
Átök í Ísrael og Palestínu

Fjölmennt í samstöðugöngu með Palestínu: „Viðskiptabann strax“
Fjölmennur hópur gekk frá Utanríkisráðuneytinu niður á Austurvöll í samstöðu með Palestínu seinni partinn í dag. Félagið Ísland-Palestína, sem stendur fyrir fundinum, hefur staðið fyrir samstöðuviðburðum með Palestínu allar helgar frá upphafi stríðsins 7. október.

Níu ára stúlka sögð myrt, nú talin gísl
Níu ára stelpa sem var talin myrt af Hamasliðum er nú talin lifandi og meðal gísla þeirra. Emily Tony Korenberg Hand er ein þeirra sem tekin var höndum af Hamasliðum þegar þeir réðust inn í Be’eri kibbútsinn við landamæri Ísraels og Gasasvæðisins. Stuttu eftir árásina var föður Emily tilkynnt að dóttir sín væri látin.

Auka framlög vegna átakanna um hundrað milljónir
Ísland mun veita hundrað milljóna króna viðbótarframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC). Er það vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs, milli Ísraela og Hamas-samtakanna.

Auglýsendur áhyggjufullir vegna ummæla Musks og gyðingahaturs
Forsvarsmenn IBM, sem er einn af stærri auglýsendum á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter), hættu öllum auglýsingum þar. Það var eftir að auðjöfurinn Elon Musk, sem keypti Twitter í fyrra, lýsti á miðvikudaginn yfir stuðningi við færslu um að gyðingar ýttu undir hatur á hvítu fólki. Þar var einnig gefið í skyn að gyðingar væru að ýta undir flutninga flótta- og farandfólks.

Hafna rýmingu suðurhluta Gasa og segja hungursneyð yfirvofandi
Yfirmenn átján stofnana Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra hjálparstofnana hafa mótmælt fyrirmælum Ísraelshers til íbúa Gasa um að rýma suðurhluta svæðisins og safnast saman á „öruggt svæði“ í Mawasi.

Það sem öll vopn risaveldisins fá ekki breytt
Þjóðarmorðið heldur áfram. Her Ísraels er kominn inn á Gaza og búinn að drepa þar yfir 11 þúsund manns, þar af á fimmta þúsund börn á rúmum mánuði fyrir utan þær þúsundir sem liggja undir rústunum. Mér skilst að þetta sé einhvers konar met í manndrápum.

Segja íbúum á suðurhluta Gasa nú að flýja
Ísraelar hafa varpað dreifimiðum á Gasaströndina þar sem íbúar eru beðnir um að flýja frá hlutum svæðisins. Þykir það til marks um að forsvarsmenn ísraelska hersins ætli að útvíkka hernaðinn á jörðu niðri en hundruð þúsunda Palestínumanna hafa flúið frá norðurhluta Gasastrandarinnar til suðurhlutans.

Eru mannréttindi einungis orð á blaði?
Við þekkjum flest orðið mannréttindi, og getum við flest verið sammála um að grundvallar mannréttindi eru hornsteinn góðra lífskjara. Orðið mannréttindi er skilgreint í íslenskri orðabók á eftirfarandi hátt; tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kyni, kynhneigð, trú og skoðana.

Biden ver afstöðu Bandaríkjanna og segir Hamas ekki munu hætta
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varið ákvörðun stjórnvalda vestanhafs að kalla ekki eftir vopnahléi á Gasa og segir Hamas viðvarandi ógn fyrir Ísrael. Þá hafi Ísraelsmenn freistað þess að forðast mannfall meðal almennings í aðgerðum sínum.

Hvetja til sniðgöngu Iceland Noir vegna heimsóknar Clinton
Lestrarklefinn, vefsíða sem tileinkuð er bókaumfjöllun, bókmenntum og lestri, hvetur til sniðgöngu bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir. Ástæðan er sú að stjórnmálakonan Hillary Clinton, sem hefur tekið afstöðu gegn vopnahléi á Gasa, kemur fram á viðburði tengdum hátíðinni.

Páll Óskar og Úlfur Úlfur troða upp til styrktar Palestínu
Félagið Ísland-Palestína boðar til samstöðutónleika fyrir Palestínu í Gamla Bíó fimmtudaginn 16. nóvember þar sem fram koma Páll Óskar, Úlfur Úlfur, Cyber og JDFR. Allur ágóði rennur til hjálparsamtaka á Gaza. Þá er efnt til góðgerðarhlaðborðs að morgni fimmtudags.

Segja ekki hafa komið til „samstuðs“ milli hermanna og sjúklinga eða starfsfólks
Talið er að um 1.200 sjúklingar og heilbrigðisstarfsmenn séu nú á al Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa en Ísraelsher fór inn á sjúkrahússvæðið í morgun í „hnitmiðaðri aðgerð“ sem virðist beinast gegn meintum höfuðstöðvum Hamas undir sjúkrahúsinu.

Íranskir hermenn féllu líklega í árásum Bandaríkjamanna
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gærkvöldi myndbönd af loftárásum hersins á byltingarverði Íran og vígahópa sem Írans styður í austurhluta Sýrlands á dögunum. Árásirnar voru gerðar vegna ítrekaðra árása meðlima vígahópa í Írak og Sýrlandi á bandaríska hermenn þar.

Ísraelsmenn komnir inn á al Shifa-sjúkrahúsið
Ísraelsher segist standa í hernaðaraðgerð gegn Hamas innan al Shifa-sjúkrahússvæðisins. Um sé að ræða hnitmiðaða aðgerð á afmörkuðu svæði. Talsmaður heilbrigðisyfirvalda á Gasa, sem eru undir stjórn Hamas, segir herinn við leit í kjallara sjúkrahúsbyggingarinnar.

Lögðust niður í Kringlunni og kröfðust aðgerða
Um 70 manns komu saman í Kringlunni síðdegis í dag og lögðust hreyfingarlaus á gólfið í Kringlunni. Fólkið krafðist þess að alþjóðasamfélagið beitti sér fyrir tafarlausu vopnahléi.

Líkin hrannast upp og læknir segir ástandið á al Shifa „ómannlegt“
„Við erum ekki með rafmagn. Það er ekkert vatn á spítalanum,“ sagði læknir á vegum Lækna án landamæra á al Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa þegar samtökin náðu sambandi við hann í gær.

Firring
Jódís Skúladóttir þingmaður skrifar í Vísi þann 11. nóvember pistil sem ber yfirskriftina "Keisaraskurður án deyfingar". Jódís hefur pistilinn á að minnast á "Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag" og "fylla okkur viðbjóði og vanmætti”.

Þúsundir flýja umkringd sjúkrahús
Harðir bardagar við sjúkrahús í norðurhluta Gasastrandarinnar hafa þvingað þúsundir Pelstínumanna til að flýja síðustu skjól svæðisins. Hundruð eru enn fastir á sjúkrahúsunum en þar á meðal eru sjúklingar í alvarlegri stöðu og nýfædd börn en birgðir eru að klárast og ljósavélar eldsneytislausar.

Varpa enn sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi
Bandaríkjamenn gerðu í gærkvöldi aftur loftárásir gegn Írönum og vígahópum sem þeir styðja í Sýrlandi. Sprengjum var varpað á vopnageymslu byltingarvarða Írans og á þjálfunarmiðstöð í austurhluta landsins en þetta er í þriðja sinn á rúmum tveimur vikum sem Bandaríkjamenn gera slíkar árásir.

Ályktun um vopnahlé samþykkt – en hvað svo?
Eftir mánuð af endurteknum mótmælum, fjölda samstöðufunda og stöðugum þrýstingi frá almenningi á þingfólk, eftir áskoranir frá mannréttindasamtökum og fagfélögum sem og undirskriftalista sem þúsundir Íslendinga settu nafni sitt við, brást Alþingi loksins við þeim þjóðernishreinsunum sem eiga sér nú stað á Gaza og ályktaði þann 9. nóvember s.l. samhljóða um að kalla eftir vopnahléi í árásum Ísraelsríkis á Palestínu.

Segir al Shifa orðið vettvang dauða, eyðileggingar og örvæntingar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir al Shifa-sjúkrahúsið á Gasa ekki lengur starfhæft en þrír dagar séu nú liðnir án rafmagns og vatns. Stöðugar sprengingar og skotárásir hafi gert bága stöðu ómögulega.

Flytja nýbura af spítalanum sem enn er án rafmagns
Starfsfólk á stærsta spítala Gasa, al-Shifa, segja sjúklinga og fólk á flótta fast í hræðilegu ástandi á meðan átök fara fram í nærliggjandi götum. Ísraelsher segist ætla að aðstoða við flutning nýbura af spítalanum í dag. Átök hafa geisað við spítalann í tvo daga.

Spítalinn rafmagnslaus og án matar og vatns
Al-Shifa spítalinn á Gasa er nú án rafmagns, matar og vatns. Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, segir að Ísrael verði að hætta að sprengja börn í loft upp.

Keisaraskurður án deyfingar
Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag fylla okkur viðbjóði og vanmætti. Saklausu blóði er úthellt í sjálfhverfum byssuleik valdamikilla karla sem enga ábyrgð taka á gjörðum sínum og skella skollaeyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins um vopnahlé. Einn af hörmulegum fylgifiskum stríðsátaka um allan heim er verri hagur kvenna og barna sem oft var ekki beysinn fyrir.

Að slá blettinn
Orðatiltæki þetta var mjög vinsælt innan stjórnsýslu Ísraels; „að slá blettinn“ og bletturinn er Gaza. Árið 2006 voru haldnar þingkosningar á Vesturbakkanum og á Gaza.

Ekkert bendir til að blaðamenn á Gasa hafi vitað af árásunum
Framkvæmdastjóri HonestReporting segir samtökin aðeins hafa verið að velta upp spurningum þegar þau ýjuðu að því að palestínskir blaðaljósmyndarar hafi vitað af árás Hamas á Ísrael þann 7. október fyrir fram. Ekkert bendi til að ljósmyndararnir hafi vitað af árásinni fyrirfram.

Hamas og aðrir vopnaðir hópar verði að leysa gísla úr haldi
Amnesty International ítrekar ákall sitt um að óbreyttir borgarar í gíslingu á hernumdum svæðum á Gaza verði leystir úr haldi án tafar og skilyrðislaust. Á meðal gísla eru börn. Hamas og aðrir vopnaðir hópar hafa haldið þeim í gíslingu í mánuð eða frá 7. október.

Blaðamenn á Gasa grunaðir um að hafa vitað af árásunum
Samskiptaráðherra Ísrael hefur sakað blaðamenn á Gasa sem vinna í verktakavinnu fyrir erlenda miðla um að hafa haft vitneskju um árásir Hamas-liða 7. október síðastliðinn, áður en þeir létu til skarar skríða.

Netanyahu segir Ísraela hvorki vilja sigra, hernema né stjórna Gasa
Benjamin Netanyahu segir Ísrael ekki hafa í hyggju að sigra, hernema né stjórna Gasa eftir að stríðinu við Hamas lýkur. Hins vegar þurfi að tryggja að hægt sé að senda „trúverðugt afl“ inn á svæðið ef nauðsyn krefur, til að hindra uppgang hryðjuverkasamtaka.

Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi
Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi.