Verðlag
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 31 ›
Bandarískur sjónvarpsmaður gagnrýnir íslenskt matarverð Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Rick Steves, sem einnig hefur gefið út ferðahandbækur, heimsótti Ísland á dögunum. Í Facebook-færslu um dvölina ber hann saman verðlag á veitingastöðum og í matvörubúðum en að hans sögn er verðmunurinn talsverður. Matur 5.8.2023 22:01
„Við í Framsókn erum sultuslök“ Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra virðist ekki kippa sér mikið upp við yfirlýsingar um titring innan ríkisstjórnarinnar. Þau í Framsóknarflokknum séu róleg og ánægð með samstarfið í ríkisstjórninni. Innlent 3.8.2023 16:39
Bankarnir geti lækkað vexti miðað við hagnaðinn Formaður Neytendasamtakanna segir ljóst að stóru viðskiptabankarnir geti lækkað vexti sína miðað við hve mikið þeir hafa hagnast á fyrri hluta ársins. Bankarnir eigi ekki að vera undanskildir þegar kallað er eftir aðhaldi. Neytendur 29.7.2023 12:10
Spá 50 punkta vaxtahækkun vegna stöðunnar á vinnumarkaði Þrátt fyrir það að árstaktur verðbólgunnar hafi lækkað þrjá mánuði í röð er líklegasta niðurstaðan á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að nefndin hækki vexti um 50 punkta. Þetta er mat skuldabréfamiðlunar Arion banka sem bendir á að Seðlabankinn geti ekki horfti fram hjá því að vinnumarkaðurinn er enn á „yfirsnúningi“. Innherji 25.7.2023 07:48
Minni bjórglös og buddan tæmist hraðar Bjórglösin á mörgum börum miðbæjarins hafa minnkað. Stór bjór, sem áður var í fimm hundruð millilítra glösum, er nú kominn í fjögur hundruð millilítra glös. Um er að ræða tuttugu prósent minnkun bjórglasa. Neytendur, sérstaklega þeir í yngri kantinum, eru ósáttir við þessa þróun enda hefur bjórverðið hækkað töluvert á sama tíma. Neytendur 21.7.2023 14:15
Nýjar verðbólgutölur „mjög góð tíðindi“ Hagfræðingur segir uppfærðar verðbólgutölur Hagstofunnar gefa góð fyrirheit og að stýrivaxtahækkanir séu að bera árangur. Ársverðbólga í júlí mælist minni en sérfræðingar höfðu spáð. Neytendur 21.7.2023 12:07
Verðbólgan komin niður í 7,6 prósent Ársverðbólga mælist nú 7,6 prósent og minnkar töluvert frá júnímánuði þar sem hún mældist 8.9 prósent. Verðbólgan mælist þó nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð. Neytendur 21.7.2023 09:40
Kólnun á húsnæðismarkaði dragi verðbólgu niður fyrir spár Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að samdráttur í íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu geti orðið til þess að verðbólga hjaðni hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Þó megi búast við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti í næsta mánuði. Neytendur 19.7.2023 11:54
Hækkun launa í Vinnuskólanum ekki forgangsmál Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar segir hækkun launa unglinga í Vinnuskólanum ekki forgangsmál. Það sé ánægjuefni að skólanum hafi verið haldið gangandi í miklum hagræðingaraðgerðum borgarinnar. Innlent 13.7.2023 22:10
„Við höfum ekkert að fela“ Forstjóri Húsasmiðjunnar hafnar því að vörur hafi verið hækkaðar í verði til þess eins að telja neytendum trú um að afsláttur á sumarútsölu væri meiri. Valdar vörur í sumarbæklingi hafi farið á almennt listaverð í nokkra daga áður en allsherjarútsala hófst. Fyrirtækið hafi ekkert að fela. Neytendur 30.6.2023 13:01
Vörur á mesta afslættinum voru hækkaðar í verði í vikunni Verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ kom sér upp sjálfvirkum gagnagrunni verðlags hjá hinum ýmsu fyrirtækjum á dögunum. Á innan við viku nappaði hann stórfyrirtæki sem hækkaði verð fjölda vara til þess eins að blása til útsölu þremur dögum seinna. Neytendur 29.6.2023 22:08
Framboð íbúða eykst enn og sölutíminn lengist Framboð íbúða hefur haldið áfram að aukast, aðallega vegna lengri sölutíma, og þá hefur þeim íbúðum fjölgað hlutfallslega sem seljast undir ásettu verði. Íbúðum til sölu hefur fjölgað um 300 á þremur mánuðum og eru nú 1.800 talsins. Viðskipti innlent 29.6.2023 09:01
Merki um minni óvissu en ótímabært að fagna sigri yfir verðbólgu Nýjasta verðbólgumæling Hagstofu Íslands bendir til þess að óvissan um verðbólguna sé að minnka að sögn sjóðstjóra hjá Akta en aftur á móti er ótímabært að fagna sigri í ljósi þess að verðbólguþrýstingurinn mælist á breiðari grunni en í maí. Innherji 28.6.2023 16:59
Verðbólga loksins á undanhaldi og gæti hjaðnað hratt Verðbólga virðist vera í rénun og hefur ekki verið minni frá því í júní í fyrra og er nú 8,9 prósent. Hagfræðingur greiningardeildar Íslandsbanka segir þetta góðar fréttir og ef allt gangi að óskum gæti verðbólga verið komin niður í 8 prósent um áramótin. Innlent 28.6.2023 13:31
Hægt að ná verðbólgu hratt niður með miklum fórnarkostnaði Fyrrverandi seðlabankastjóri segir fólk þurfa hætta að leita af sökudólgum eða einföldum skýringum í umræðu um verðbólguna. Hægt sé að keyra hana niður með miklum hraða ef vilji sé fyrir hendi en ekki án mikils fórnarkostnaðar. Viðskipti innlent 26.6.2023 13:30
Allir tapa á verðbólgunni Eftir að verðbólga tók við sér hefur skapast umræða um orsakir hennar og hvort ekki væri hægt að halda henni í skefjum ef fyrirtæki myndu einungis sleppa því að hækka verð. Ef þau gerðu það væri jú engin verðbólga og málið væntanlega leyst, eða hvað? Skoðun 26.6.2023 13:01
Neysla og verðlag á yfirsnúningi á Íslandi Verð á mat og drykk var 42 prósentum hærra á Íslandi en að jafnaði hjá ríkjum Evrópusambandsins og töluvert hærra en á hinum Norðurlöndunum að Noregi undanskyldum. Innlent 22.6.2023 11:58
Ís í brauðformi búinn að rjúfa þúsund króna múrinn Stór ís í brauðformi með súkkulaðidýfu og lakkrískurli hefur rofið þúsund króna múrinn víða í ísbúðum á höfuðborgarsvæðinu á meðan stór bragðarefur kostar sum staðar meira en tvö þúsund krónur. Vísir gerði óformlega verðkönnun meðal nokkurra ísbúða en þar er skammt stórra högga á milli, ísinn hefur hækkað í verði eins og flestar vörur landsins. Neytendur 17.6.2023 20:00
Vinnuskólabörnin fá engar verðbætur Á fundi borgarráðs í gær var lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðbótarfjárheimild vegna launakostnaðar nemenda Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2023. Athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir því að laun nemenda hækki milli ára. Innlent 16.6.2023 14:05
Hvert er verðbólgan að fara? Stóra efnahagsmálið þessa dagana er verðbólgan. Ársverðbólgan í maí var 9,5% sem þýðir að eitthvað sem þú keyptir í maí í fyrra á 100 kr. kostar í dag 109.5 kr. Þetta virðist vera mjög einfalt en þegar nánar er skoðað er hægt að fara ansi langt ofan í kanínuholuna í þessum verðbólgufræðum. Skoðun 15.6.2023 11:01
Beyoncé kennt um aukna verðbólgu Verðbólga mældist 9,7 prósent í maí í Svíþjóð, sem er töluvert meira en spáð hafði verið. Verðhækkun hótelgistingar og veitinga leiddi verðlagshækkanir og koma stjórstjörnunnar Beyoncé gæti skýrt hækkunina. Lífið 14.6.2023 22:44
Spá talsverðri hjöðnun verðbólgu í júní Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni hjaðna hratt á næstu mánuðum og að ársverðbólga muni mælast 8,7 prósent í júnímánuði. Það yrði í fyrsta skipti í heilt ár þar sem ársverðbólgan fer undir níu prósent. Viðskipti innlent 14.6.2023 13:55
Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. Neytendur 9.6.2023 20:01
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. Neytendur 9.6.2023 13:30
Segja 2,5 prósent ekki duga til og krefjast hækkunar upp á 4,2 prósent Öryrkjabandalag Íslands krefst þess að lífeyrir almannatrygginga hækki um 4,2 prósent þann 1. júlí næstkomandi. Þau 2,5 prósent sem ríkisstjórnin leggur til í aðgerðapakka sínum dugi ekki til að vega upp á móti þrálátri verðbólgu og verja kaupmátt. Innlent 9.6.2023 08:32
Seðlabankastjóri væntir frekari aðgerða gegn verðbólgu í fjárlögum Seðlabankastjóri segir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu jákvæðar. Þær væru eitt skref af mörgum sem taka verði og væntir frekari aðgerða í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þá hvetur Seðlabankinn lánastofnanir til að nýta aukinn veðrétt heimila eftir mikla hækkun húsnæðisverðs til að breyta skilmálum lána. Innlent 7.6.2023 19:21
Neytendur geta borið saman matvöruverð þriggja verslunarrisa Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar. Neytendur 7.6.2023 15:38
Seðlabankinn hvetur lánastofnanir til sveigjanleika Seðlabankastjóri segir aðgerðir bankans með vaxtahækkunum og hertum lánaskilurðum hafa kælt niður húsnæðismarkaðinn. Sömuleiðis hafi eignamyndun í íbúðarhúsnæði aukist. Brýnt sé að lánastofnanir bjóði lántakendum skilamálabreytingar á lánum miðað við þarfir hvers og eins, sérstaklega eftir að tímabil fastra vaxta á lánum rennur út. Innlent 7.6.2023 11:55
Bein útsending: Fjármálastöðugleikanefnd kynnir yfirlýsingu sína Seðlabankinn boðar til blaðamannafundar í dag en tilefnið er yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar. Fundurinn hefst klukkan 9:30 í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Viðskipti innlent 7.6.2023 09:33
Heimilin hugi að breytingu lánasamninga Fjármálastöðugleikanefnd brýnir fyrir lánveitendum og þar með einnig heimilunum að huga tímanlega að þyngri greiðslubyrði lántakenda til þess að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika. Vanskil í bankakerfinu séu þó enn lítil og rekstrarafkoma bankanna góð. Innlent 7.6.2023 08:42