

Gagnsókn Úkraínumanna heldur áfram en hefur enn sem komið er skilað litlum árangri í formi frelsaðs landsvæðis. Úkraínskir hermenn sækja þó fram, bæði í suðurhluta landsins og í austri en töluverð óvissa ríkir um mannfall hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum.
Bandaríska söngkonan Katy Perry hefur selt rétt að öllum fimm plötum hennar til útgáfufyrirtækisins Litmus Music fyrir 225 milljónir Bandaríkjadala, eða um þrjátíu milljarða króna.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir heiminn verða að standa við bakið á Úkraínumönnum og standa gegn ofstopa Rússa. Engin þjóð yrði örugg ef Rússum yrði leyft að búta Úkraínu í sundur.
Bandaríski leikarinn Kevin Costner og fyrrverandi eiginkona hans, Christine Baumgartner, hafa náð sátt í skilnaðarmáli sínu. Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá þessu en mikið hefur verið fjallað um mál þeirra Costner og Baumgartner síðustu vikur og mánuði.
Tim Ballard, sem kvikmyndin Sound of Freedom hefur gert frægan, yfirgaf samtök sem hann stofnaði til að berjast gegn kynlífsþrælkun barna í kjölfar rannsóknar varðandi meinta kynferðislega áreitni hans gegn sjö konum. Hann er sagður hafa áreitt starfsmenn samtaka sem hann stofnaði í verkefnum sem ætlað var að bjarga börnum úr ánauð.
Brak úr F-35 herþotunni, sem landgöngulið Bandaríkjanna týndi um helgina, fannst í sveit í Suður-Karólínu í gær. Herinn hafði óskað eftir hjálp borgaranna við leit að vélinni en gat þó ekki staðfest að hún hefði brotlent.
„Maður getur ekkert forðast egó-ið alveg, það situr á öxlinni og er bara what’s up,“ segir listakonan Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter.
Tónlistarkonan heimsfræga Ariana Grande hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Dalton Gomez. Þau hafa verið gift í tvö ár.
Umdeild fangaskipti milli Bandaríkjamanna og Írana hafa átt sér stað. Fimm manns sem voru í fangelsi í Íran hefur verið sleppt í Katar. Yfirvöld í Íran hafa ítrekað verið sökuð um að handsama fólk af Vesturlöndum og nota það sem vogarafl í samskiptum við erlenda ráðamenn.
Repúblikanar í Wisconsin og Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vilja breyta því hvernig kosningum er stjórnað í ríkjunum. Bæði ríkin eru svokölluð sveifluríki og þykja því gífurlega mikilvæg þegar kemur að forsetakosningunum á næsta ári.
Hermálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa biðlað til almennings um aðstoð við að finna herþotu sem týndist einhvers staðar yfir Suður-Karólínu eftir að flugmaðurinn skaut sér úr þotunni.
Fulltrúadeildarþingkonan Lauren Boebert kennir sérviskulegum persónuleika sínum um hegðun sína á leiksýningunni Beetlejuice í vikunni. Boebert og kærasta hennar var sparkað úr leikhúsi í Denver fyrir að reykja rafrettu og vera með háreysti.
Faðir fjórtán ára trans stráks vonar að Ísland geti orðið að griðastað fyrir son sinn í framtíðinni. Hann segir það átakanlegt að hafa fylgst með umræðunni á Íslandi undanfarið og vonast til að Íslendingar takist á við andbyrinn.
Bandaríski leikarinn Steve Martin þvertekur fyrir að hafa kýlt bresku leikkonuna Miriam Margolyes við tökur á grínmyndinni Litlu hryllingsbúðinni frá 1986. Margolyes segir Martin hafa kýlt sig í alvörunni en ekki í þykjustunni.
Fjölskylda náinna systkina sem féllu frá með níu ára millibili ætla að sjá til þess að minning þeirra gleymist aldrei. Þau vonast til að geta hjálpað þeim sem lenda í áfalli á borð við það sem þau urðu fyrir fyrir áratug.
Myndband úr öryggismyndavél úr skóla í Ohio-ríki Bandaríkjanna sýnir það þegar starfsmaður skólans hleypur á eftir þriggja ára barni, slær það í hausinn sem veldur því að barnið fellur til jarðar, en í kjölfarið tekur starfsmaðurinn barnið upp á fótleggjunum.
Bandarísk stjórnvöld telja Li Shangfu, varnarmálaráðherra Kína, sæta rannsókn og vera haldið í stofufangelsi. Li sást síðast þegar hann flutti ræðu á friðar- og öryggisráðstefnu Kína og Afríkuríkjanna þann 29. ágúst síðastliðinn.
Lauren Boebert, fulltrúadeildarþingmanni í Bandaríkjunum, var sparkað úr leikhúsi í Denver í gærkvöldi fyrir að hafa reykt rafsígarettu, verið í símanum og með háreysti.
Verkalýðsfélag starfsmanna í bílaiðnaði í Bandaríkjunum hefur nú hafið verkfallsaðgerðir eftir að samningaviðræður við stóru bílarisana þrjá í Banndaríkjunum fóru endanlega út um þúfur.
Alríkissaksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sagður hafa komist ólöglega yfir skotvopn í október árið 2018, eftir að hafa logið til um að neyta ekki né vera háður fíkniefnum.
Utanríkisráðuneytið segir ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn tveimur Íslendingum sem tóku þátt í „kosningaeftirliti“ í Kherson á dögunum, einu þeirra svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu.
Alex Jones, samsæringur, hefur ekki greitt fjölskyldum barna sem myrt voru í Sandy Hook árásinni árið 2012 krónu. Hann spreðar þó peningum sínum og eyddi til að mynda 93 þúsund dölum í júlí en það samsvarar um 12,8 milljónum króna. Jones var í fyrra dæmdur til að greiða fjölskyldunum tæplega einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur.
Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX og eigandi samskiptamiðilsins X (áður Twitter), segir menn hafa verið á einu máli um mikilvægi regluverks um gervigreind þegar margir af helstu þungavigtarmönnum tæknigeirans funduðu með stjórnmálamönnum vestanhafs í miðvikudag.
Emma Coronel Aispuro, eiginkona mexíkóska fíkniefnabarónsins víðfræga, Joaquín Guzmán, eða El Chapo, er laus úr fangelsi í Bandaríkjunum. Hún lauk afplánun þriggja ára fangelsisdóms eftir að hún játaði þrjú brot árið 2021 sem sneru að því að hún hefði hjálpað eiginmanni sínum að reka glæpaveldi hans.
Danelo Cavalcante, morðingi sem hefur gengið laus síðustu tvær vikur, hefur verið gómaður. Hann slapp úr fangelsi í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna á ótrúlegan átt á dögunum.
Dæmdur morðingi sem gengið hefur laus í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í tæpar tvær vikur er vopnaður. Hann er sagður hafa fundið riffil í skúr sem hann fór inn í.
Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í dag að opnuð yrði formleg rannsókn sem beinist að Joe Biden, forseta, og ætlað væri að kanna hvort tilefni væri til að ákæra hann fyrir embættisbrot. Rannsóknin á að beinast að viðskiptaumsvifum fjölskyldu Bidens.
Arnar Geirsson, hjartaskurðlæknir, hefur verið ráðinn forstöðumaður hjarta- og æðasjúkdómastofu og yfirskurðlæknir hjartalokuprógramms NewYork Presbyterian-sjúkrahússins og Irving læknamiðstöðvarinnar hjá Columbia-háskólanum í New York-borg. Hann er einnig skipaður prófessor í skurðlækningum við brjósthols- og æðaskurðlæknadeild Columbia-háskólans.
Frambjóðandi Demókrataflokksins til fulltrúaþings Virginíuríkis Bandaríkjanna stundaði kynlíf með eiginmanni sínum í beinu streymi. Hún er meðal annars sögð hafa beðið áhorfendur um þjórfé gegn því að hún og eiginmaður hennar myndu framkvæma ákveðnar kynferðislegar athafnir.
Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa lagt fram kröfu um að dómarinn Tanya Chutkan stígi til hliðar. Það á hún að gera á þeim grundvelli að hún hafi sýnt fram á óhlutlægni í garð Trumps.