

„Fyrstu mánuðina okkar í Barcelona var ég í feðraorlofi og að læra spænsku eftir að hafa flutt fra Danmörku. Ég hafði útbúið gagnagrunn í Excel um fýsileika vindmylluverkefna og velti fyrir mér hvort ég gæti selt þetta sem vöru en áttaði mig þó á því að ég myndi fljótt gera mig atvinnulausan sem ráðgjafi ef ég seldi grunninn frá mér,“ segir Edvald Edvaldsson um aðdragandann að því að nýsköpunarfyrirtækið Youwind Renewables varð til.
Í fyrra var mér boðið að heimsækja bókasafnið í Vestmannaeyjum. Það var yndisleg og skemmtileg heimsókn í alla staði. Vestmannaaeyjar eru enda með fallegustu stöðum landsins. Innsiglingin stórfengleg og bæjarstæðið engu líkt. Þangað er eiginlega alltaf gaman að koma.
Sviðsstjóri hjá Minjastofnun er hræddur um að illa verði komið fyrir húsvernd í landinu ef Minjastofnun verður undirsvið í mun stærri stofnun. Ekki hafi verið hlustað á sjónarmið starfsfólks Minjastofnunar í sameiningarferlinu. Minjavernd eigi miklu frekar heima í ráðuneyti menningarmála.
Stjórnarformaður Votlendissjóðs segir afköst sjóðsins á síðasta ári óásættanleg. Stjórnendur líti í eigin barm nú þegar verulega hefur verið dregið úr rekstri sjóðsins og framtíð hans í uppnámi. Hún hefur þó enn tröllatrú á vísindunum að baki verkefninu.
Áform eru um að sameina tíu stofnanir sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í þrjár stofnanir. Ráðherra segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla stofnanir ráðuneytisins.
Stjórn Votlendissjóðs og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að draga úr rekstri sjóðsins. Ástæðan er sögð skortur á jörðum til endurheimtar votlendis og áhrif krafna um vottun á fjármögnun verkefna. Þar til alþjóðleg vottun kolefniseininga sjóðsins er í höfn verður dregið úr rekstrinum.
Landvernd hefur komið á fót undirskriftasöfnun þar sem skorað er á norska orkufyrirtækið Zephyr AS að falla frá áformum um að reisa risavaxið vindorkuver í landi Klaustursels á Fljótsdalsheiði.
Davíð Arnar Stefánsson, oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði, segir þyngra en tárum taki að bæjaryfirvöld telji sig þess umkomna að vera ósammála mati fagstofnunar um náttúruvernd.
Breska frjálsíþróttakonan Innes FitzGerald hefur hafnað boði um að keppa fyrir Bretland í frjálsíþróttakeppni í Ástralíu.
Ísland gæti séð milljónum Evrópubúa fyrir öruggum, sjálfbærum og staðbundið framleiddum próteingjöfum á næstu áratugum. Á sama tíma væri hægt að draga úr losun yfir 700 milljóna tonnum af kolefnisútblæstri.
„Það sem er svo mikilvægt er að fólk fari að átta sig á er að hringrásarhagkerfið er nýsköpun í raunheimum þar sem tíminn er naumur og við þurfum að fá sem flesta til að hlaupa hratt. Það vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga. Það er nóg til af þeim og nóg til af hugmyndum. En það þarf leiðandi aðila til að eiga verkefnin og því þarf að búa til einfalda og almenna hvata svo að sem flestir geti hlaupið af stað,“ segir Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir.
Alltof algengt er að hvalir hafi drepist við það að festast í veiðarfærum við Íslandsstrendur. Þetta segir hvalasérfræðingur, en ungur hnúfubakur fannst dauður með veiðarfæri vafinn um hausinn úti fyrir Njarðvík um helgina.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar um samþykki byggingaráforma að Ásvöllum 1. Til stóð að reisa knatthús Hauka á lóðinni. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir málið til marks um lélega stjórnsýsluhætti í bænum.
Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Boeing-flugvélaframleiðandinn hafa tekið höndum saman um að þróa nýja tegund farþegaþotu sem á að vera þrjátíu prósent sparneytnari en þær hagkvæmustu sem finnast í dag.
Alþjóðlegu hvalverndarsamtökin Whale and Dolphin Conservation fylgjast núna af áhuga með siglingu norska skipsins Silver Copenhagen yfir Indlandshaf. Þau telja nokkuð víst að farmur þess sé íslenskt hvalkjöt á leið til Japans.
Líklegt er talið að met hafi verið slegið í mengun af völdum útblásturs bíla á þessari öld. Reykvíkingar segja mengunina farna að hafa áhrif á heilsuna og kalla eftir tafarlausum aðgerðum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir Íslendinga vera barnalega þegar kemur að öryggismálum. Þá sé þjóðin ekki tilbúin fyrir áföll framtíðarinnar.
Umhverfisaðgerðarsinninn Greta Thunberg var handtekin í dag ásamt fleiri mótmælendum vegna mótmæla við kolanámu í Luetzerath í Þýskalandi.
Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins þurfa þjóðir innan sambandsins að takmarka plastpokanotkun sína fyrir árið 2025. Í tilskipuninni segir að allir íbúar sambandsins megi ekki nota fleiri en fjörutíu plastpoka á ári. Verði tilskipunin að reglugerð þurfa Íslendingar líklegast einnig að fara eftir henni.
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að fara ekki að tillögu starfshóps um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar, um að skipa starfshóp um fjármögnun björgunarsveita. Afstaða til tillagna fyrrnefnda starfshópsins verður tekin eftir samtal við björgunarsveitir.
Oddviti Skaftárhrepps segist fagna allri uppbyggingu í hreppnum hvort sem hún sé af hendi einkaaðila eða opinbers aðila. Framkvæmdaleyfi fyrir Hnútuvirkjun var felld úr gildi í vikunni og óvíst með framhaldið.
Skipulagsráð Akureyrar hefur ákveðið að hefja álagningu dagsekta vegna umgengni á lóðinni að Sjafnarnesi 2. Álagning dagsekta mun hefjast eftir þrjá mánuði verði ekki bætt úr umgengni á svæðinu. Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar segir bæinn frekar vilja hvetja til lagfæringa en að vera með kvaðir. Lóðarhafar segjast föst milli steins og sleggju.
Loftmengunin í borginni rataði í fréttir í síðustu viku og eins og svo oft áður nýtti borgarstjóri tækifærið til að kenna nagladekkjum alfarið um, þótt lítið sé um slit á malbiki vegna nagladekkja enda snjómokstur arfaslæmur.
Forstjóri Olíufyrirtækis og forystumaður í stofnun Hringborðs Norðurslóða verður næsti forseti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28 sem fram fer í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í lok ársins.
Hópur vísindamanna hefur lagt til að framleiðendur jarðefnaeldsneyta verði skikkaðir til að „taka til baka“ það koldíoxíð sem losnar við notkun framleiðsluvara þeirra og gera þá þannig ábyrga fyrir þeirri mengun sem þeir valda.
Formaður Landverndar er uggandi yfir spá Ferðamálastofu um að 2,3 milljónir erlendra ferðamanna komi til landsins á árinu. Innviðir landsins og náttúran sjálf séu að þolmörkum komin.
Bilun í hreinsibúnaði bensínstöðvar Costco í Kauptúni í Garðabæ olli ólykt í vesturhluta Hafnarfjarðar í desember. Lyktin barst meðal annars upp úr niðurföllum og sturtubotnum íbúða í hverfinu.
Stjórn Landverndar telur að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi ítrekað upplifað óþolandi ástand vegna loftmengunar. Mengunin sé algjörlega óviðunandi og kallað er eftir aðgerðum.
Þótt nánast öll orka sem framleidd er á Íslandi teljist græn endurnýjanleg orka er hún það ekki á pappírunum. Aðeins 13 prósent raforku eru rakin til endurnýjanlegra orkugjafa en 63 prósent til kola og olíu og 24 prósent til kjarnorku. Íslensk fyrirtæki og heimili þurfa nú að greiða sérstaklega fyrir að geta sagt að raforkan sem þau nota sé græn orka.
Síðasta sumar var það hlýjasta í Evrópu frá því að mælingar hófust og annað hlýjasta árið í álfunni. Í öllum löndum Evrópu, nema á Íslandi, var hitinn yfir meðaltali samanborið við árin 1991 til 2020.