Spænski boltinn

Kostar einn milljarð evra að kaupa upp nýjan samning Pedri hjá Barcelona
Spænski táningurinn Pedri hefur skrifað undir nýjan samning við Barcelona en félagið staðfesti samninginn í dag.

Gleymdu stjörnurnar skoruðu í æfingarleik með Barcelona
Sergio Aguero opnaði markareikninginn sinn hjá Barcelona í dag í æfingarleik á móti þriðju deildarliði.

Simeone: Ég spurði Suarez hvort Messi væri til í að koma
Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atletico Madrid, hafði áhuga á því að fá Lionel Messi til liðsins þegar Argentínumaðurinn yfirgaf Barcelona í haust. Messi hefur sagt frá því sjálfur að mörg félög hafi forvitnast um hann.

AS líkir Andra Lucasi við Haaland
Spænska stórblaðið AS segir að Andri Lucas Guðjohnsen minni um margt á Erling Braut Haaland og muni mögulega leika sinn fyrsta leik fyrir aðallið Real Madrid í vetur.

Ein af stjörnum Real Madríd vill nýta fótbolta til að auka jafnrétti og hjálpa börnum úr fátækt
Vinicius Júnior, leikmaður Real Madríd og brasilíska landsliðsins, hefur komið á laggirnar smáforriti sem ætlað er að hjálpa börnum sem eiga við námsörðuleika að stríða í heimalandi hans, Brasilíu.

Barcelona mun ekki spila á Camp Nou í heilt ár
Það gengur mikið á hjá spænska knattspyrnuliðinu Barcelona þessa dagana. Uppfæra þarf heimavöll liðsins, Camp Nou, og ljóst er að Börsungar muni þurfa að fara 12 mánuði án þess að spila heimaleik.

Laporta vonaðist til að Messi mynda spila launalaust
Joan Laporta, forseti spænska knattspyrnuliðsins Barcelona, vonaðist til þess að Lionel Messi myndi spila fyrir félagið launalaust í vetur. Allt kom fyrir ekki og Messi samdi við París Saint-Germain.

Mamma Mbappe „lekur“ fréttum af stráknum sínum í fjölmiðla
Franski knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappe er kominn í viðræður við Paris Saint-Germain um nýjan samning samkvæmt heimildum innst úr fjölskylduhringnum hans.

Aguero og Depay að kenna að Messi fór frá Barcelona
Barcelona hefði getað haldið Lionel Messi hjá félaginu að mati forseta La Liga en þá hefðu þeir þurft að sleppa því að ná í tvo stjörnuleikmenn í sumar.

Barcelona gæti reynt að fá Raheem Sterling í janúar
Sterling er ekki lengur fastamaður hjá Pep Guardiola hjá Manchester City og það er áhugi á enska landsliðsmanninum í Katalóníu ef marka má fréttir þaðan.

Loks búinn að finna sér nýtt lið
Hægri bakvörðurinn Serge Aurier er loks búinn að finna sér nýtt lið en hann fór frítt frá Tottenham Hotspur í sumar. Fílabeinsstrendingurinn samdi við spænska úrvalsdeildarfélagið Villareal í dag.

Bikar í boði fyrir fjögur evrópsk landslið í þessari viku
Þú vinnur ekkert í október hefur verið hent fram nokkrum sinnum í gegnum tíðina. Þetta árið er það ekki alveg rétt því fjögur af bestu landsliðum heims keppa um bikar í þessum landsleikjaglugga.

Neitar því að hafa verið að leika símtalið við Koeman þegar hann fagnaði
Luis Suarez var maðurinn á bak við sigur Atletico Madrid á Barcelona í spænsku deildinni um helgina og auðvitað þótti „ekki fagn“ hans senda skýr skilaboð til hans gamla félags.

Óvænt tap Real í Katalóníu
Real Madríd tókst ekki að slíta sig frá nágrönnum sínum í Atlético á toppi La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, er liðið heimsótti Espanyol í Katalóníu. Fór það svo að heimamenn unnu óvæntan 2-1 sigur.

Suárez ýtti Börsungum úr öskunni í eldinn | Juventus og Inter með útisigra
Spánarmeistarar Atlético Madríd unnu öruggan 2-0 sigur á lánlausum Börsungum er liðin mættust í La Liga í kvöld. Í Serie A unnu Ítalíumeistarar Inter Milan góðan 2-1 útisigur á Sassuolo og Juventus vann gríðar mikilvægan 1-0 útisigur í borgarslagnum um Tórínó.

Koeman: Ekki hægt að bera þetta lið við Barcelona lið fyrri tíma
Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, situr líklegast í heitasta þjálfarastólnum í evrópska fótboltanum í dag en liðið hans steinlá 3-0 á móti Benfica í Meistaradeildinni í gær og er bæði stigalaust og markalaust efir tvo leiki í keppninni.

Var vallarstarfsmaður fyrir ári síðan en afgreiddi Real Madrid í vikunni
Ævintýrabragur er yfir óvæntustu stjörnu Meistaradeildarinnar í vikunni. Sebastien Thill tryggði sér fyrirsagnirnar út um allan heim eftir frábært sigurmark sitt á Santiago Bernabeu leikvanginum á þriðjudagskvöldið.

Launaþak Barcelona nú aðeins einn sjöundi af launaþaki Real Madrid
Lengi getur vont versnað. Leikur Barcelona er hruninn og fjárhagsvandræðin virðast ætla að þrengja enn frekar að liðinu. Nú verður líklegast enn erfiðara fyrir félagið að vera samkeppnishæft við þau bestu í Evrópu eins og krafan er í Barcelona.

Håland gaf syni Suárez áritaða treyju í afmælisgjöf
Sonur Luis Suárez fékk góða sendingu í tilefni átta ára afmælis síns; áritaða treyju frá markahróknum Erling Håland.

Klæddist treyjunni hans Messi en fann enga pressu: Ævintýraendurkoma
Táningurinn Ansu Fati snéri aftur með stæl þegar Barcelona vann lífsnauðsynlegan sigur í spænsku deildinni um helgina.

Börsungar aftur á sigurbraut
Barcelona vann í dag öruggan 3-0 sigur gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leikinn höfðu Börsungar aðeins unnið tvo af fyrstu fimm leikjum tímabilsins, en eru nú að rétta sinn hlut.

Villareal sótti stig gegn Madrídingum
Real Madrid hefur byrjað tímabilið af miklum krafti, en þeim tókst ekki að sækja sigur á heimavelli gegn Villareal. Lokatölur 0-0, en þetta var fyrsti leikurinn á tímabilinu sem að Real Madrid mistekst að skora.

Koeman sá rautt og sængin nánast uppreidd
Staða Ronalds Koeman sem knattspyrnustjóra Barcelona er í lausu lofti og næstu klukkustundir gætu ráðið úrslitum, segir spænska blaðið Marca.

Forseti Barcelona að missa þolinmæðina á Koeman
Joan Laporta, forseti Barcelona, viðurkennir að hann sé að missa þolinmæðina á Ronald Koeman, knattspyrnustjóra liðsins.

Asensio með þrennu í stórsigri Real
Real Madríd vann 6-1 stórsigur á Mallorca í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld. Sigurinn lyfti Real upp á topp deildarinnar.

Suarez hetja spænsku meistarana gegn tíu leikmönnum Getafe
Spánarmeistarar Atlético Madrid heimsóttu Getafe í sjöttu umferð La Liga í kvöld. Luis Suarez var hetja Atlético, en hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri eftir að Getafe missti mann af velli.

Ronald Araujo hetja Barcelona
Barcelona var hársbreidd frá því að tapa fyrsta deildarleik tímabilsins í kvöld er Granada kom í heimsókn á Camp Nou. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli þar sem Ronald Araujo jafnaði metin í uppbótartíma.

Benzema og Vinícius sáu til þess að Real heldur toppsætinu
Real Madrid vann dramatískan 2-1 útisigur á Valencia í kvöld. Liðið var 1-0 undir þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Tíu leikmenn spænsku meistaranna tóku stig gegn Bilbao
Spánarmeistarar Atletico Madrid tóku á móti Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu ú dag. Heimamenn spiluðu manni færri seinustu mínúturnar í leik sem endaði með markalausu jafntefli.

Baulað á Griezmann í fyrsta heimaleiknum eftir endurkomuna til Atlético
Antoine Griezmann fékk ekki beint hlýjar móttökur frá stuðningsmönnum Atlético Madrid í fyrsta heimaleik fyrir félagið eftir að hann kom aftur frá Barcelona.