
HK

Mældu tímann í Kórnum: „Mér finnst þetta alveg galið“
Það varð allt vitlaust undir lok leiks HK og Fylkis í Bestu deildinni í fyrrakvöld, þegar HK tókst að jafna metin mínútu eftir uppgefinn uppbótartíma. Markið sendi Fylki niður um deild. Sérfræðingar Stúkunnar voru ekki alveg sammála um réttmæti þess að lengja uppbótartímann.

Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var allt annað en ánægður þegar HK jafnaði undir lok leiks liðanna í kvöld. Hann fékk að launum reisupassann og hans menn fallnir niður um deild.

Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki
HK og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í spennutrylli. Allt benti til þess að Fylkir myndi klára þetta en Brynjar Snær Pálsson jafnaði í uppbótartíma og Fylkir er fallið. Uppgjör og viðtöl væntnaleg.

Vaknar Árbærinn aftur?
Fylkir berst fyrir tilverurétti sínum í Bestu deild karla er liðið sækir HK heim í Kórinn seinni partinn í dag.

Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik
Haukar og HK gerðu 29-29 jafntefli í fimmtu umferð Olís deildar karla.

Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram
Gærdagurinn í Bestu deild karla í fótbolta var áhugaverður og bauð upp á margar mismunandi sögulínur. Ekki vantaði mörkin í leikina fjóra og þá var dramatíkin allsráðandi í slag Vals og Víkings Reykjavíkur

Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum
Vestri kom til baka gegn HK og vann 2-1 sigur í sannkölluðum sex stiga leik í Bestu deild karla í knattspyrnu. Sigurinn lyftir Vestra upp úr fallsæti á kostnað HK. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn
Helgi Guðjónsson skoraði tvö góð mörk fyrir Víkinga í gær þegar liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn FH, í Bestu deildinni í fótbolta. Gullfalleg mörk úr smiðju táninga vöktu athygli í 3-3 jafntefli KA og HK. Öll mörkin má sjá á Vísi.

Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum
Nýkrýndir bikarmeistarar KA máttu sætta sig við 3-3 jafntefli gegn HK í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla. KA var langt frá sínu besta í dag og ekki laust við að einhver bikarþynnka hafi verið til staðar en KA lék manni fleiri allan síðari hálfleik.

Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“
Nýkrýndir bikarmeistarar KA mæta svo til pressulausir til leiks í Bestu deildina í dag. Á heimavelli gegn HK-liði sem berst fyrir lífi sínu í deildinni. Með ekkert sérstakt til að keppa að í deildinni óttast Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA-manna, ekki bikarþynnku eftir fagnaðarlæti síðustu daga í kjölfar sigursins sögulega. Fögnuð þar sem leikmenn fengu fullt leyfi frá þjálfaranum til að sleppa af sér beislinu.

Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“
„Komiði sæl og blessuð. Það er leikdagur af dýrari gerðinni. Breiðablik - HK. Baráttan um Texas,“ sagði Andri Már Eggertsson, Nablinn, í upphafi innslags síns um leik Breiðabliks og HK í Bestu deild karla um þarsíðustu helgi.

Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur
Nýliðar Fjölnis unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Olís deild karla, 28-27 gegn HK í háspennuleik á lokamínútunum.

Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær
Sextán mörk voru skoruð í leikjunum fjórum í Bestu deild karla í gær. Þau má öll sjá í fréttinni.

„Gífurlega svekkjandi augnablik“
Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari HK sagðist heilt yfir vera sáttur með frammistöðu HK í 5-3 tapinu gegn Blikum í dag. Hann sagði liðið þurfa að undirbúa sig vel fyrir baráttuna í neðri hluta Bestu deildarinnar.

„Held það vilji það allir sem fylgjast með boltanum“
„Bara mjög góður sigur. Erfitt HK-lið og mjög erfiðir við að eiga. Þeir komust yfir og við komum þeim inn í þetta. Þetta er mjög sterkt,“ sagði Aron Bjarnason eftir 5-3 sigur Breiðabliks á nágrönnum sínum í HK í dag.

Uppgjörið: Breiðablik - HK 5-3 | Blikar völtuðu yfir nágrannana í síðari hálfleik
Breiðablik er aftur komið með þriggja stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar eftir 5-3 sigur á HK í Kópavogsslag í dag. Leikurinn var frábær skemmtun en Blikar gengu frá liði HK í síðari hálfleiknum.

Sérstakir leikir sama hvað er undir: „Alltaf smá auka fiðringur“
Breiðablik og HK mætast í Kópavogsslag í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Leikurinn er þýðingarmikill fyrir bæði lið í deildinni en montrétturinn í Kópavogi er einnig undir. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, segir alltaf auka fiðring og spennu fylgja leikjunum við Breiðablik.

HK lagði Íslandsmeistarana og Grótta vann í Breiðholti
HK og Grótta unnu góða sigra í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. HK gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara FH á meðan Grótta vann ÍR á útivelli.

Stjörnumenn sterkari á móti nágrönnunum
Stjarnan vann tveggja marka sigur á HK, 29-27, í fyrstu umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld.

Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin í Víkinni og tuttugu mínútna þrennu
Dramatíkin og fjörið var alls ráðandi í næstsíðustu umferðinni í hinni hefðbundnu deildakeppni Bestu deildar karla í fótbolta í gær.

Uppgjörið og viðtöl: HK - Fram 1-0 | HK úr fallsæti eftir sigurmark í lokin
HK vann gríðarlega mikilvægan sigur á Fram þegar liðin mættust í Bestu deildinni í Kórnum í kvöld. Með sigrinum lyftir HK sér úr fallsæti.

HK sektað um 250 þúsund krónur fyrir ónýta markið
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að sekta HK fyrir framkvæmd félagsins á leik liðsins gegn KR.

Furðu lostnir yfir tæklingu Örvars: „Greyið Ívar“
Stúkumenn voru hálfgáttaðir á afar skrautlegri eða hreinlega ljótri tæklingu Örvars Eggertssonar gegn sínum gamla samherja Ívari Erni Jónssyni, þegar þeir fóru yfir umdeild atvik úr 2-0 sigri Stjörnunnar gegn HK í Bestu deildinni í gærkvöld.

Var kominn niður á rassinn í teignum en skoraði samt: Sjáðu mörkin
Stjarnan komst upp í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á HK í Garðabænum í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr leiknum inn á Vísi.

Uppgjörið: Stjarnan - HK 2-0 | Heimamenn upp í efri hlutann
Stjarnan er komin upp í efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu þökk sé 2-0 sigri á HK í 20. umferð deildarinnar. HK situr hins vegar enn í fallsæti.

KR-ingar með fæst stig úr innbyrðis leikjum neðstu liðanna
KR hefur tapað á móti Vestra og HK í síðustu tveimur leikjum sínum og það þýðir að ekkert lið er með slakari árangur í innbyrðis leikjum fallbaráttuliðanna í Bestu deildinni í sumar.

Kórsmálinu ekki lokið: HK gæti enn verið refsað
Máli HK vegna frestaðs leiks við KR í Bestu deild karla er ekki lokið þrátt fyrir að leikurinn hafi farið fram í gærkvöld. Líklegt þykir að HK-ingar verði sektaðir vegna mistaka við framkvæmd leiks.

Sjáðu 4. deildar hetjur HK gegn KR og markasúpu Víkinga
Það voru tveir bráðskemmtilegir leikir á dagskrá á Stöð 2 Sport í gærkvöld og nóg af mörkum sem nú má sjá á Vísi.

„Þegar þú ert í fallbaráttu verður ennþá mikilvægara að sýna kjark og hugrekki“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var afar svekktur eftir 3-2 tap gegn HK í Kórnum en með því dróst KR fyrir fulla alvöru niður í fallbaráttu Bestu deildarinnar.

„Okkur langaði ekkert eðlilega mikið að vinna þennan leik út af öllu þessu rugli“
HK vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur gegn KR. Heimamenn voru tveimur mörkum undir í hálfleik en sneru taflinu við í seinni hálfleik og unnu. Eiður Gauti Sæbjörnsson, leikmaður HK, var í skýjunum eftir leik.