Bandaríkin

Lyfið geti seinkað framþróun Alzheimer um þriðjung
Öldrunarlæknir segir nýtt líftæknilyf við Alzheimer vendipunkt. Það muni ekki allir geta fengið lyfið til að byrja sem þurfi á því að halda en lyfið getur seinkað framþróun sjúkdómsins um þriðjung.

Nýr piparsveinn á áttræðisaldri
Raunveruleikaþættirnir Bachelor hafa lengi verið vinsælir en í haust hefst ný útgáfa af þáttunum, The Golden Bachelor. Þar er piparsveinninn ekki ungur maður í leit að fyrstu ástinni sinni heldur karlmaður á áttræðisaldri sem leitar að ástinni í annað skipti.

Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach
Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum.

Stjórnarmenn Tesla samþykkja að skila 735 milljónum dala
Stjórnarmenn Tesla hafa samþykkt að skila 735 milljónum dala í hlutafjárkaupréttum, eftir að hluthafar höfðuðu mál á hendur þeim vegna ákvörðunar þeirra um óhóflegar greiðslur til handa þeim sjálfum.

Sagði SARS-CoV-2 hannaða til að leggjast þyngra á hvíta og svarta
Nánir ættingjar forsetaframbjóðandans Robert Kennedy Jr. hafa fordæmt ummæli sem hann lét falla um helgina þess efnis að svo virtist sem SARS-CoV-2 veirunni hefði verið breytt til að leggjast þyngra á hvítt og svart fólk en gyðinga og Kínverja.

Auka eftirlit á Hormuz-sundi vegna afskipta Írana af skipaumferð
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að senda herskip og fleiri herþotur til Hormuz-sunds og Ómanflóa til að fæla Íran frá því að ráðast gegn skipum í eigu erlendra fyrirtækja.

Íslendingar í skæðri hitabylgju: „Maður svitnar og er eldrauður í framan“
Skæðar hitabylgjur ríða nú yfir víða um heim. Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín vegna gróðurelda á meðan aurskriður hafa fallið á öðrum svæðum og ár flætt yfir bakkasína vegna hamfararigninga. Íslendingur í Bandaríkjunum segir öfgar í veðurfari aukast með hverju árinu.

Lohan er kominn í heiminn
Lindsay Lohan er orðin mamma. Hún eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum Bader Shammas og er um að ræða strák. Hann hefur þegar fengið nafnið Luai en drenginn fæddi Lohan á Dubai þar sem parið býr.

Aðdáendur misstu sig yfir leynigestinum
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kom tónleikagestum sínum í Detroit heldur betur á óvart um helgina með óvæntum gesti. Sheeran tilkynnti áhorfendum að hann ætlaði að taka gítarútgáfu af sögulega smellinum Lose Yourself eftir Eminem en rapparinn gekk stuttu síðar inn á svið og tók við.

Microsoft og Sony semja um Call of Duty
Forstjóri leikjadeildar Microsoft tilkynnti í gær að samkomulag hefði náðst við forsvarsmenn Sony um Call of duty, leikina vinsælu. PlayStation eigendum verður áfram tryggður aðgangur að leikjunum, jafnvel þó Microsoft, sem framleiðir xBox leikjavélarnar, kaupir Activision Blizzard, eins og í stefnir.

„Konan hélt víst í höndina á henni á meðan hún dó“
Íslensk fjölskylda ungrar konu, sem skotin var til bana í Bandaríkjunum í vikunni, er frávita af sorg. Amma konunnar segir áfallið ólýsanlegt. Skömm sé að því hvernig kerfið vestanhafs taki á móti syrgjendum.

Sagðist ekki vilja drepa hann áður en hún seldi honum banvænan skammt
Leandro DeNiro Rodriguez, barnabarn Robert DeNiro, lést af völdum ofskömmtunar eftir að hann tók fentanýlblandaðar morfínpillur. Sú sem seldi honum töflurnar sagði fyrir söluna að hún vildi ekki drepa hann.

Safnar fyrir útfararkostnaði dótturdóttur sinnar sem var skotin til bana
Hin 23 ára gamla Iyanna Brown var skotin voveiflega til bana á fimmtudag í Detroit í Bandaríkjunum. Amma hennar, Ingunn Ása Ingvadóttir Mency, hefur sett af stað söfnun fyrir útfarakostnaðinum.

Uppsagnir og óhófleg eyðsla í kosningabaráttu DeSantis
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og forsetaframbjóðandi, hefur þegar þurft að segja upp starfsfólki í kosningaherferð sinni, en upplýsingar gefa í skyn að óhóflega mikið fjármagn hafi farið í framboð hans miðað við hve stutt baráttan er komin.

Ýmist lýst sem ógnvekjandi nágranna eða tryggum fjölskylduföður
Það tók rannsakendur fimmtán ár að komast á snoðir um það hver morðinginn, að baki „morðunum á Gilgo ströndinni“, væri. Rannsakendur telja sig hafa fundið morðingjann, Rex Heuermann, sem hefur lifað tvöföldu lífi á Long Island í New York undanfarna áratugi. Honum er bæði lýst sem samviskusömum fjölskyldumanni og ógnvekjandi nágranna með stuttan þráð.

Hitnar í kolunum hjá Shakiru og Jimmy Butler
Svo virðist sem að söngkonan kólumbíska Shakira og körfuboltastjarnan bandaríska Jimmy Butler séu að slá sér upp saman.

Grunaður raðmorðingi giftur íslenskri konu
Maðurinn, sem handtekinn var í New York í gær og er ákærður fyrir að myrða þrjár konur, er giftur íslenskri konu. Spjótin beindust meðal annars að honum vegna DNA-sýnis sem fannst á konunum þremur og talið er vera af íslensku konunni.

Biden kallaði Katrínu Írlandsdóttur
Joe Biden Bandaríkjaforseti átti fund leiðtogum Norðurlandana í vikunni. Á blaðamannafundi með forseta Finnlands kallaði hann Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra fyrst dóttur Írlands og svo dóttur Íslands.

Kúkaði á sig á miðjum tónleikum
Tónlistarmaðurinn Joe Jonas, þriðjungur þríeykisins Jonas Brothers, segist hafa kúkað á sig á miðjum tónleikum. Hann segist verið klæddur í hvít föt þegar það gerðist og þess vegna þurft að drífa sig baksviðs og skipta um föt.

Skæður raðmorðingi loks gómaður
Lögreglan í New York hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að „Morðunum á Gilgo Beach“ svokölluðu. Hann er talinn hafa myrt nokkrar konur en líkamsleifar ellefu manns hafa fundist við rannsókn morðanna frá árinu 2010.

Dánarorsök Presley liggur fyrir
Lisa Marie Presley, söngkona og eina dóttir Elvis og Priscillu Presley, lést í janúar á þessu ári eftir að hafa verið flutt á sjúkrahús með hjartastopp. Dánarorsök hennar liggja nú fyrir en hún lést vegna fylgikvilla þyngdartapsaðgerðar.

Reyna að góma ágengan og þjófóttan otur
Embættismenn í Kaliforníu vinna nú að því að handsama ágengan sæotur sem hefur verið að áreita fólk á brimbrettum og kajökum og jafnvel stolið brettum af fólki. Oturinn er fimm ára gamall og kvenkyns hefur hagað sér á ágengan hátt undan ströndum Santa Cruz.

Leikarar í Hollywood komnir í verkfall
Stjórn stéttarfélags leikara í Hollywood (SAG) samþykkti í kvöld að leggja niður störf á miðnætti. Verkfallið nær til um 160 þúsund leikara sem hafa undanfarið reynt að ná nýjum samningi, fyrir leikara í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, í höfn.

Biden segir Bandaríkin og Norðurlönd deila sögu og framtíðarsýn
Forsætisráðherra segir leiðtoga Norðurlandanna hafa átt mjög frjálslegan og opinn fund með forseta Bandaríkjanna í Helsinki í dag. Auk öryggismála hafi meðal annars verið rætt um jafnréttis- og loftslagsmál ásamt málefnum Norðurslóða. Bandaríkjaforseti segir ríkin deila sameiginlegri sýn um frelsi og samvinnu.

„Ég vona að ég muni deyja í miðju lagi“
Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni.

Reyna aftur að stöðva samruna Microsoft og Activision
Samkeppniseftirlit Bandaríkjanna áfrýjaði í gær úrskurði dómara um að Microsoft mætti kaupa leikjafyrirtækið Activision Blizzard. Samruninn yrði sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins.

Stefnir í verkfall Hollywood leikara
Verkalýðsfélag Hollywood leikara hefur lagt til að gripið verði til verkfallsaðgerða eftir að samningsfrestur rann út á miðnætti. Ef af verður, verður það í fyrsta sinn sem leikarar og handritshöfundar í Hollywood verða í verkfalli á sama tíma í sextíu ár.

Sakar Jonah Hill um að hafa troðið tungunni á sér upp í hana
Alexa Nikolas, leikkona og Nickelodeon stjarna, sakar bandaríska leikarann Jonah Hill um að hafa troðið tungunni á sér upp í hana þegar hún var sextán ára gömul.

Fá grænt ljós á stærsta samruna leikjaiðnaðarins
Microsoft fékk í gær grænt ljós á að ganga frá 69 milljarða dala kaupum fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Samruninn verður sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins og með kaupunum mun Microsoft koma höndum yfir vinsæla tölvuleiki eins og Call of Duty seríuna, Diablo, Overwatch, World of Warcraft og Candy Crush.

Madonna á batavegi
Tónlistarkonan Madonna var flutt á gjörgæslu í lok síðasta mánaðar vegna alvarlegrar bakteríusýkingar. Hún er núna á batavegi og er strax byrjuð að endurskipuleggja tónleikaferðalagið sitt.