Innlent
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs til langs tíma úr AA+ í AA-. Um leið er lánshæfismatið fært af athugunarlista þar sem það hafði áður verið sett með neikvæðum horfum. Horfur í íslenskum krónur eru stöðugar, að mati fyrirtækisins. Viðskipti innlent 17.7.2006 14:57
Á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa Vél frá flugfélaginu Air Atlanta Icelandic er á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa. Vélin, sem er í eigu Avion Group og tekur rúmlega 450 manns í sæti, leggur af stað frá London rúmlega 10 í kvöld. Innlent 17.7.2006 14:19
Farsæl lending Discovery geimskutlunnar Discovery-geimskutlan lenti heilu og höldnu í Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída klukkan rétt eftir klukkan eitt, eftir þrettán daga ferðalag til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Erlent 17.7.2006 13:51
Reglur við Þingvallavatn hertar Umhverfisráðherra hefur með reglugerð hert til muna reglur um umgengni við Þingvallavatn. Gerðar eru strangari kröfur en almennt er, hvað varðar frárennsli frá byggingum og lagningu og viðhald vega. Þá eru gerðar ýtarlegar kröfur til ræktunarframkvæmda og notkunar áburðar í landbúnaði við vatnið og hvers kyns fiskeldi í eða við vatnið verður bannað. Innlent 17.7.2006 13:20
Hlaup byrjað úr Grænalóni Hlaup er byrjað úr Grænalóni, vestanvert á Skeiðarársandi og verður þess væntanlega vart undir Núpsvatnabrú. Hlaup úr Grænalóni eru tíð, gerast jafnvel jafnvel tvisvar á ári. Innlent 17.7.2006 13:11
Flóðbylgja á Jövu Í það minnsta áttatíu eru látnir eftir að flóðbylgja reið yfir Jövu eftir jarðskjálfta upp á 7,2 stig sem varð í Indlandshafi í morgun. Stjórnvöld á Indlandi hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun á Andaman- og Níkóbareyjum, sem eru austur af Súmötru, en þar fórust tugþúsundir í flóðbylgjunni miklu á annan í jólum 2004. Erlent 17.7.2006 12:52
Kjararáð skipað Skipaður hefur verið nýr úrskurðaraðili, kjararáð, sem ætlað er að ákveða laun og starfskjör alþingismanna, ráðherra og dómara og annarra ríkisstarfsmanna sem ekki eru ráðnir til starfa með hefðbundnum hætti vegna eðli starfanna eða samningsstöðu. Innlent 17.7.2006 11:16
MP banki aðili að kauphöllum í Eystrasaltsríkjum Stjórnir kauphallanna í Tallin í Eistlandi, Riga í Lettlandi og Vilníus í Litháen hafa samþykkt aðild MP banka að kauphöllunum. Bankinn er fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að þessum kauphöllum. Innlent 17.7.2006 10:56
MP Fjárfestingarbanki í Eystrasalti MP Fjárfestingarbanki verður fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að kauphöllunum í Tallinn í Eistlandi, Ríga í Lettlandi og Vilníus í Litháen. Stjórnir kauphallanna hafa samþykkt aðild fjárfestingarbankans sem verður þar með tólfta fjármálafyrirtækið með aðild að öllum mörkuðum Eystrasaltsríkjanna. Viðskipti innlent 17.7.2006 09:54
Umhverfisráðherra hvetur til afnáms á skaðlegum niðurgreiðslum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hvatti til afnáms á niðurgreiðslum sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og til aukinnar þátttöku atvinnulífsins í baráttu gegn loftslagsbreytingum á fundi evrópskra umhverfisráðherra í Turku í Finnlandi. Innlent 17.7.2006 09:47
Fjórir handteknir vegna nauðgunarkæru Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið fjóra unga karlmenn vegna nauðgunarkæru. Ung kona kærði nauðgun upp úr miðnætti og var flutt í neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana á Landsspítalanum. Jafnframt hófst rannsókn, sem leiddi til handtakanna. Lífsýni hafa verið tekin úr mönnunum og verða þeir svo yfirheyrðir í dag. Verknaðurinn átti sér stað í heimahúsi. Á þessari stundu eru frekari málsatvik óljós, að sögn lögreglu. Innlent 17.7.2006 09:26
Íslenskar kartöflur Fyrstu nýju kartöflurnar úr sunnlenskum görðum koma á markað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Það verða Premier kartöflur , sem Birkir Ármannsson í Vestur Holti í Þykkvabæ, byrjaði að taka upp í morgun. Innlent 17.7.2006 08:32
Engar rútuferðir á morgun Íslensk kona ásamt fjögurra mánaða ungabarni og eiginmanni sínum er ein þeirra sex Íslendinga sem enn eru strandaglópar í Beirút. Íslendingarnir voru komnir upp í rútu í hádeginu í dag þegar þeim var vísað út og sagt að Norðmenn gengju fyrir. Enn er óvíst um að Íslendingarnir komist áleiðis heim á morgun. Innlent 16.7.2006 17:33
Stjórnsýsluúttekt gerð á Strætó Gerð verður rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á Strætó að beiðni borgaryfirvalda. Borgarfulltrúi í stjórn fyrirtækisins segir meirihlutann í borgarstjórn hafa verið upplýstan um þjónustuskerðingu fyrirtækisins. Innlent 16.7.2006 18:16
Segir borgaryfirvöld velja einkabílinn. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir þjónustuskerðingu Strætó bitna illilega á námsmönnum. Ráðamenn í borginni velji einkabílinn fyrir borgarbúa. Innlent 16.7.2006 18:26
Flugvél send til Sýrlands Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um að senda flugvél til Damaskus í Sýrlandi til að flytja þaðan Norðurlandabúa sem eru á flótta frá Líbanon. Að sögn Valgerðar er vélin 472 sæta og mun væntanlega leggja af stað seinnipartinn á morgun. Sex Íslendingar eru enn strandaglópar í höfuðborginni Beirút þar sem Norðmenn voru látnir ganga fyrir í rútur sem áttu að flytja fólkið frá borginni. Innlent 16.7.2006 15:54
Fluttur frá Borgarnesi til Reykjavíkur eftir líkamsárás Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss í Fossvogi í nótt eftir líkamsárás. Atvikið átti sér stað á Mótel Venus fyrir utan Borgarnes. Áverkar mannsins virtust miklir í fyrstu en við skoðun í Fossvogi reyndist hann ekki mikið skaddaður heldur einungis með glóðarauga og bólgið andlit. Búið er að útskrifa manninn. Innlent 16.7.2006 15:10
Smáskífa Nylon selst vel í Bretlandi Fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar Nylon í Bretlandi endaði í 29. sæti sölulistans eftir vikuna. Smáskífan "Losing a Friend" kom í verslanir á mánudag og var uppseld í stórum hluta verslana í miðborg London sama dag. Meðal þeirra sem þurftu að láta í minni pokann fyrir Nylon flokknum eru meðlimir hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers sem einnig gáfu út smáskífu í vikunni. Innlent 16.7.2006 15:07
Íslendingar skildir eftir í Beirút Íslendingunum í Beirút, höfuðborg Líbanons, var meinað að yfirgefa borgina í rútum þar sem Norðmenn voru látnir ganga fyrir. Utanríkisráðherra segist vonsvikinn vegna málsins, en brýnt þótti að fólkið kæmist heim hið fyrsta vegna þess stríðsástands sem ríkir í landinu. Innlent 16.7.2006 12:51
Rændi úr peningakassanum og sló afgreiðslukonu Maður á þrítugsaldri, með klút fyrir andlitinu, rændi verslun í vesturbæ Reykjavíkur klukkan fjögur í gærdag. Hann var kominn í peningakassann þegar afgreiðslukona kom að honum og reyndi að stöðva hann. Hann sló hana þannig að hún féll í gólfið og hvarf á brott á bíl. Konan sem hann réðst á náði númeri bílsins og gat því veitt lögreglu gagnlegar upplýsingar. Tæplega þremur tímum síðar var hann handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglu en verður yfirheyrður síðar í dag. Innlent 16.7.2006 09:56
Beltin björguðu Talið er að bílbelti hafi bjargað því að ekki fór verr þegar bíll valt út af veginum í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglu var fernt í bílnum og sluppu þau öll ómeidd enda öll með bílbelti. Innlent 16.7.2006 09:53
400 e-töflur fundust við húsleit í Keflavík Lögreglan í Keflavík handtók á föstudagskvöld sex manns vegna fíkniefnaviðskipta. Við húsleit fundust um 400 e-töflur, 15 grömm af amfetamíni og lítilræði af kókaíni. Fólkinu hefur öllu verið sleppt. Markaðsvirði e-taflnanna gæti numið um einni og hálfri milljón. Þrír gistu svo fangageymslur lögreglunnar í Keflavík í nótt vegna ölvunar, þar á meðal ökumaður sem tekinn var snemma í morgun fyrir ölvunarakstur en brást illa við og beit lögregluþjón. Innlent 16.7.2006 09:49
Vopnað rán í Krónunni í Mosfellsbæ Maður vopnaður hnífi ógnaði starfsfólki Krónunnar í Mosfellsbæ seint í gærkvöldi, heimtaði peninga og hafði á brott með sér talsvert fé. Fimm aðrir eru taldir tengjast ráninu. Tólf mínútur í ellefu var lögreglu tilkynnt um ránið og sautján mínútum síðar náðist sá grunaði vopnaður hnífi. Um miðnætti voru meintir vitorðsmenn hans handteknir í heimahúsi. Allir sex gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt og verða þeir yfirheyrðir í dag. Innlent 16.7.2006 09:44
139 hlauparar lögðu af stað úr Landmannalaugum Það voru 139 ofurhugar sem lögðu af stað úr Landmannalaugum í morgun með það að markmiði að hlaupa Laugaveginn inn í Þórsmörk, um 55 km leið. Þrátt fyrir slæma veðurspá var veðrið sæmilegt í morgun og meira að segja sólarglæta. Innlent 15.7.2006 15:55
Þrjú ker gangsett í skála 3 Endurgangsetning á þremur kerjum í skála 3 í Álverinu í Straumsvík í dag tókst með ágætum en engin framleiðsla hefur verið í skálanum síðan í júní. Til stendur að endurgangsetja öll kerin á næstu vikum og mánuðuðum. Innlent 15.7.2006 15:46
Útafakstur á Ólafsfjarðarvegi Bíll keyrði út af Ólafsfjarðarveginum milli Akureyrar og Dalvíkur um eittleytið í dag. Ökumaður var á leið í norður og missti stjórn á bíl sínum á móts við bæin Hátún með þeim afleiðingum að hann keyrði út af veginum, velti bílnum og endaði ofan í skurði. Ökumaður var einn í bílnum og sat fastur. Kalla þurfti tækjabíl á vettvang sem klippti manninn út úr bílnum. Maðurinn er lítillega slasaður og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Ökumaður er grunaður um ölvun. Innlent 15.7.2006 14:33
Afnám verndartolla gangi að íslenskum landbúnaði dauðum Á vef Landssambads kúabænda, naut.is, skrifar Þórólfur Sveinsson pistil í dag undir fyrirsögninni "Allt í lagi" hættan. Þar fjallar Þórólfur um umfjöllun Kastljóssins um skýrslu matvælanefndar sem birt var í gær. Hann segir viðmælendurna hafa verið á þeirri skoðun að það væri allt í lagi að fella niður tolla á erlendar landbúnaðarvörur til verndar íslenskum matvælum. Þessi hugsunarháttur sé hættulegur því augljóst sé að ef smásöluverð lækki til jafns við það sem kemur fram í skýrslunni sé ekkert fjármagn eftir til að borga starfsmönnum laun. Atvinnugrein sem hafi ekki efni á launagreiðslum hljóti hverfa. Innlent 15.7.2006 14:22
Stöð 2 og Sýn hækka Fyrirtækið 365 hefur sent frá sér tilkynningu um hækkun á áskriftarstöðvum sínum frá og með 20. júlí næstkomandi. Áskrift að Stöð 2 og erlendum pökkum hækkar um 8% og áskrift að Sýn um 12% fyrir M12 áskrifendur en 13% í almennri áskrift. Innlent 15.7.2006 13:06
Tafir á vél Iceland Express vegna bilanar Talsverðar tafir urðu á flugi vélar Iceland Express til Friedrichshafen í morgun. Fyrirtækið sendi frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að bilun hafi komið upp í loku í hjólabúnaði vélarinnar. Þegar vélin var komin í loftið fóru hjólin upp með eðlilegum hætti en lok búnaðarins féll ekki að. Ákveðið var að lenda vélinni til að gera við lokuna. Eftir viðgerðina var vélinni flogið í stutt reynsluflug og að því búnu gengu farþegar um borð á ný. Áætlað er að vélin lendi í Friedrichshafen kl. 13.54 að íslenskum tíma, um klukkutíma á eftir áætlun. Innlent 15.7.2006 12:07
Úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendu við Sólheimajökul felldur úr gildi Eigendur Ytri-Sólheimajarða unnu mál gegn íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi Suðurlands í gær. Felldur var niður úrskurður óbyggðanefndar frá því í desember 2004 um að landið Hvítmaga í Mýrdalshreppi teldist þjóðlenda. Innlent 15.7.2006 11:09
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent