
Besta deild karla

Umfjöllun og viðtöl: HK - Víkingur 1-2 | Sigurganga Víkinga hélt áfram gegn HK-ingum
Víkingur Reykjavík vann í kvöld 2-1 sigur á nýliðum HK í Bestu deild karla. Leikið var í Kórnum en sigur Víkinga er sá áttundi í átta leikjum á tímabilinu og er liðið eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Leik ÍBV og FH frestað til mánudags
Leik ÍBV og FH, sem fara átti fram á Hásteinsvelli á sunnudaginn klukkan 16:00 hefur verið frestað til mánudags.

Kjartan Henry dæmdur í bann fyrir olnbogaskotið
Aga- og úrskurðanefnd KSÍ hefur dæmd FH-inginn Kjartan Henry Finnbogason í eins leiks bann vegna atviks í leik FH og Víkings í síðustu umferð Bestu deildarinnar.

Breiðablik mætir FH í bikarnum
Dregið var í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í hádeginu en sextán liða úrslitin kláruðust í gærkvöldi.

Adam Ægir komið að flestum mörkum og Nikolaj Hansen unnið langflest skallaeinvígi
Þriðjungur Bestu deildar karla er nú búinn og því er tilvalið að skoða hvaða leikmenn skora hæst í helstu tölfræði þáttum deildarinnar.

Lykilmaður Keflavíkur frá næstu mánuði
Nacho Heras, varnarmaður Keflavíkur í Bestu deild karla í knattspyrnu, verður frá næstu 2-3 mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 0-2 tapi liðsins gegn HK í síðustu umferð.

Mál Kjartans Henry fyrir aganefnd KSÍ
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, hefur vísað máli Kjartans Henry Finnbogasonar, framherja FH, til aganefndar sambandsins.

„Ein ákvörðun hér eða þar sem getur ráðið úrslitum“
Ingvar Jónsson og félagar í Víking hafa byrjað Íslandsmótið í fótbolta af miklum krafti. Svo miklum raunar að Víkingar virðast ætla að stinga önnur lið deildarinnar af. Þá hefur Ingvar aðeins fengið á sig eitt mark í fyrstu sjö umferðum Bestu deildarinnar.

Meistararnir komnir aftur á sinn völl
Leikmenn Breiðabliks eru farnir að geta æft og spilað á nýjan leik á heimavelli sínum, Kópavogsvelli, eftir að nýtt gervigras var lagt á völlinn.

Arnar biðst afsökunar | „Ekkert eðlilega hallærisleg ummæli“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur í knattspyrnu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við Fotbolti.net í gær.

„Ekkert nálægt því að vera eins og píkur“
Ummæli þjálfara Víkings í úrvalsdeild karla þar sem hann sagði sig og leikmenn sína hafa verið „algjörar píkur í fyrra“ hafa vakið mikla athygli. Keppast netverjar við að gagnrýna ummælin og segja líkingarmálið í ósamræmi við veruleikann.

Mikið um meiðsli í Keflavík
Ekki nóg með að Keflavík hafi tapað 0-2 gegn HK á „heimavelli“ heldur yfirgaf spænski varnarmaðurinn Nacho Heras völlinn í skjúkrabíl ásamt því að fyrirliði liðsins, Magnús Þór Magnússon, og Dagur Ingi Valsson gátu ekki klárað leikinn vegna meiðsla og eymsla.

Arnar þakkar Heimi fyrir | „Vorum algjörar píkur í fyrra“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla, er þakklátur Heimi Guðjónssyni þjálfara FH eftir að sá síðarnefndi sagði lið Víkings vera það grófasta í deildinni. Arnar segir þetta hrós fyrir sína menn því þeir hafi verið „algjörar píkur í fyrra.“

Kjartan harmar sparkið en segir olnbogaskotið óviljaverk
Kjartan Henry Finnbogason hefur sent frá sér skilaboð í kjölfar þess að hafa víða verið sakaður um fautaskap í leik með FH gegn Víkingi í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöld.

„Hann lítur til hliðar og lemur hann í andlitið“
Það var mikill hiti í mönnum í leik Víkings og FH í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og eftir leikinn töluðu báðir þjálfarar liðanna, Arnar Gunnlaugsson og Heimir Guðjónsson, um grófan leik andstæðinganna.

Sjáðu þrumu Örvars beint úr aukaspyrnu og öll hin mörkin úr Bestu í gær
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og lauk þar með sjöundu umferð deildarinnar. Hér má sjá mörkin úr leikjunum í gær.

„Gekk einfaldlega allt upp hjá okkur í dag“
Fylkir vann glæsilegan 3-1 sigur á Fram í Bestu deild karla. Fyrir leik voru fyrstu bikarhafar Fylkis heiðraðir og strákarnir náðu í þrjú stig fyrir þá hér í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson var að vonum ánægður með sigurinn og sagði að þetta hafi verið einn af þessum leikjum þar sem allt gekk upp.

„Arnar Gunnlaugsson talar oft mikið og Víkingur er grófasta liðið í deildinni“
Heimir Guðjónsson var ánægður með síðari hálfleik sinna manna eftir 2-0 tap FH gegn toppliði Víkings í Fossvogi. Heimir var hins vegar ekki parsáttur með ummæli Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, um að FH-ingar hafi komið út í síðari hálfleikinn til að meiða leikmenn Víkinga.

„Ef þú ætlar að gera það segi ég bara „Fuck you“ og við svörum í sömu mynt“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem sitja á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu, var allt annað en sáttur með FH-inga í kvöld. Sagði Arnar að andstæðingur kvöldsins hefði einfaldlega lagt upp úr að meiða sína menn.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir – Fram 3-1 | Heimamenn komu til baka og lyftu sér af botninum
Fylkir kom til baka gegn Fram í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að lenda 0-1 undir. Sigur Fylkis þýðir að KR er komið á botn Bestu deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 2-0 | Gestirnir náðu að velgja toppliðinu undir uggum en sjöundi sigurinn í röð staðreynd
Víkingur náði inn tveimur mörkum í fyrri hálfleik sem dugðu til sigurs í dag gegn FH í sjöundu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leiknum er best lýst sem leik tveggja hálfleika þar sem heimamenn voru betri í þeim fyrri en FH gerði mjög vel í seinni án þess að uppskera eftir erfiði.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - HK 0-2 | Gott gengi HK heldur áfram meðan heimamenn eru heillum horfnir
HK bar sigurorð af Keflavík í 7. umferð Bestu deildar karla í Keflavík í dag. Leikurinn endaði 2-0 og voru það Arnþór Ari Atlason og Örvar Eggertsson sem skoruðu mörk gestanna.

Umfjöllun og viðtöl: KA – Valur 0-4 | Lærisveinar Arnars léku sér að Akureyringum
Valur vann stórsigur á KA í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í dag, leikar enduðu 4-0 fyrir gestina. Arnar Grétarsson stýrði KA á síðustu leiktíð en stýrir nú Valsmönnum. Lærisveinar hans sýndu allar sínar bestu hliðar í leik dagsins.

„Það vill enginn spila á svona fótboltavöllum“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þurfti að sætta sig við 1-0 tap á móti Breiðablik á Meistaravöllum í dag. Hann var svekktur eftir leikinn en þetta var baráttuleikur sem gat fallið báðum megin að mati Rúnars.

„Stjórnuðum leiknum frá upphafi til enda“
„Ég er gríðarlega ánægður. Þetta er einn af erfiðustu útivöllunum að koma á og að spila eins og við gerðum er frábært,“ sagði Arnar Grétarsson þjálfari Vals eftir 4-0 sigur á KA mönnum á Greifavellinum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KR – Breiðablik 0-1 | Gísli Eyjólfs hetja Blika
Breiðablik vann torsóttan sigur á móti KR í Vesturbænum í dag í 7. umferð Bestu deildar karla. Gísli Eyjólfsson reyndist hetja Íslandsmeistaranna með marki á 82. mínútu leiksins og endaði leikurinn 1-0.

Björn Berg: „Góð fyrirheit fyrir komandi átök“
Björn Berg Bryde skoraði fyrsta mark Stjörnunnar í 4-0 sigri gegn ÍBV á Samsung vellinum í Garðabæ í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – ÍBV 4-0 | Heimamenn gengu frá Eyjamönnum í seinni hálfleik
Stjarnan vann öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti ÍBV í Bestu-deild karla í knattspyrnu í dag. Stjörnumenn mættu með breytt þjálfarateymi til leiks eftir að Ágúst Gylfason var látinn fara nýverið, en Garðabæjarliðið gekk frá Eyjamönnum eftir hálfleikshléið.

„Ef ég segi sannleikann þá verð ég sakaður um að væla“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, segir að erfitt gæti reynst fyrir hans menn að spila á grasvelli KR-inga þegar liðin mætast í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í dag.

Fjórir Valsarar í liði fyrsta fjórðungs Bestu deildarinnar
Strákarnir í Þungavigtinni gerðu upp fyrsta fjórðung í Bestu deild karla og völdu bestu menn og lið fjórðungsins. Þá var veikasti hlekkurinn einnig valinn. Víkingurinn Oliver Ekroth var bestur að mati strákanna og Hlynur Freyr Karlsson Valsari var valinn sá besti ungi eftir mikla samkeppni frá Ísaki Andra Sigurgeirssyni í Stjörnunni.