Bókaútgáfa

Mest seldu bækur ársins 2020: Nýr bóksölukóngur krýndur
Snertingin hans Ólafs Jóhanns Ólafssonar endaði sem mest selda bók ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

Ólafur Jóhann skýtur glæpasagnaþríeykinu ref fyrir rass
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur komið sér vel fyrir í fyrsta sæti bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut) með Snertingu sem hlotið hefur verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda, auk þess að vera einn besti titill ársins.

Samruni Storytel og Forlagsins blásinn af
Ekki verður af fyrirhuguðum samruna Forlagsins og Storytel sem tilkynnt var um í sumar. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Storytel og Forlagsins, þar sem einnig er greint frá undirritun „langtímasamnings“ milli fyrirtækjanna um dreifingu hljóð- og rafbóka. Teikn voru á lofti um að Samkeppniseftirlitið myndi ekki samþykkja samrunann, að sögn landsstjóra Storytel á Íslandi.

„Eins og að vera meinlaus einræðisherra í mjög litlu landi“
„Mig langaði sjálfri að fara til Grísafjarðar en átti ekki fyrir því svo ég byrjaði að skrifa sögu um fólk sem fer þangað,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir um barnabókina Grísafjörður, sem hún gaf út fyrir jólin.

Fyrsti karlinn í fjölskyldunni sem hefur ekki átt mótorhjól
Ein er sú bók í jólabókaflóðinu sem áhugafólk um bókmenntir ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara: Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson.

Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu
Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú.

„Ég þekki það sjálf hvernig er að vera barn og láta óttann hamla sér“
„Bókaskrif voru ekkert sérstaklega á dagskrá hjá mér og hvað þá að verða dáleiðari eða orkuheilari,“ segir lögfræðingurinn Sara Pálsdóttir, sem síðustu mánuði hefur fært sig inn á nýjar brautir í lífinu.

Látast vera boðberar frelsisins en vilja bara græða peninga
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur sent frá sér sitt besta verk. Snerting heitir skáldsagan. Hér verður gerð heiðarleg tilraun til að komast að því hvers vegna bókin er svona vel heppnuð.

Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar
Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú.

Alþjóðasamtök gyðinga fordæma íslenska útgáfu nasistabókar
Samtökin World Jewish Congress fordæma íslenska útgáfu nasistabókarinnar Tröllasaga tuttugustu aldarinnar. Samtökin beina spjótum sínum að Fibut, að þeim beri skylda til að henda bókinni út úr Bókatíðindum því um sé að ræða hatursorðræðu.

Afneitun Helfararinnar er hættuleg samfélaginu
Menachem Z. Rosensaft segir bókina Tröllasaga tuttugustu aldarinnar hreina og klára andstyggð, hatursáróður og Fíbút ætti að reisa skorður við slíku í Bókatíðindum.

Tvær bækur sama höfundar tilnefndar
Félag bókaútgefenda tilkynnti nú rétt í þessu um hvaða höfundar hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar er eitt og annað sem kemur á óvart svo sem það að einn höfundur er tilnefndur fyrir sitthvort verkið.

Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi
Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent.

Þeir yngri komist vart að meðan Arnaldur fái fimm stjörnur í vöggugjöf
Steinar Bragi er höfundur í algjörum sérflokki, segir Björn Vilhjálmsson gagnrýnandi Víðsjár Ríkisútvarpsins og heldur ekki vatni: „… sendir hérna frá sér sína bestu bók, og það er að segja eitthvað.“ Björn sparar sig hvergi en hann er að tala um Truflunina nýjustu skáldsögu höfundar. Steinar Bragi er viðmælandi Vísis í Höfundatali.

Fyrsti bóksölulisti ársins 2020: Algjör sprenging í bóksölu
Enn trónir Arnaldur á toppi bóksölulista. Fátt virðist fá því breytt. Íslenskir bókakaupendur eru íhaldssamir. En þó eru nokkrir sem að gera sig líklega til að velgja Arnaldi undir uggum.

Sjokkerandi ferðalag Sóla um undirheima í fylgd Herra Hnetusmjörs
Sóli Hólm hefur ritað sögu Herra Hnetusmjörs og það kemur meðal annars á daginn að þeir tveir eiga sitthvað sameiginlegt.

Fjögur hundruð prósenta aukning í netsölu hjá Forlaginu
Bækur mokast út í netsölu og stefnir í mikil bókajól.

Lestur landsmanna eykst milli ára
Landsmenn virðast lesa og hlusta meira á bækur í ár en í fyrra samkvæmt niðurstöðum könnunar Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Meðalfjöldi lesinna bóka er nú 2,5 á mánuði samanborið við 2,3 í fyrra.

„Þetta var eitthvað sem ég þurfti að gera“
Bergsveinn Ólafsson var knattspyrnumaður og sálfræðinemi þegar hann tók meðvitaða ákvörðun að breyta venjum og taka upp nýjar. Í dag er hann hættur í fótbolta og hefur hann helgað lífi sínu að hjálpa öðrum.

Ein af þessum týpum sem heldur að hún geti allt
Matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir sendi frá sér bókina Saumaklúbburinn fyrir jólin og má þar finna bæði uppskriftir frá henni og tíu bestu vinkonum hennar líka. Berglind kom sjálfri sér á óvart og sá sjálf um umbrot, hönnun og útgáfu.

Glæpasagan jafn merkilegt bókmenntaform og hvað annað
Ragnar Jónasson glæpasagnahöfundur heldur því fram að góð glæpasaga snúist ekki síður um persónusköpun en sjálft plottið.

MIFF fordæmir útgáfu og sölu hatursrits gegn helförinni
MIFF (Með Ísrael fyrir friði) styður áskorun sagnfræðinga til bóksala að taka „Tröllasögu tuttugustu aldarinnar“ ekki í sölu og skorar á þær verslanir sem taka þátt í bóksölu fyrir hátíðirnar að taka ekki þátt í dreifingu hennar.

Sagnfræðingar biðla til bóksala vegna nasistabókar
Hópur sagnfræðinga og sagnfræðinema hefur skrifað undir áskorun til bóksala þar sem skorað er á þá að taka bókina Tröllasaga tuttugustu aldarinnar ekki í sölu.

Segir Valhöll hafa yfirfarið lista umsækjenda um lóðir í Reykjavík
Ellert B. Schram greinir frá því í nýrri bók að flokksgæðingar hafi löngum setið fyrir þegar landsins gögn og gæði eru annars vegar.

Bókaútgefendur í bobba vegna nasistabókar í Bókatíðindum
Heiðar Ingi Svansson segir bók um helförina sem auglýst er í Bókatíðindum setja Fibut í nokkurn vanda.

Sálufélagar í prjónaskapnum
Sjöfn Kristjánsdóttir byrjaði að prjóna 12 ára en átti alltaf erfitt með að fylgja uppskriftum. Nú rekur hún eigið prjónafyrirtæki, hannar uppskriftir og gefur út sína fyrstu prjónabók núna fyrir jólin.

Myndlistin einmanaleg atvinnugrein
Rakel Tomas gefur í næsta mánuði út sína fyrstu listaverkabók og er forsalan nú þegar hafin. Rakel er myndlistakona sem vinnur með kvenlíkamann á súrrelaískan hátt í verkum sínum.

Bryndís fagnar útkomu uppgjörsbókar sinnar
Líf og fjör að heimili þeirra Bryndísar og Jóns Baldvins um helgina.

Linda Ben gefur út sína fyrstu uppskriftabók
Matarbloggarinn og áhrifavaldurinn Linda Ben ætlar að bæta bók í jólabókaflóðið í ár. Linda er mikill matgæðingur en í bókinni verður áherslan á kökur.

Námsmenn nýta netið til að versla en velja prentað form
Rafrænar bækur er aðeins lítill hluti seldra bóka í Bóksölu stúdenta og segir Óttarr Proppé verslunarstjóri að enn sem komið er sé engin bylting í eftirspurn eftir rafbókum.