Bandaríkin

Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu.

Seldi Sony allar upptökur sínar
Tónlistargoðsögnin Bob Dylan hefur selt útgáfufyrirtækinu Sony Music réttinn að öllum upptökum sínum.

Hefja réttarhöld yfir hinum lögreglumönnunum í máli George Floyd
Búist er við því að réttarhöld yfir þremur bandarískum lögreglumönnum, sem ákærðir eru fyrir að hafa svipt George Floyd borgaralegum réttindum sínum daginn sem hann var myrtur af fjórða lögreglumanninum, hefjist í dag.

Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu
Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið.

Stökkið: „Mér fannst ég vera í bíómynd á hverjum einasta degi“
Alexandra Sif Tryggvadóttir flutti til Los Angeles fyrir átta árum til þess að fara í nám við draumaskólann sinn UCLA. Hún býr þar ásamt kærastanum sínum Birni Jóni Þórssyni og starfar hjá Spotify við spennandi verkefni.

Vilja styrkja tengsl Bandaríkjanna og Íslands
Bandarískir fulltrúadeildaþingmenn hafa lagt fram frumvarp sem þeir kalla Íslandsfrumvarpið. Því er ætlað að styrkja tengsl milli Bandaríkjanna og Íslands með því að heimila sérstök atvinnulandvistarleyfi fyrir Íslendinga.

Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi
Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra.

Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu
Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir.

Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana
Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó.

Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu.

Laufey Lin spilaði fyrir Jimmy Kimmel
Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir flutti lagið sitt Like the Movies í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi.

Grátandi Adele neyðist til þess að fresta Las Vegas tónleikunum
Tónlistarkonan Adele hefur frestað fyrstu tónleikunum í Las Vegas sýningu sinni Weekend with Adele. Söngkonan var miður sín þegar hún kom fram í myndbandi á Instagram og tilkynnti aðdáendum sínum að sýningin væri einfaldlega ekki tilbúin.

Meat Loaf er látinn
Bandaríski rokkarinn og leikarinn Meat Loaf er látinn, 74 ára að aldri.

Blinken og Lavrov funda í Genf í dag
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið.

Innlit á fallegt heimili Vanessu Hudgens
Leik- og söngkonan Vanessa Hudgens sló fyrst í gegn sem Gabriella Montez í High School Musical myndunum. Nú síðast sást hún í kvikmyndinni Tick, Tick, Boom sem hlotið hefur góða dóma.

„Það er ekkert sem kallast minniháttar innrás“
Forseti Úkraínu svaraði Bandaríkjaforseta fyrr í dag og segir að það sé ekkert sem hægt sé að kalla minniháttar árás; rétt eins og það séu engin minniháttar mannaföll eða lítilsháttar hryggð vegna ástvinamissis.

Stjörnur tískuheimsins minnast André Leon Talley
Tísku goðsögnin og brautryðjandinn André Leon Talley féll frá fyrr í vikunni, 73 ára gamall.

„Rússarnir eru að sameina NATO“
Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið.

Allt gæti farið úr böndunum hjá Rússum
Prófessor í stjórnmálaheimspeki segir afleiðingar af mögulegri innrás Rússa í Úkraínu geta verið grafalvarlegar. Þegar spenna sé orðin eins mikil og nú þurfi lítið til að allt fari úr böndunum og stríð eða jafnvel styrjöld brjótist út.

Hæstiréttur brást vonum Trumps
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti.

Britney krefst þess að Jamie Lynn hætti að tala illa um sig
Lögmenn Britney Spears hafa farið fram á það að systir hennar, Jamie Lynn, hætti að tala illa um Britney í auglýsingaherferð fyrir bók sem hún var að gefa út. Í bréfi, sem lögmaður Britney hefur sent Jamie Lynn, segir hann sjálfsævisöguna innihalda villandi og fáránlegar staðhæfingar um Britney.

Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar
Ríkisstjórn Norður-Kóreu ætlar mögulega að hefja á nýjan leik tilraunir með langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Sú ákvörðun var tekin á ríkisráðsfundi í vikunni að Kim Jung-un, einræðisherra Norður-Kóreu, íhugaði að hefja tilraunirnar aftur vegna „óvinveittrar stefnu“ Bandaríkjanna í garð einræðisríkisins.

Maxwell óskar eftir nýjum réttarhöldum
Breska athafnakonan Ghislaine Maxwell hefur óskað eftir því að réttað verði í máli hennar að nýju. Hún var í lok desember sakfelld fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað bandaríska auðkýfingnum Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega.

Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög
Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra.

Biden telur Pútín hyggja á innrás og segir hann munu gjalda það dýru verði
Joe Biden Bandaríkjaforseti segist telja að Vladimír Pútín kollegi hans í Rússlandi hyggi á einhvers konar innrás í Úkraínu á næstunni.

„Áhugaverður“ fundur kolefnis á Mars mögulega til marks um lífrænt ferli
Við greiningu sýna af yfirborði Mars fann könnunarfarið Curiosity tegund kolefnis sem gjarnan er tengt við lífræn ferli. Það á í það minnsta við hér á jörðinni en þessi tegund kolefnis getur einnig myndast við ákveðin jarðfræðileg ferli.

Segjast hafa umtalsverð sönnunargögn um lögbrot
Starfsmenn ríkissaksóknara New York sögðust í gær hafa fundið umtalsverð sönnunargögn um að forsvarsmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hefðu beitt sviksömum og villandi leiðum til að fá lán og greiða lægri skatta.

André Leon Talley er fallinn frá
André Leon Talley, tískublaðamaður og fyrrverandi stjórnandi hjá bandaríska tímaritinu Vogue, er látinn, 73 ára að aldri.

Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið
Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta.

Í skyndiferð til Úkraínu til að sýna stuðning
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun fara til Úkraínu á morgun. Þar mun hann hitta Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, og ræða við hann um spennuna á landamærum Úkraínu annars vegar og Rússlands og Hvíta-Rússlands hins vegar.