
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Fjöldi fólks reynir að komast í forgangshóp vegna bóluefnis
Töluverður fjöldi Íslendinga hefur óskað eftir því að komast í forgangsröð hvað varðar bólusetningu með bóluefni Pfizer. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnaráðherra, í samtali við fréttastofu.

Svandís segir sóttvarnaráðstafanir til þess að fara eftir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig sérstaklega um mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar fréttastofa leitaði eftir því í dag. Bjarni var í gærkvöldi viðstaddur samkomu í Ásmundarsal sem lögregla leysti upp vegna brota á samkomutakmörkunum.

„Bjarni hlýtur að vera að íhuga stöðu sína og jafnvel afsögn“
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það mjög vond skilaboð að fulltrúar stjórnvalda sem setji sóttvarnareglur fari ekki sjálfir eftir þeim. Það sé grafalvarlegt og ráðherra þurfi að íhuga það alvarlega hvort þjóðin beri enn traust til hans.

Eigendur Ásmundarsalar segjast hafa misst yfirsýn
Aðstandendur Ásmundarsalar, þar sem samkvæmi sem lögregla leysti upp í gærkvöldi og Bjarni Benediktsson var á meðal gesta, biðjast afsökunar á að hafa misst yfirsýn yfir fjölda gesta viðburðarins.

Segir samkvæmið geta hleypt af stað ofurdreifaraviðburði
Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landspítalanum, kallar eftir því að Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segi af sér eftir að hafa verið viðstaddur 40 til 50 manna samkomu í gærkvöldi.

Segir Kára ekki hafa átt frumkvæði að viðræðum við Pfizer
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hann hafi sjálfur viðrað þá hugmynd við bóluefnaframleiðandann Pfizer að Ísland verði rannsóknarsetur fyrir fjórða fasa rannsókn á bóluefninu. Það hafi ekki verið Kári Stefánsson sem hafi fyrstur haft samband við Pfizer hvað þetta varðar.

Sýnist að sóttvarnareglur hafi verið brotnar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að þær upplýsingar sem fram hafa komið um samkvæmi sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra var viðstaddur í gærkvöldi bendi til þess að sóttvarnareglur hafi verið brotnar.

Bjarni biðst afsökunar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu á Facebook, eftir að greint var frá því að lögregla hefði leyst upp fjölmennt samkvæmi sem hann og eiginkona hans voru viðstödd.

Netverjar bregðast við: „Hvaða ráðherra var í partíi í gær er besti jólaleikur ever“
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur 40-50 manna gleðskap í Ásmundarsal í gærkvöldi, að því sem heimildir fréttastofu herma. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af veislunni og leysti hana upp á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Sjö greindust með veiruna í gær
Sjö manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Af þeim voru fimm í sóttkví. Alls voru tekin 1.202 sýni innanlands.

Bjarni Ben í Ásmundarsal þar sem lögregla leysti upp samkvæmi
Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra, var staddur í gleðskap í Ásmundarsal sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Ummæli ársins 2020: Þetta Covid sem enginn þekkti, hlýðnir Akureyringar og sauðfjárbúskapur sem lífsstíll
Líkt og undanfarin ár rifjar Vísir upp eftirminnileg ummæli sem fallið hafa á árinu sem er að líða. Í flestum þeirra endurspeglast nokkur af stærri fréttamálum ársins.

Kári í óformlegum viðræðum um bóluefni fyrir Ísland
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, hefur átt í óformlegum viðræðum við lyfjaframleiðendur á borð við Pfizer og Moderna með það fyrir augum að reyna að tryggja Íslendingum aðgang að bóluefni við kórónuveirunni. Hann hefur efasemdir um að samvinna við Evrópusambandið í þeim efnum sé vænlegasta leiðin til árangurs.

Ráðherra í fjölmennu samkvæmi sem lögregla stöðvaði
Ráðherra í ríkisstjórn Íslands var á meðal 40-50 gesta í samkvæmi í sal í miðbæ Reykjavíkur sem lögregla hafði afskipti af í gær vegna brota á samkomutakmörkunum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki kemur fram um hvaða ráðherra er að ræða.

Milljónir skammta af bóluefni sitja ónotaðir í Bandaríkjunum
Afar ólíklegt er að það takist að bólusetja þær tuttugu milljónir manna sem stefnt var að í Bandaríkjunum á fyrsta mánuði bólusetningar. Búið er að dreifa um tíu milljónum skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech annars vegar og Moderna hins vegar til sjúkrahúsa og ríkja í Bandaríkjunum.

Danska þjóðkirkjan leggur til að jólamessu verði aflýst
Danska þjóðkirkjan hvatti til þess fyrr í kvöld, kvöldið fyrir aðfangadag, að öllum jólaguðsþjónustum fram til 3. janúar verði aflýst. Þetta þýðir að þjóðkirkjan mælist til þess að engar jólamessur fari fram á aðfangadag. Joy Mogensen, menningarmálaráðherra Danmerkur, styður þau tilmæli biskupsumdæma landsins, sem þjóðkirkjan tekur undir, um að rétt sé að aflýsa jólamessum.

Telur kórónuveiruna ekki eiga roð í skötulyktina
Eigandi Múlakaffis hefur vart haft undan við að afgreiða skötu ofan í borgarbúa í aðdraganda jólanna. Gestir létu vel að skötunni í ár og nokkrir sögðust sannfærðir um að kórónuveiran ætti ekki roð í lyktina.

100 ára og finnur engin eftirköst kórónuveirunnar
Guðrún Valdimarsdóttir, sem er að vera hundrað og eins árs og býr á Sólvöllum á Eyrarbakka segist ekki finna nein eftirköst af Kórónuveirunni, sem hún fékk í vetur. Hún styttir sér stundir með að fara með ljóð eftir sjálfan sig en Guðrún er mjög hagmælt og hefur gefið út ljóðabók.

Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar ákærður
Skipstjórinn á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið ákærður fyrir brot á sjómannalögum eftir að grunur kom upp um kórónuveirusmit um borð. Tuttugu og tveir skipverjar sýktust af veirunni.

„Ég held að fólk sé greinilega ekki að hlusta á mig“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé greinilegt að fólk sé ekki að taka mark á varnaðarorðum hans þegar litið er til þeirrar mannmergðar sem blasir við víða nú í aðdraganda jólahátíðarinnar. Mikil bílaumferð sýni glögglega að fólk sé á ferð og flugi á Þorláksmessu. Þórólfur hefur biðlað til fólks að takmarka mjög hittinga, sinna persónulegum smitvörnum og almennt að draga úr hraðanum í lífinu.

Enn eitt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum: Hefur stökkbreyst meira
Tvö tilfelli nýs afbrigðis SARS-CoV-2 frá Suður-Afríku hafa greinst í Bretlandi. Heilbrigðisráðherra landsins hefur biðlað til þeirra sem hafa ferðast frá Suður-Afríku til Bretlands á síðustu tveimur vikum um að einangra sig.

Bóluefnavandi ríkisstjórnarinnar
Þingflokkur Miðflokksins hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman til að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi varðandi bólusetningu landsmanna vegna COVID 19.

Vilja að þing verði kallað saman vegna óvissu um bóluefni
Þingflokkur Miðflokksins hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman til að fjalla um bóluefni. Píratar taka undir ákallið og formaður Samfylkingar segir kröfuna eðlilega í ljósi misvísandi frétta og óvissu.

Tólf greindust með veiruna innanlands í gær
Tólf greindust með kórónuveiruna veiruna innanlands í gær. Níu þeirra voru í sóttkví við greiningu, eða 75 prósent, og þrír voru utan sóttkvíar.

Allt sem þú þarft að vita um bóluefni Pfizer
Lyfjastofnun Íslands hefur opnað sérstaka upplýsingasíðu um bóluefni Pfizer og BioNTech gegn kórónuveirunni. Þar má finna allar helstu upplýsingar um bóluefnið á íslensku.

Læknir hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart konu sem lést nokkrum klukkutímum eftir útskrift
Niðurstaða rannsóknar embættis landlækni á andláti Eygló Svövu Kristjánsdóttur er sögð leiða í ljós að læknir á bráðamóttöku Landspítalans hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart henni þegar komið var með Eygló á bráðamóttökuna í mars. Hún lést nokkrum klukkutímum eftir að hún var útskrifuð af bráðamóttökunni.

Vonar að fólk leyfi þeim sem dvelja á hjúkrunarheimili yfir jólin að fylgjast með hátíðinni í gegnum fjarskiptabúnað
Forstöðumaður á Hrafnistu vonar að fjölskyldur leyfi ættingjum, sem dvelja á hjúkrunarheimilum, að fylgjast með jólahátíðinni í gegnum fjarskiptabúnað.

Bólusett á hjúkrunarheimilum og á sjúkrastofnunum í næstu viku
Fimm þúsund manns verða líklega bólusettir á spítölum og hjúkrunarheimilum víða um land á einum til tveimur dögum í næstu viku. Stjórnvöld hafa samið við þrjá framleiðendur um bóluefni sem dugar allri þjóðinni og rúmlega það.

Segist viss um að bóluefnið virki einnig á „breska afbrigðið“
Uğur Şahin, forstjóri þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech, kveðst þess fullviss að kórónuveirubóluefnið sem fyrirtækið þróaði, í samstarfi við bandaríska lyfjarisann Pfizer, virki gegn „breska afbrigði“ kórónuveirunnar.

Covid-19 gæti minnkað lífslíkur Bandaríkjamanna um þrjú ár
Ef Covid-19 er tekið með í reikninginn munu lífslíkur Bandaríkjamanna minnka um þrjú ár. Sjúkdómurinn, sem er afleiðing SARS-CoV-19 veirusmits, verður að öllum líkindum í þriðja sæti yfir helstu dánarorsakirnar vestanhafs árið 2020.