Bandaríkin

Kim sagður vilja funda aftur með Trump
Svo virðist sem einræðisherra Norður-Kóreu vilji funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember. Þetta sagði starfsfólk leyniþjónustu Suður-Kóreu við þarlenda þingnefnd í dag.

Fjörutíu ár frá gíslatökunni í Íran
Íranar minnast þess í dag að fjörutíu ár eru liðin frá því stuðningsmenn íslamskrar byltingar landsins hertóku bandaríska sendiráðið.

Enn tapar Trump fyrir dómi varðandi skattskýrslur
Áfrýjunardómstóll úrskurðaði saksóknurum sem krefjast skattskýrslna Trump Bandaríkjaforseta í vil. Fastlega er búist við því að forsetinn áfrýi alla leið til Hæstaréttar Bandaríkjanna.

Trump hótar vitni og vill láta afhjúpa uppljóstrara
Bandaríkjaforseti boðar að hann láti birta upplýsingar um starfsmann hans eigins þjóðaröryggisráðs sem bar vitni í rannsókn Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Trump.

Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann
Stjórn skyndibitakeðjunnar segir Steve Easterbrook hafa sýnt af sér dómgreindarskort.

Hótar að draga alríkisaðstoð til baka
Donald Trump hótar því nú að láta alríkisstjórnina hætta að aðstoða Kalíforníuríki í baráttunni við skógarelda sem nú brenna víða í ríkinu.

Innflutningur á malavísku tóbaki bannaður í Bandaríkjunum vegna ásakana um barnaþrælkun
Bandaríkin hafa hætt öllum innflutningi á tóbaki frá Malaví vegna ásakana um barnaþrælkun.

Ferðast aftur í tímann með Tortímandanum
Terminator bálkurinn er hugarfóstur kvikmyndagerðarmannsins James Cameron, en hann bæði leikstýrði og skrifaði handritið að fyrstu tveimur myndunum. Kveikjan að sögunni kom þegar hann var staddur í Róm að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd Piranha II: The Spawning, ódýrri hryllingsmynd fyrir költmyndaframleiðandann Roger Corman.

Baulað á Bandaríkjaforseta á bardagakvöldi
Donald Trump Bandaríkjaforseti hlaut misgóðar viðtökur í Madison Square Garden-höllinni í New York í gærkvöldi þar sem hann var mættur til þess að fylgjast með UFC 244 bardagakvöldinu.

Airbnb bannar „samkvæmishús“ eftir fjöldamorð í hrekkjavökuveislu
Heimagistingaþjónustan Airbnb hefur skorið upp herör gegn svokölluðum "samkvæmishúsum“ eftir að fimm manns voru skotnir til bana í hrekkjavökuveislu í íbúðarhúsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum, sem leigt hafði verið í gegnum vefsíðu Airbnb.

Fimm nú látnir eftir skotárás í óleyfilegri hrekkjavökuveislu
Enginn hefur enn verið handtekinn vegna skotárásarinnar.

Segir O‘Rourke hafa „hætt eins og hundur“
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sagði í gær að fyrrverandi forsetaframbjóðandinn, Beto O'Rourke hafi "hætt eins og hundur,“ aðeins nokkrum klukkustundum eftir O'Rourke tilkynnti að hann hygðist hætta við framboð til forseta.

Hettusóttarfaraldur í einu stærsta fangelsi heims
Um fjögur hundruð fangar í karlafangelsi sýslumannsins í Los Angeles eru í einangrun vegna hettusóttarfaraldurs.

Skipað að þegja um áhyggjur sínar af símtali Trump og Zelenskíj
Lögfræðingur sem reyndi að takmarka aðgang að eftirrit símtalsins skipaði einnig starfsmanni þjóðaröryggisráðsins að halda áhyggjum af símtalinu út af fyrir sig.

O'Rourke dregur framboð sitt til baka
Fyrrverandi fulltrúadeildarþingmanninum frá Texas tókst aldrei að fanga sömu stemmingu og myndaðist í kringum framboð hans til öldungadeildarsætis Texas í fyrra.

Hundar í búningum á bandaríska þinginu
Hrekkjavökunni hefur verið fagnað víða um heim. Starfsmenn bandaríska þingsins klæddu gæludýr sín í búninga.

Kona fannst látin með kyrkislöngu hringaða um sig
Lögregluþjónar í Indiana í Bandaríkjunum fundu á miðvikudaginn lík konu sem 2,4 metra löng kyrkislanga var búin að hringa sig um.

Olía lak úr Keystone-leiðslunni í Norður-Dakóta
Rúmlega níu þúsund tunnur af olíu láku úr Keystone-olíuleiðslunni í Norður-Dakóta fyrr í vikunni.

Trump fluttur til Flórída
Trump segir ákvörðunina hafa verið tekna vegna þess hve illa stjórnmálamenn þar komi fram við hann. Það hafi sjaldan verið komið jafn illa fram við nokkurn mann og það þrátt fyrir að hann "greiði milljónir dala“ í skatta á ári hverju.

Ráðgjafi staðfesti að Trump sóttist eftir rannsóknum en taldi það ekki ólöglegt
Fyrrverandi starfsmaður þjóðaröryggisráðsins staðfesti framburð um að Trump hafi haldi eftir hernaðaraðstoð til Úkraínu til að þrýsta á um pólitískan greiða en sagðist þó ekki hafa talið það óviðeigandi eða ólöglegt.

Búið að velja eftirmann Baghdadi
Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa valið eftirmann Abu Bakr al-Baghdadi.

Þingið samþykkir að halda áfram rannsókn á Trump
Fulltrúadeild Bandaríska þingsins rannsakar enn hvort forsetinn hafi gerst sekur um embættisbrot.

Myndbönd af árásinni gegn Baghdadi: Varar við því að ISIS muni ná sér á strik aftur
Hershöfðinginn Kenneth McKenzie Jr. segir að líklega muni það taka forsvarsmenn Íslamska ríkisins einhvern tíma að ná sér á strik á nýjan leik, eftir að Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi samtakanna, dó um síðustu helgi.

Fiat Chrysler og Peugeot sameinast
Bílarisarnir Fiat Chrysler og Peugeot hafa ákveðið að sameina krafta sína en sameinað fyrirtæki verður fjórði stærsti bílaframleiðandi í heiminum.

Boða fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump fyrir þingnefndirnar
John Bolton ætlar ekki að koma sjálfviljugur fyrir nefndirnar en lögmaður hans segist tilbúinn að taka við stefnu. Bolton gæti verið lykilvitni um nokkur atriði í samskiptum Trump-stjórnarinnar við Úkraínu.

Samruni Fiat Chrysler og Peugeot Citroen til umræðu
Samkvæmt heimildum Wall Street Journal er samtal í gangi um samruna Fiat Chrysler og PSA (móðurfélags Peugeot, Citroen og DS). Samruninn er talinn vera 6,2 billjón króna virði.

Reyndi að bæta við eftirrit símtals Trump og Zelensky
Alexander S. Vindman, undirofursti, sagði þingmönnum í gær að honum hafi verið svo brugðið yfir framferði Trump gagnvart Úkraínu að hann hafi gert lögfræðingum þjóðaröryggisráðsins viðvart í tvígang.

Tólf skotnir í hrekkjavökuveislu í Long Beach
Að minnsta kosti þrír eru látnir og níu særðir eftir skotárás sem varð í hrekkjavökuveislu í heimahúsi í Long Beach í Kaliforníu í gærkvöldi.

Viðurkenna fjöldamorðin á Armenum sem þjóðarmorð
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi með yfirgnæfandi meirihluta ályktun þar sem segir að fjöldamorð Tyrkja á Armenum í fyrra stríði skuli viðurkennd sem þjóðarmorð.

Uppbygging bandarískra herstöðva
Forsetar Bandaríkjanna og Póllands samþykktu nýverið yfirlýsingu um verulega aukna viðveru bandarískra herja í Póllandi. Alls verða 5.500 bandarískir hermenn að staðaldri á sex stöðum í Póllandi til að vinna gegn hugsanlegum rússnesk