Spænski boltinn
252 253 254 255 256 257 258 259 260 … 267 ›
Ruud Van Nistelrooy á leið til Real Madrid Spænska dagblaðið Marca heldur því fram í dag að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy geti gengið í raðir Real Madrid frá Manchester United fyrir upphæð nálægt 11 milljónum punda. Engar fréttir hafa borist frá Englandi til að staðfesta þetta en lið Real Madrid er með hverjum deginum orðað við fleiri leikmenn í ensku úrvalsdeildinni. Sport 13.7.2006 14:41
Arsenal líklegast Umboðsmaður argentínska framherjans Javier Saviola hjá Barcelona segir að allt bendi til þess að hann gangi í raðir Arsenal í sumar. Saviola var í eldlínunni með argentínska landsliðinu á HM og var lykilmaður í liði Sevilla sem vann sigur í Evrópukeppni félagsliða í vor, en þar var hann sem lánsmaður. Sport 12.7.2006 16:25
Cannavaro á leið til Real Madrid? Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid segir að það sé aðeins dagaspursmál hvenær félagið landi varnarjaxlinum og fyrirliða ítalska landsliðsins, Fabio Cannavaro. Nýráðinn þjálfari Real þekkir Cannavaro vel frá dögum sínum hjá Juventus og eru menn í herbúðum Real bjartsýnir á að landa hinum smáa en knáa 32 ára gamla miðverði fljótlega. Fótbolti 11.7.2006 16:40
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. Fótbolti 10.7.2006 15:49
Hefur fulla trú á stjörnunum Fabio Capello hefur þegar hafið störf hjá nýja félaginu sínu Real Madrid og segist standa fullkomlega við bakið á leikmönnum á borð við Raul, David Beckham og Ronaldo. Sport 6.7.2006 20:37
Bolton og Arsenal sýna áhuga Umboðsmaður Argentínumannsins Javier Saviola segir að Arsenal og Bolton í ensku úrvalsdeildinni hafi sýnt leikmanninum áhuga, sem og lið Pananthinaikos í Grikklandi. Saviola er samningsbundinn Barcelona, en umboðsmaður hans segir ekkert koma til greina fyrir leikmanninn nema að spila á Spáni eða Englandi. Sport 5.7.2006 18:01
Chelsea klagar Real Madrid til FIFA Nú fyrir stundu greindi fréttavefur BBC frá því að ensku meistararnir Chelsea væru búnir að senda FIFA kæru vegna meintra ólöglegra viðræðna spænska félagsins Real Madrid við hollenska kantmanninn Arjen Robben. Sport 5.7.2006 16:26
Capello tekinn við Real Madrid Þjálfarinn sterki Fabio Capello hefur tekið við þjálfun spænska stórliðsins Real Madrid. Þetta var staðfest á blaðamannafundi í Madrid í dag. Capello var áður hjá liði Juventus á Ítalíu þar sem hann gerði liðið að tvöföldum meisturum, en eins og flestir vita á ítalska félagið nú undir högg að sækja vegna spillingarmálsins stóra. Capello er öllum hnútum kunnugur á Bernabeu, þar sem hann stýrði Real til sigurs í spænsku deildinni þegar hann stýrði liðinu árið 1997. Sport 5.7.2006 15:24
Morientes komin til Valencia Spænski framherjinn Fernando Morientes er genginn formlega í raðir Valencia fyrir um þrjár milljónir punda eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag. Morientes náði sér aldrei á strik í ensku úrvalsdeildinni og segist fagna nýjum kafla í lífi sínu. Sport 5.7.2006 15:04
Viss um að landa Fabregas Ramon Calderon, nýkjörinn forseti Real Madrid, segist 70% viss um að geta landað miðjumanninum efnilega Cesc Fabregas frá Arsenal á næstunni. Calderon lýsti því yfir í kosningabaráttunni að hann ætlaði að koma pilti til heimalandsins á ný, en ljóst er að Arsenal verður tregt til að láta þennan frábæra knattspyrnumann renna sér úr greipum. Sport 5.7.2006 14:47
Fabregas spenntur yfir áhuga Real Madrid Umboðsmaður táningsins efnilega Cesc Fabregas hjá Arsenal, segist ekki geta neitað því að skjólstæðingur hans sé spenntur yfir miklum áhuga spænska stórliðsins Real Madrid á að fá hann í sínar raðir. Nýkjörinn forseti Real hefur lýst því yfir að hann ætli að krækja í stjörnuna ungu, en hann er með langtímasamning við Arsenal og það verður því að teljast nokkuð langsótt. Sport 4.7.2006 17:50
Forsetaframbjóðendur spara ekki yfirlýsingarnar Lorenzo Sanz, einn forsetaframbjóðendanna hjá Real Madrid, fullyrðir að hann sé búinn að ná samkomulagi við fjölda sterkra leikmanna um að ganga til liðs við félagið ef hann verður kjörinn forseti. Hann fullyrðir að ef hann nái kjöri, muni hann fá menn á borð við enska landsliðsmanninn Michael Carrick, Gianluca Zambrotta frá Ítalíu og Brasilíumanninn Emerson svo einhverjir séu nefndir. Sport 29.6.2006 15:36
Segist vilja fara til Real Madrid Spænska dagblaðið Marca birtir í dag viðtal við portúgalska vængmanninn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, þar sem haft er eftir honum að hann vilji ganga í raðir Real Madrid. Ronaldo segist vilja hefja viðræður um að fara til Spánar ef Juan Miguel Villar vinnur forsetakosningarnar hjá Real Madrid sem verða innan skamms. Sport 27.6.2006 13:42
Eiður Smári samdi við Barcelona Fremsti knattspyrnumaður Íslands í dag, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur samið við spænska stórliðið Barcelona til þriggja ára, en félagið er Spánar- og Evrópumeistari. Þar með lýkur sex ára veru Eiðs Smára hjá Chelsea þar sem hann átti farsælan feril. Fótbolti 17.6.2006 00:19
Ekki hægt að segja nei við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen sagði að tækifærið til að ganga í raðir Evrópumeistara hefði verið of gott til að hafna því. Eiður gekk formlega í raðir spænska risans í dag eftir að hafa gengist undir læknisskoðun. Kaupverðið var rúmur milljarður króna og samningurinn er til fjögurra ára. Sport 14.6.2006 20:13
Eiður búinn að skrifa undir hjá Barcelona Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Frá þessu var greint í fréttum NFS nú fyrir stundu. Jón Örn Guðbjartsson var staddur á blaðamannafundinum í Katalóníu og sagði gríðarlega stemmingu í kring um nýjustu kaup spænsku meistaranna. Kaupverðið er rúmur milljarður króna og mun Eiður spila í treyju númer 7 og tekur við númerinu sem Henrik Larsson spilaði í á síðustu leiktíð. Sport 14.6.2006 17:18
Samingur Eiðs kynntur fyrir fjölmiðlum innan skamms Blaðamannafundur spænska knattspyrnuliðsins Barcelona vegna samningsins við Eið Smára Guðjohnsen hefst klukkan fjögur. Fundurinn átti upprunalega að vera klukkan þrjú, en honum var frestað um klukkustund vegna leiks Spánverja og Úkraínu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þar á að kynna fjögra ára samning Eiðs Smára við Evrópumeistara Barcelona. Innlent 14.6.2006 15:36
Risatilboð í Torres í vændum? Breska blaðið Manchester Evening News hefur greint frá því að Manchester United sé að undirbúa risatilboð í spænska framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Blaðið heldur því fram að enska liðið muni bjóða 25 milljónir punda í spænska landsliðsmanninn fljótlega, en hann var einmitt einn af markaskorurum liðsins í sigrinum á Úkraínumönnum á HM í dag og hefur verið einn eftirsóttasti framherji heimsins í nokkur ár. Sport 14.6.2006 15:27
Stóðst læknisskoðun hjá Barcelona Nú styttist í að haldinn verði blaðamannafundur hjá spænska liðinu Barcelona þar sem tilkynnt verða kaup félagsins á landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifar undir fjögurra ára samning nú innan stundar. Sport 14.6.2006 14:27
Eiður skrifar undir samning við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skrifar í dag undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Fréttamannafundur vegna málsins verður klukkan þrjú. Innlent 14.6.2006 08:54
Eiður í háttinn fyrir ellefu Spænsku dagblöðin sem hafa fullyrt í hverri fréttinni á fætur annarri að Eiður Smári Guðjohnsen sé á leið til Barcelona eru nú einnig farin að velta sér upp úr persónulegum lífsvenjum íslenska landsliðsfyrirliðans. Sport 13.6.2006 16:45
Irureta tekur við Real Betis Hinn gamalreyndi þjálfari Javier Irureta hefur verið ráðinn þjálfari spænska úrvalsdeildarliðsins Real Betis. Irureta stýrði síðast liði Deportivo á árunum 1998-2005 við góðan orðstír og gerði liðið m.a. að Spánarmeistara árið 2000. Sport 10.6.2006 17:29
Fleiri spænsk lið inni í myndinni Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina. Sport 10.6.2006 13:59
Ætlar ekki að bjóða í Lampard Forráðamenn Evrópumeistara Barcelona hafa vísað fregnum dagsins í dag á bug og segja félagið ekki vera að undirbúa tilboð í miðjumanninn Frank Lampard. Sport 8.6.2006 18:25
Carlos í salti fram yfir kosningar Forráðamenn Real Madrid gáfu það upp í samtali við breska fjölmiðla í dag að brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos færi ekki frá félaginu fyrr en eftir forsetakosningarnar sem fyrirhugaðar eru þann 2. júlí næstkomandi. Carlos hefur verið orðaður sterklega við ensku meistarana í Chelsea, en nú verður einhver bið á því að lausn fáist í máli hans. Sport 6.6.2006 18:04
Baldasano ætlar að ráða Eriksson Arturo Baldasano, sem býður sig fram í embætti forseta Real Madrid í annað sinn, segist hafa gert munnlegt samkomulag við Sven-Göran Eriksson um að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá félaginu, nái kann kosningu. Sport 6.6.2006 14:50
Eiður Smári í Kuwait Flestir Íslendingar bíða nú spenntir eftir því að vita hver næsti áfangastaður knattspyrnuhetjunnar Eiðs Smára Guðjohnsen verður en búist er við að tilkynnt verði um vistaskipti hans frá Chelsea á allra næstu dögum. Athygli vekja tvær fréttagreinar um Eið Smára á fréttavefnum Vitalfootball en þar segir m.a. að Eiður Smári hafi hafnað boði sjónvarpsstöðvar á Íslandi um að lýsa leikjum á HM. Sport 2.6.2006 00:43
Barcelona talið líklegt til að hreppa Eið Smára Nú gerist sá orðrómur æ háværari á Englandi og á Spáni að landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen gangi í raðir Spánarmeistara Barcelona í sumar. Ekkert hefur fengist staðfest í þessum efnum enn sem komið er, en talið er að kaupverð og launakjör gætu orðið spænska liðinu fjötur um fót. Sport 31.5.2006 15:06
Morientes semur við Valencia Spænski framherjinn Fernando Morientes hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við forráðamenn Valencia og er því formlega orðinn leikmaður liðsins. Morientes var keyptur frá Liverpool á dögunum og var kaupverðið sagt vera um 3 milljónir punda. Sport 27.5.2006 15:58
Morientes ekki orðinn leikmaður Valencia Yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia tók það fram í dag að þó félagið hefði náð samkomulagi við Liverpool um kaup á spænska framherjanum Fernando Morientes, sé hann ekki orðinn leikmaður Valencia ennþá, því enn sé nokkuð í land með að semja um kaup og kjör við leikmanninn sjálfan. Sport 26.5.2006 15:09