
Mál Mason Greenwood

Forseti Marseille segist ekki sjá eftir neinu varðandi Greenwood
Mason Greenwood hefur farið frábærlega af stað í Frakklandi en Marseille keypti hann af Manchester United í sumar. Framherjinn hafði ekki spilað fyrir Man United síðan í janúar 2022 þegar þáverandi kærasta sakaði hann um líkamlegt ofbeldi sem og kynferðisofbeldi. Birti hún myndir og myndbönd máli sínu til sönnunar.

Þrír leikmenn Marseille með vafasama fortíð
Marseille vann 5-1 stórsigur á Brest í frönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í gær. Í byrjunarliði liðsins mátti finna tvo leikmenn sem hafa verði sakaðir um kynferðisofbeldi, annar gegn börnum, og svo leikmann sem var valdur að banaslysi.

Forseti La Liga vill halda Greenwood á Spáni
Javier Tebas, forseti spænsku úrvalsdeildarinnar La Liga, segist vona að Mason Greenwood spili áfram í spænska boltanum eftir að lánsdvöl hans hjá Getafe lýkur.

Bellingham gæti fengið bann fyrir að kalla Greenwood nauðgara
Spænska knattspyrnusambandið hefur skipað dómara til að úrskurða um hvort Jude Bellingham hljóti leikbann fyrir að kalla Mason Greenwood nauðgara.

Klaga Bellingham fyrir að kalla Greenwood nauðgara
Getafe hefur klagað Jude Bellingham, leikmann Real Madrid, eftir að hann átti að hafa kallað Mason Greenwood nauðgara í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Real Madrid vann leikinn, 0-2, en Joselu skoraði bæði mörkin.

„Alltaf haft þá skoðun að allir eigi rétt á að fá annað tækifæri til að sýna sig og sanna“
Heimir Hallgrímsson segir ekkert launungarmál að hann vilji fá framherjann Mason Greenwood til að spila með jamaíska landsliðinu.

Sevilla hefur áhuga á Greenwood
Talið er að enski framherjinn Mason Greenwood vilja skipt alfarið yfir til Getafe þar sem hann er á láni frá Manchester United. Talið er að Sevilla ætli að veita Getafe samkeppni um leikmanninn sem spilaði hvorki né æfði í fleiri mánuði eftir að þáverandi kærasta hans sagði hann hafa beitt sig ítrekuðu líkamlegu ofbeldi og birti myndir því til sönnunar.

Heimir opnar á leið Greenwood til Jamaíka
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Jamaíka er opinn fyrir því að fá enska sóknarmanninn Mason Greenwood til liðs við sitt lið.

Osasuna verður refsað fyrir söng stuðningsfólks í garð Greenwoods
Mason Greenwood kom inn af varamannabekknum í 3-2 sigri Getafe á Osasuna í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Stuðningsfólk Osasuna óskaði þess einfaldlega að Greenwood myndi deyja.

Mason Greenwood snýr aftur í heim tölvuleikjanna
Aðdáendur fótboltatölvuleiksins sívinsæla, Football Manager, bíða enn frétta um hvenær næsta útgafa leiksins kemur út. En þeir hafa fengið það staðfest að Mason Greenwood mun snúa aftur til leiksins eftir að hafa skrifað undir lánssamning við Getafe á dögunum.

Greenwood farinn á láni til Spánar
Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er genginn í raðir Getafe á láni frá Manchester United.

Segir hátt settum stjórnanda United að íhuga stöðu sína: „Þetta er svívirðilegt“
Breska sjónvarpsstjarnan Rachel Riley hvetur Richard Arnold, framkvæmdastjóra Manchester United til þess að íhuga stöðu sína. Félagið hafi farið kolrangt að í máli Greenwood og umturnað meintum ofbeldismanni í fórnarlamb.

Áhugi á Greenwood: Félög setja sig í samband við Manchester United
Nokkur félög hafa nú þegar sett sig í samband við Manchester United og spurst fyrir um sóknarmanninn Mason Greenwood eftir yfirlýsingu félagsins í gær þess efnis að leikmaðurinn myndi ekki snúa aftur í lið félagsins.

Telur Greenwood ekki hafa brotið af sér
Richard Arnold, framkvæmdastjóri Manchester United, trúir ekki að enski framherjinn Mason Greenwood hafi framið þá glæpi sem hann var ákærður fyrir.

Greenwood yfirgefur United
Mason Greenwood er á förum frá Manchester United. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Endurkoma Greenwood undirbúin: Baráttusamtök gegn heimilisofbeldi sögð „fjandsamleg“
Stjórnendur innan raða Manchester United hafa í gær og í dag haldið hitafundi með starfsfólki félagsins en mikil óánægja er sögð ríkja eftir að fréttir bárust af því að líklega myndi Mason Greenwood fá brautargengi í karlaliði félagsins á nýjan leik.

Hótar því að hætta að halda með Manchester United
Enska sjónvarpsstjarnan Rachel Riley ætlar að hætta að styðja Manchester United ef félagið leyfir Mason Greenwood að spila aftur með liðinu.

Gætu frestað ákvörðun varðandi framtíð Greenwood þangað til í september
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur ekki enn tekið ákvörðun varðandi framtíð framherjans Mason Greenwood. Talið er líklegt að félagið gæti tilkynnt ákvörðun sína í landsleikjahléinu í næsta mánuði.

Stutt í ákvörðun Man. Utd um Greenwood
Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United munu tilkynna ákvörðun sína um framtíð Masons Greenwood áður en ný leiktíð liðsins hefst með leik við Wolves eftir tvær vikur.

Man United íhugar að lána Greenwood til Ítalíu
Það virðist sem enska knattspyrnufélagið Manchester United hafi komist að samkomulagi við Atalanta um að lána Mason Greenwood þangað út komandi tímabil. Sá hefur ekki spilað fyrir Man United síðan þann 22. janúar á síðasta ári vegna gruns um líkamlegt sem og kynferðisofbeldi.

Hafa áhuga á að fá Greenwood til liðs við sig
Ítalska stórveldið Juventus hefur áhuga á því að fá Mason Greenwood, sóknarmann Manchester United, til liðs við sig.

Nike vill ekkert með Greenwood hafa
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur ekki fengið nýjan samning við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike þrátt fyrir að hann hafi ýjað að því.

Biður leikmenn um að einbeita sér að fótbolta en ekki Greenwood
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, biður leikmenn liðsins um að einbeita sér að fótbolta frekar en Mason Greenwod eftir að ákæra á hendur leikmanninum var látin niður falla í gær.

Greenwood tjáir sig í fyrsta sinn: Mikill léttir að málinu sé loks lokið
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að allar ákærur á hendur honum voru felldar niður. Hann segir mikinn létti að málinu sé lokið.

Greenwood æfir hvorki né spilar fyrr en rannsókn United lýkur
Knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood mun hvorki æfa né spila með Manchester United fyrr en félagið hefur lokið sinni eigin rannsókn á máli leikmannsins.

Greenwood laus allra mála
Allar ákærur á hendur Mason Greenwood hafa verið felldar niður, rúmu ári eftir að þessi 21 árs gamli leikmaður Manchester United var handtekinn grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði.

Greenwood sleppt gegn tryggingu
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur verið látinn laus úr varðhaldi gegn tryggingu.

Greenwood í gæsluvarðhaldi fram að réttarhöldum
Mason Greenwood, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, verður í gæsluvarðhaldi fram að réttarhöldum í máli hans en þau fara fram þann 21. nóvember næstkomandi.

Greenwood ákærður fyrir tilraun til nauðgunar og árás
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefur verið ákærður fyrir nauðgun og árás. Hann hefur ekki spilað með liðinu síðan hann var handtekinn í janúar á þessu ári.

Greenwood handtekinn fyrir að rjúfa skilorð
Mason Greenwood, leikmaður Manhester United hefur verið handtekinn á nýjan leik fyrir brot á skilorði. Greenwood var handtekinn í janúar en var sleppt úr haldi skömmu síðar. Hann hefur verið á skilorði síðan en braut það nýverið og var því handtekinn á nýjan leik.