Sambandsdeild Evrópu

Hjarta Guðmundar slær með St. Mirren: Mæta Val í kvöld
Þrátt fyrir að hjarta fyrrverandi landsliðsmannsins í knattspyrnu, Guðmundar Torfasonar, slái með skoska liðinu St. Mirren er erfitt fyrir hann halda ekki með íslenskri knattspyrnu í kvöld þegar að Valsmenn taka á móti skoska liðinu í fyrri leik þeirra í 2.umferð Sambandsdeildar Evrópu.

„Ef menn eru tilbúnir að fara út og deyja fyrir hver annan“
Stjörnumenn mæta eistneska liðinu Paide Linnameeskond í kvöld í fyrri leik liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Úrslitin gætu ráðið miklu um útkomu einvígsins.

„Verða örugglega fleiri lögreglumenn en áhorfendur“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir sína menn mæta reiða til leiks í Evrópuleik kvöldsins við Egnatia frá Albaníu. Hann hefur litlar áhyggjur af hegðun fólks í stúkunni.

Andstæðingar FCK eru „meira en bara pöbbalið“
FC Bruno's Magpies var stofnað á knæpu einni í Gíbraltar og er ekki mjög þekkt nafn í fótboltaheiminum enda ekki nema ellefu ára gamalt. Síðar í dag leikur liðið gegn FC Kaupmannahöfn í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Evrópuveisla á Stöð 2 Sport í kvöld
Óhætt er að segja að framundan sé spennandi Evrópukvöld hér landi. Fjögur Bestu deildar lið verða í eldlínunni í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu, leikir sem verða allir sýndir í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2.

„Erum búnir að skoða þá vel og það er fullt af fínum spilurum þarna“
„Gríðarlega mikil spenna. Klárlega, mér finnst við búnir að spila bara ágætlega undanfarið þó úrslitin hafi ekki verið að ganga með okkur. Þurfum bara að fá tuðruna í netið og þá held ég að við séum í góðum málum,“ sagði Aron Elís Þrándarsson, leikmaður Víkings, fyrir leik kvöldsins gegn Egnatia í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

„Hér stígum við fast á bensíngjöfina og höldum henni í botni í níutíu mínútur plús“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir að Kópavogsliðið ætli ekki að vera með neitt hálfkák í leiknum gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun.

Stjörnumenn úttroðnir af upplýsingum um næsta mótherja: „Það voru tveir fundir í gær“
Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, á von á því að leikirnir gegn Paide í forkeppni Sambandsdeildarinnar verði öðruvísi en leikirnir gegn Linfield.

Hert öryggisgæsla í Víkinni: „Finnst þetta aðeins of ýkt“
Hert öryggisgæsla verður bæði í Víkinni og á Kópavogsvelli annað kvöld er Evrópuleikir Víkings og Breiðabliks fara fram. UEFA bregst þannig við ólátum sem urðu á leik Vals við Vllaznia í Sambandsdeildinni á dögunum.

Víkingar og Blikar heppnari en Valsmenn og Stjörnumenn
Í dag kom í ljós hvaða lið bíða íslensku félaganna fjögurra takist þeim að komast áfram úr annarri umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta.

Loksins Evrópumark hjá Patrick Pedersen
Patrick Pedersen er mesti markaskorari Valsmanna frá upphafi en hann hafði beðið í meira en ellefu hundruð mínútur eftir marki í Evrópuleik.

„Það var enginn sirkus“
Það fór vel um Valsmenn í Albaníu eftir mikinn viðbúnað í aðdraganda leiksins við Vllaznia í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld. Þjálfari liðsins er ánægður með sigurinn.

Sjáðu geggjaða stoðsendingu Gylfa: „Eruð þið að grínast?“
Valsmenn fóru mikinn í Albaníu í gærkvöld er þeir rassskelltu lið Vllaznia til að tryggja sæti sitt í næstu umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Blásið til Evrópuveislu á Íslandi
Öll þrjú íslensku félögin sem kepptu í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld fóru áfram í næstu umferð forkeppninnar. Nú stefnir í heljarinnar Evrópuveislu hér á landi í næstu viku.

„Ég hafði í raun engar áhyggjur“
„Auðvitað [líður mér] mjög vel, frábærlega. Við eigum líka leik aftur á sunnudaginn þannig að ég var feginn að þetta fór ekki í framlengingu,“ sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, eftir sætan sigur gegn Tikvesh í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

„Ég bara er ekki viss, veit ekki hvort boltinn fór af mér eða honum“
„Þetta er helvíti sætt, erfitt að missa þetta niður í fyrri leiknum en við sýndum karakter í dag og kláruðum þetta,“ sagði Kristófer Ingi Kristinsson, hetja Breiðabliks í 3-1 sigri gegn Tikvesh. Kristófer var reyndar ekki klár á því hvort hann hefði skorað sjálfur en það tókst að sannfæra hann.

Uppgjörið: Breiðablik - Tikvesh 3-1 | Blikar áfram eftir að lenda undir
Breiðablik er komið áfram í aðra umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar eftir góðan 3-1 sigur á Tikvesh frá Norður-Makedóníu á Kópavogsvelli í kvöld. Liðið þurfti að hafa fyrir hlutunum þar sem það tapaði ytra 3-2 í síðustu viku.

Stjarnan áfram eftir dramatískan endi í Norður-Írlandi
Stjarnan er komin áfram í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta eftir 3-2 tap gegn Linfield í Norður-Írlandi í kvöld.

Fleygðu blysum inn á völlinn
Stuðningsmenn albanska liðsins Vllaznia voru allt annað en ánægðir með frammistöðu sinna manna í 4-0 tapi fyrir Val ytra í kvöld. Þeir létu það í ljós undir lok leiks.

Uppgjörið: Vllaznia - Valur 0-4 | Svona á að svara fyrir sig
Valsmenn gerðu allt rétt er þeir fóru örugglega áfram í næstu umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Valur vann 4-0 sigur á Vllaznia frá Albaníu ytra.

„Hefði viljað sjá menn aðeins þroskaðri“
„Sóknarlega þorðum við að halda í boltann, þorðum að spila á milli línanna og fara í svæðin sem þeir skildu eftir sig,“ segir Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, um góða byrjun liðsins í fyrri leiknum gegn Tikvesh frá Makedóníu. Blikar komust í 2-0 en misstu leikinn niður í 3-2 tap.

„Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir Blika klára í bátana fyrir leik kvöldsins í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar komust 2-0 yfir ytra gegn Tikvesh frá Makedóníu en misstu leikinn niður í 3-2 tap.

Víkingar á leið til Albaníu
Víkingar munu mæta Egnatia frá Albaníu í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Bæði lið féllu úr leik í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld
Víkingar komust ekki áfram í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi en fá annað tækifæri í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þeir fá þó ekki að vita um væntanlegan mótherjann sinn fyrr en í kvöld.

„Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga var svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Shamrock Rovers í gær sem þýðir að Víkingar eru úr leik í undankeppni Meistaradeildarinnar. Hann sagði að það hafi verið erfitt að koma inn í búningsklefa eftir leik.

Valur mun spila seinni leikinn í Albaníu: „Verðum að trúa því og treysta að þetta verði í lagi“
Þrátt fyrir ofbeldisfulla hegðun fær albanska liðið Vllaznia að halda heimaleik fyrir opnum dyrum gegn Val næsta fimmtudag í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þetta staðfestir Jörundur Áki Sveinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Vísi.

Valsmenn senda frá sér yfirlýsingu: UEFA lítur málið alvarlegum augum
Valur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óláta áhorfenda á leik karlaliðs félagsins í fótbolta við Vllaznia frá Albaníu í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hegðun stuðningsmanna er fordæmd en öll einbeiting sögð á síðari leiknum eftir viku.

UEFA á viðvörunarstigi, Interpol í málinu og Albaníuferðin í hættu
Hegðun stuðningsmanna og starfsfólks albanska félagsins Vllaznia í kringum leik liðsins við Val að Hlíðarenda í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld gæti dregið dilk á eftir sér. Málið er á borði KSÍ og UEFA auk lögreglunnar og Interpol.

„Hefðum átt að fá allavega eitt víti í viðbót“
Chris Shields fyrirliði Linfield var að vonum svekktur eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Emil Atlason skoraði fyrra mark Stjörnunnar og seinna var sjálfsmark eftir undirbúning Emils.

Öryggisvörður laminn eftir leik og lögregla kölluð til
Stuðningsmenn albanska liðsins Vllaznia réðust á öryggisverði eftir leik á Hlíðarenda. Svo virtist sem tekist hefði að leysa úr málunum en lögregla var kölluð til þegar múgurinn espaðist aftur.