
Landslið karla í fótbolta

Nóg komið af nefndum: Jóhann Berg ræddi við Katrínu í morgun
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, lagði það til við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands í morgun að Ísland þyrfti á þjóðarleikvangi, líkt og liðið spilar á í Lúxemborg á morgun, að halda hér heima.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn í Lúxemborg
Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik karlalandsliðsins gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024.

Bosnía setur lykilleikmann í bann fyrir leikinn gegn Íslandi
Landslið Bosníu og Hersegóvínu verður án lykilleikmanns í landsleiknum gegn Íslandi í næstu viku. Knattspyrnusamband landsins hefur sett leikmanninn í bann og trúir ekki útskýringum hans um meiðsli.

Sigur hjá strákunum í U-19 ára landsliðinu
Íslenska landsliðið í knattspyrnu karla skipað leikmönnum nítján ára og yngri vann sigur á æfingamóti sem liðið leikur á í Slóveníu þessa dagana.

Allir leikir Íslands í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport
Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á árinu verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Fyrstu leikirnir verða 8. september gegn Lúxemborg ytra og svo 11. september gegn Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli.

Útskýrir af hverju Birkir var ekki valinn í landsliðið
Birkir Bjarnason var ekki valinn í íslenska landsliðið sem mætir Lúxemborg og Bosníu í undankeppni EM 2024 í næsta mánuði. Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide útskýrði fjarveru Birkis á blaðamannafundi í dag.

Segir Orra minna sig á eina af skærustu stjörnum Dana á sínum tíma
Orri Óskarsson, framherji danska úrvalsdeildarfélagsins FC Kaupmannahöfn, er nýliði í landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sem á fyrir höndum leiki gegn Lúxemborg og Bosníu & Herzegovinu í undankeppni EM 2024. Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands hefur miklar mætur á framherjanum unga.

Hareide um Albert: „Getum ekki verið með augun á leikmönnum allan sólarhringinn“
Åge Hareide segist hafa rætt við Albert Guðmundsson og hann muni fara eftir reglum KSÍ.

Åge ánægður með nýjustu tíðindi af Gylfa: „Mun fylgjast vel með honum“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024. Þar var hann meðal annars spurður út í Gylfa Þór Sigurðsson.

Svona var fundur Hareides
Vísir var með beina textalýsingu frá blaðamannafundi Åges Hareide þar sem hann fór yfir valið á landsliðshópi Íslands fyrir næstu leiki þess í undankeppni EM 2024.

Sjö úr U19 ára landsliðinu valdir í U21 árs liðið
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið þá 26 leikmenn sem munu taka þátt í komandi verkefni liðsins.

Orri nýliði í landsliðinu en Aron Einar ekki með
Åge Hareide hefur tilkynnt landsliðshóp Íslands í fótbolta karla fyrir leikina gegn Lúxemborg og Bosníu í undankeppni EM 2024 í næsta mánuði.

Tilkynntu óvænt að Júlíus væri í næsta landsliðshópi Íslands
Júlíus Magnússon, miðjumaður norska B-deildarliðsins Fredrikstad, verður í A-landsliðshópi Íslands fyrir komandi verkefni ef marka má færslu á samfélagsmiðlum norska félagsins sem hefur nú verið eytt.

Age Hareide tjáir sig um framtíð Gylfa
Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, vonast til að Gylfi Þór Sigurðsson muni snúa aftur á fótboltavöllinn sem fyrst.

„Mjög spennandi leikir framundan hjá Val“
Ein efnilegasta knattspyrnukona landsins gekk til liðs við Íslandsmeistara Vals á dögunum frá sænska liðinu Kristianstad. Hún segir tímann úti hafa verið fínan og stefnir aftur á atvinnumennsku.

„Hefðum átt að nýta kantana betur“
Bjarni Guðjón Brynjólfsson átti góðan leik inni á miðsvæðinu hjá U-19 ára landsliðinu í fótbolta karla þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Grikkland í lokaumferð riðlakeppninnar í lokakeppni Evrópumótsins á Möltu í kvöld.

„Tvö mörk tekin af okkur í þessum leik“
Hlynur Freyr Karlsson, fyrirliði íslenska U-19 ára landsliðsins í fótbolta karla, var óánægður með að tvö mörk hefðu verið tekin af íslenska liðinu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Grikkland í lokaumferð í riðlakeppni Evrópumótsins á Möltu í kvöld.

„Frábær hópur sem er skemmtilegt að spila með“
Benóný Breki Andrésson kom inná sem varamaður þegar Ísland gerði markalaust við Grikkland í lokaumferð í riðlakeppni Evrópumóts U-19 ára landsliða í fótbolta karla á Möltu í kvöld.

„Sýndum að við eigum heima á stórmóti“
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í fótbolta var stoltur af lærisveinum sínum eftir markalaust jafntefli við Grikki í lokaumferð Evrópumótsins í Möltu í kvöld.

„Þessi liðsheild er einstök“
Guðmundur Baldvin Nökkvason, leikmaður Stjörnunnar og U19-ára landsliðs Íslands, sagði að það hefði verið skrýtið að fagna jafntefli gegn Norðmönnum í gær. Ísland á enn möguleika á sæti í undanúrslitum Evrópumótsins.

Stórbrotið mark Eggerts Arons: „Galin tilfinning“
Eggert Aron Guðmundsson kom mikið við sögu í jafntefli Íslands og Noregs í gær. Hann fékk á sig vítaspyrnu í síðari hálfleiknum en jafnaði metin með frábæru marki rétt fyrir leikslok.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Noregur 1-1 | Ótrúlegt jöfnunarmark Eggerts hélt draumnum á lífi
Ísland mætti Noregi i annarri umferð Evrópumóts u19 ára landsliða karla. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir að Noregur komst yfir, mörk leiksins skoruðu Alwande Roaldsøy og Eggert Aron Guðmundsson.

„Hefur aldrei lagt árar í bát og kemur aldrei til með að gera það“
„Beggja blands, smá léttir að við fengum jöfnunarmark undir lokin en mér fannst við eiginlega meira skilið úr þessum leik,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari íslenska U-19 ára landsliðs karla í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli við Noregi á lokakeppni EM.

Hareide ánægður með vistaskipti Sverris Inga
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er hæstánægður með vistaskipti Sverris Inga Ingasonar. Danska félagið Midtjylland festi kaup á miðverðinum nýverið og kynnti hann til leiks með áhugaverðu myndbandi fyrr í dag.

„Lítil mistök sem drepa okkur“
Logi Hrafn Róbertsson segir Ísland enn eiga góða möguleika á að komast upp úr sínum riðli á EM U19-landsliða í fótbolta, eftir 2-1 tap gegn Spáni í fyrsta leiknum á Möltu í gærkvöld.

„Ísland á EM er alltaf risastórt“
Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði mark Íslands í 2-1 tapi á móti gríðarlega sterku spænsku landsliði í fyrsta leik íslenska nítján ára landsliðsins á EM á Möltu.

„Þurfum að taka það með okkur í næsta leik“
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari íslenska U19-ára landsliðsins sagði strákana eiga hrós skilið fyrir að vinna sig inn í leikinn gegn Spánverjum. Ísland tapaði 2-1 gegn feykisterku spænsku liði.

„Við erum búnir að leggja mikið á okkur til að komast hingað“
Hlynur Freyr Karlsson fyrirliði U19-ára liðs Íslands var nokkuð sáttur með frammistöðu liðsins gegn geysisterku liði Spánar í dag. Ísland mætir næst Noregi á Evrópumótinu.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Spánn 1-2 | Tap í fyrsta leik á EM
Íslensku strákarnir í U19 töpuðu gegn Spánverjum 1-2. Spánverjar komust yfir með marki úr hornspyrnu í fyrri hálfleik. Þeir bættu síðan við öðru marki þegar tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleik eftir afar klaufalegan varnarleik hjá Íslandi. Ágúst Orri Þorsteinsson minnkaði muninn í uppbótartíma með laglegu skoti.

Karlalandsliðið á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin
Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í fótbolta verða sýndir á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin. Þetta er meðal atriða í samstarfssamningi Sýnar og Viaplay sem tilkynnt var um í dag.