. Fyrst og fremst eru þetta einstaklingar sem eiga jafnan tilverurétt í samfélaginu líkt og aðrir. Skoðun 4.5.2022 07:31