
Auglýsinga- og markaðsmál

Kristján tekur við af Ingva hjá H:N Markaðssamskiptum
Kristján Hjálmarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar H:N Markaðssamskipta.

Tíu bestu Super Bowl auglýsingarnar
Kansas City Chiefs fagnaði sínum fyrsta NFL-titli í hálfa öld í nótt þegar liðið vann 31-20 sigur á San Francisco 49ers í Super Bowl í Miami.

Telur óskynsamlegt að taka RÚV af auglýsingamarkaði
Stefán Eiríksson, sem í dag var tilkynnt um að hefði verið ráðinn í stöðu útvarpsstjóra, segir að í sínum huga sé hlutverk Ríkisútvarpsins að miðla til íslensku þjóðarinnar gæðaefni sem kallað er eftir hverju sinni. Hann telur ekki að RÚV eigi að hverfa af auglýsingamarkaði.

Heiðar Logi leikur á als oddi í myndbandi Red Bull
Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta og leikur oft á tíðum í auglýsingum og þá sérstaklega á brimbrettinu.

Kristín Ýr úr fréttunum í samskiptin
Kristín Ýr Gunnarsdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá samskiptafélaginu Aton.JL. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að Kristín sé með viðamikla reynslu úr fjölmiðlum sem spanni rúman áratug.

Efling potar í þekkt fólk úr skemmtanaiðnaðinum vegna auglýsinga Eldum rétt
Listamenn fá á baukinn hjá Eflingu sem er allt annað en sátt við Eldum Rétt.

Jólaauglýsingin sem margir eru búnir að bíða eftir
Undanfarin ár hafa jólaauglýsingar orðið sívinsælar hjá fyrirtækjum um allan heim og keppast þau oft við að gera sem mest úr hátíðunum í sínu kynningarstarfi.

Frá Kolibri til Aton.JL
Benedikt Hauksson hefur verið ráðinn til samskiptafélagsins Aton.JL sem ráðgjafi.

Hrönn ráðin til Aldeilis
Hrönn Blöndal Birgisdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá auglýsingastofunni Aldeilis.

Segir nýja auglýsingu fasíska og stalíníska
Auglýsing um stofnfund Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál hefur vakið mikla athygli. Hafa margir bendlað hana við nasisma og karlrembu. Prófessor við Listaháskólann segir myndmálið fasískt og stalínískt.

Hjón deildu titlinum
Hjónin Bjarney Harðardóttir og Helgi Rúnar Óskarsson, eigendur 66°Norður, hlutu í kvöld verðlaunin Markaðsmaður ársins á Íslensku markaðsverðlaununum.

Unnsteinn stefnir Húsasmiðjunni
Unnsteinn Manuel Stefánsson tónlistarmaður hefur stefnt Húsasmiðjunni fyrir höfundarréttarbrot vegna lags sem fyrirtækið notaði í auglýsingaherferð.

Íslandsbanki auglýsir á baksíðu kvennablaðs
Jafnréttissjónarmið bankans tvíráð.

Mikilvægt að fyrirtæki velji fjölbreyttan hóp samstarfsaðila
Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri World Class segir mikilvægt að fyrirtæki velji fjölbreyttan hóp samstarfsaðila.

Náði ekki sama árangri með samstarfi við afreksíþróttafólk
Svavar Jóhannsson framkvæmdastjóri Fitness Sport styrkir ekki lengur afreksíþróttafólk og velur frekar lífsstílssnappara.

Vörumerkið þitt, hvernig líður því?
Ertu með virka stefnu fyrir vörumerkið og allt sem það felur í sér?

Hafna því að hafa horft sérstaklega til þekktra veganvörumerkja
Bent hefur verið á það á samfélagsmiðlum, meðal annars úr herbúðum Jömm, að umbúðir og merki nýs Júmbó-hafragrautar séu afar líkar merkjum veganfyrirtækjanna tveggja.

Boða breytingar á merki KSÍ
Meðal þeirra verkefna sem auglýsingastofan Brandenburg mun sinna fyrir Knattspyrnusamband Íslands, sem endurskoðar nú vörumerkjamál sín, er að ráðast í breytingar á sjálfu auðkenni sambandsins.

Lykilatriði að stefna Íslandsbanka hreyfi ekki við ritstjórnarlegu sjálfstæði
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að tryggt þurfi að vera að stefna Íslandsbanka að auglýsa ekki hjá fjölmiðlum með afgerandi kynjahalla hafi ekki áhrif á ritstjórnarlegt frelsi fjölmiðla.

BÍ fordæmir aðgerðir Íslandsbanka fortakslaust í harðorðri ályktun
Stjórn Blaðamannafélags Íslands telur Íslandsbanka á miklum villigötum varðandi viðskiptaþvinganir á hendur fjölmiðlum.

Kvenréttindafélagið fagnar framtaki Íslandsbanka
Kvenréttindafélag Íslands segist fagna framtaki Íslandsbanka að að færa viðskipti sín til þeirra fjölmiðla og fyrirtækja sem búi ekki við afgerandi kynjahalla. Þetta kemur fram í ályktun félagsins.

Varhugaverð vegferð
Vegurinn til heljar er oftast varðaður góðum ásetningi og vafalaust hefur Íslandsbanki hin ágætustu markmið með því að "kveðja auglýsingar hjá fjölmiðlum sem bjóða upp á afgerandi kynjahalla,“ svo vitnað sé í markaðs- og samskiptastjóra bankans.

Íslandsbanki setur viðskiptabann á karllæga fjölmiðla
Búið að flagga tiltekna fjölmiðla.

Arna Gunnur til WebMo Design
Arna Gunnur Ingólfsdóttir hefur verið ráðin til markaðshússins WebMo Design þar sem tekur við starfi forstöðumanns stafrænnar markaðssetningar, þróunar og ráðgjafar.

Leikurinn breytist og vörumerkin með
Hvernig er hægt að byggja upp og viðhalda sterku vörumerki þegar leikurinn er sífellt að breytast?

Íris verður framkvæmda- og mannauðsstjóri
Vörumerkjastofan brandr hefur ráðið til sín fimm nýja starfsmenn, einn framkvæmdastjóra og fjóra ráðgjafa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hugmyndin fæddist þegar þær hittust óvænt í hlíðum Helgafells
Lovísa Anna Pálmadóttir og Unnur María Pálmadóttir hittust í hlíðum Helgafells í byrjun sumars. Nokkrum vikum síðar voru þær búnar stofna markaðsstofuna Kvartz.

Verði ekki skylt að auglýsa í dagblöðum
Fjármálaráðherra hefur sent inn til umsagnar breytingar á reglum um auglýsingar lausra starfa.

Með margra milljóna úr í sparnaðarherferð
Háskólaneminn Pétur Kiernan er umsjónarmaður sjónvarpsþátta sem Landsbankinn lét framleiða um ungt fólk og sparnað. Hann lýsir sér sem námsmanni með lítið á milli handanna en skartar þó í þáttunum rándýru úri.

Bónusröddin þagnar
Bjarni Dagur er Bónusröddin en samningi við hann hefur verið sagt upp eftir 17 ár.