![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar fór Björn Jörundur yfir það hvernig lagið Ég ætla brosa kom til sín.
Lóa Hjálmtýsdóttir, listakona og söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast, glímdi við þunglyndi á unglingsárum. Hún segir erfitt að leyfa sér gleði á meðan þjóðarmorð standi yfir og ástandið í heiminum virðist versna.
„Mér finnst eins og allt sem ég hef skrifað eða gert áður en ég hitti hann sé skrifað af einhverjum manni sem er að leita að einhverju eða syrgja eitthvað,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þætti Auðuns Blöndal, Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gærkvöldi.
Tónlistarkonan Bríet segist hafa lent í ýmsu á tónleikum sínum í gegnum tíðina. En það sem stendur mögulega upp úr var þegar einn tónleikagestur fróaði sér á miðjum tónleikum. Þetta kemur fram í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar á Stöð 2 sem var á sunnudagskvöldið.
Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson segir lífið hafa náð lágpunkti þegar hann var borinn út úr húsi sínu eftir nágrannadeilur og konan yfirgaf hann. Hann hafi verið allslaus á miðjum aldri.
Þriðja þáttaröðin af Tónlistarmönnunum okkar fer í loftið á Stöð 2 í ágúst. Auðunn Blöndal umsjónarmaður þáttanna segist virkilega spenntur að sýna þjóðinni þættina en undirbúningur og tökur hafa staðið yfir síðasta árið og er fyrsta stiklan úr þáttaröðinni nú komin í loftið.
Knattspyrnumennirnir Eyþór Aron Wöhler og Kristall Máni Ingason tóku óvænt höndum saman í hljóðveri og hafa nú gefið út glænýjan sumarsmell. Þeir leituðu til þekkts nafns í fótbolta- og tónlistarheiminum sér til auka, Loga Tómasson, einnig þekktur sem Luigi.
Valdimar Guðmundsson er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Hans undurfagra rödd hefur vakið athygli síðustu tíu ár hér á landi. Í þættinum Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gærkvöldi fékk Auðunn Blöndal að kynnast manninum betur.
„Það hafa náttúrlega verið alls konar kjaftasögur,“ segir Sigga Beinteins, ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar, sem var viðmælandi í nýjasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar.
„Ég var mjög opin og tók þátt í skemmtunum og spilaði í öllum partýum, en ég leit ekki endilega á þetta sem eitthvað sem ég ætlaði að gera,“ segir Andrea Gylfadóttir sem fór yfir glæstan tónlistarferilinn í nýjasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar.
„Ég kúkaði á mig uppi á sviði í Brussel,“ rifjar tónlistarmaðurinn Mugison upp, aðspurður hvert sé vandræðalegasta augnablik sem hann hafi upplifað uppi á sviði.
„Fólk heldur að ég sé með nefið upp í loftið og með tóman kjaft alltaf. Ég veit ekki hvað það er sko, en málið er að ég er kaldhæðinn,“ segir tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson.
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir var viðmælandi í fyrsta þætti af glænýrri þáttaröð af Tónlistarmönnunum okkar sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gær.
Árið 2023 byrjar með trompi á Stöð 2 en ný þáttaröð af Tónlistarmönnunum okkar fer í loftið nú í janúar. Auðunn Blöndal, umsjónarmaður þáttanna segir að von sé á sannkallaðri veislu þar sem áhorfendur fá að kynnast fremsta tónlistarfólki landsins á persónulegum nótum.
Tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir bar sigur úr bítum í Músíktilraunum 2022 sem fóru fram í Hörpu í gær. Þetta er fyrsta sinn sem einstaklingur sigrar keppnina, sem hefur verið haldin árlega í fjörutíu ár.
Síðasti gesturinn í þáttunum Tónlistarmennirnir okkar var sýndur í gærkvöldi á Stöð 2. Þar ræddi Auðunn Blöndal við Daníel Ágúst Haraldsson um feril hans í músíkinni en hann hefur bæði verið í Ný Dönsk í yfir 30 ár og lengi einnig komið fram með sveitinni GusGus.
Helgi Björnsson fór yfir ferilinn með Auðunni Blöndal í þáttunum Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gær.
Birgitta Haukdal var ein allra vinsælasta poppstjarna landsins í kringum aldamótin og það í nokkur ár. Hún kom ávallt fram með sveit sinni Írafár og voru vinsældirnar það miklar að framleidd var sérstök Birgittu dúkka sem var seld í verslunum Hagkaupa.
„Auðvitað kemur að því að allir verða ástfangnir og alveg rosalega mikið. Ég er að reyna sleppa því en ég klikkaðist,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson sem fjallað var um í Tónlistarmönnunum okkar á Stöð 2 í gær.
„Ég var komin með alveg rosalega fínan plötusamning með Jack Magic Orchestra hjá EMI og við spiluðum mikið út um allt í Bretlandi og Þýskalandi og algjör draumur í dós. Ég hefði getað hent mér fyrir björg fyrir þá músík,“ segir tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir sem var gestur Auðuns Blöndal í þættinum Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gærkvöldi.
„Mér finnst þetta besti tónlistarmaðurinn sem hefur komið fram á Íslandi í áratugi. Hann heitir Auður og og hann er hérna með okkur í kvöld,“ sagði Bubbi Morthens á Þorláksmessutónleikum sínum fyrir rúmlega ári.
Árið 2021 mun fara af stað með hvelli hjá fjölmiðlamanninum Auðunni Blöndal en hann fór af stað með þættina Tónlistamennirnir okkar á Stöð 2 í gær, verður tveggja barna faðir síðar á árinu og önnur þáttaröðin af Eurogarðinum fer í loftið.
Snemma á næsta ári mun Auðunn Blöndal fara af stað með nýja þætti sem nefnast Tónlistarmennirnir okkar og verða með svipuðu sniði og Atvinnumennirnir okkar.