Lögreglumál
85 86 87 88 89 90 91 92 93 … 274 ›
Lögregla kölluð til vegna barna í tölvuleik Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna hávaða í börnum sem voru að spila tölvuleik í dag. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu varðandi mál frá klukkan 07-17. Þá var tilkynnt um aðila með hníf í hverfi 105 en maðurinn fannst ekki þrátt fyrir leit. Innlent 4.12.2022 17:22
Fimm réðust á gest veitingahúss í Kópavogi Veitingahússgestur í Kópavogi hlaut áverka á höndum og fótum þegar ráðist var á hann á öðrum tímanum í nótt. Fimm manns eru sagðir hafa tekið þátt í árásinni en þeir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Innlent 4.12.2022 07:38
Grímuklæddur maður rændi verslun Maður sem rændi verslun í póstnúmeri 108 í Reykjavík í gærkvöldi komst undan á hlaupum. Hann var grímuklæddur og hrifsaði með sér fjármuni í sjóðsvél verslunarinnar. Innlent 3.12.2022 08:03
Ráðist á húsráðanda þegar hann opnaði útidyrnar Karlmaður hringdi dyrabjöllu húss í hverfi 103 í Reykjavík og réðst á húsráðanda þegar hann opnaði dyrnar skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði en lögregla telur sig kunna deili á honum. Innlent 3.12.2022 07:45
Handtóku mann eftir ítrekuð afskipti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær mann í annarlegu ástandi eftir að hafa ítrekað þurft að hafa afskipti af honum. Fór hann ekki að fyrirmælum lögreglu og er grunaður um brot á lögreglusamþykkt. Innlent 2.12.2022 06:55
Í gæsluvarðhald grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður sem réðst að fyrrverandi eiginkonu sinni með öxi fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal í gær hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Innlent 1.12.2022 14:51
Byssumaðurinn í Hafnarfirði metinn ósakhæfur Karlmaður sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í júní á þessu ári er ósakhæfur. Maðurinn hafði verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en maður var ásamt syni sínum inni í öðrum bílnum þegar árásin átti sér stað. Innlent 1.12.2022 14:13
Lögreglan lýsir aftur eftir Arturs Jansons Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arturs Jansons, 28 ára, frá Lettlandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Arturs er ekki talinn hættulegur. Innlent 1.12.2022 13:24
Þekktir menn í undirheimunum viti helst hvað komið hafi fyrir Friðfinn „Það er búið að vinna úr öllum ábendingum. Velta öllum steinum. En sorglegu tíðindin eru þau að hann finnst ekki,“ segir Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns Freys Kristinssonar sem hvarf sporlaust þann 10. nóvember síðastliðinn. Innlent 1.12.2022 09:01
Gestur olli skemmdum á hótelherbergi og hótaði starfsfólki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborginni í gærkvöldi vegna hótelgests sem hafði valdið skemmdum á hótelherbergi sínu og hafði í hótunum við starfsfólk. Málið er í rannsókn, segir í tilkynningu frá lögreglu um verkefni næturinnar. Innlent 1.12.2022 06:12
Réðst á konu með öxi fyrir framan grunnskóla Maður réðst á fyrrverandi konu sína með öxi fyrir framan Dalskóla seinni partinn í gær. Mörg vitni urðu að árásinni, þar á meðal börn. Konan var flutt á spítala, talsvert slösuð en er ekki talin í lífshættu. Lögreglan hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Innlent 30.11.2022 17:39
Rannsókn á skipulagningu hryðjuverka lokið og boltinn hjá saksóknara Rannsókn í máli tveggja manna sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka er nú lokið og eru gögnin komin til saksóknara sem ákveður næstu skref og hvort ákæra verði gefin út. Mennirnir hafa verið í gæsluvarðhaldi í tíu vikur og verða þar áfram í hið minnsta fram á næstu viku. Innlent 30.11.2022 16:32
Tuttugu og tvær nauðganir tilkynntar á mánuði Alls barst lögreglu 195 tilkynningar um nauðganir á fyrstu níu mánuðum ársins og var því að jafnaði tilkynnt um 22 nauðganir á mánuði. Um er að ræða 26 prósent aukningu frá því í fyrra. Blygðunarsemisbrotum og kynferðisbrotum gagnvart börnum fækkar á sama tíma. Innlent 30.11.2022 14:11
Gerir stjórnvöldum kleift að stíga mjög ákveðin skref Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að aukin framlög til löggæslu- og fangelsismála sem gert sé ráð fyrir í breytingartillögum fjármálaráðherra við fjárlög muni gera mönnum kleift að stíga mjög ákveðin skref í rannsóknum og greiningum á skipulagðri glæpastarfsemi. Innlent 29.11.2022 11:03
Að meðaltali sjö tilkynningar á dag um heimilisofbeldi eða ágreining Tæplega átján hundruð tilkynningar bárust lögreglunni á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila á fyrstu níu mánuðum ársins. Jafngildir það að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag og hafa þær aldrei verið fleiri ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára. Á sama tíma hefur tilkynningum um ofbeldi foreldris í garð barns fjölgað. Innlent 29.11.2022 10:14
Lögregla kölluð til vegna grunsamlegs pakka í Hlíðahverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna líkamsárásar í póstnúmerinu 111 um klukkan 22 í gærkvöldi. Áverkar þolandans reyndust minniháttar en ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. Innlent 29.11.2022 06:26
Viðbrögðin megi ekki verða verri en vandamálið Borgarstjóri segist sleginn eftir hnífstunguárás á Bankastræti club fyrir viku. Nýr veruleiki blasi við en ekki megi fara offari í viðbrögðum. Starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið vikið frá störfum fyrir að leka myndbandi af árásinni. Þá eru nú fimm sakborningar í haldi eftir að einum var sleppt í dag og varðhald framlengt yfir fjórum. Innlent 28.11.2022 20:09
Gæsluvarðhald fjögurra framlengt og einum sleppt Gæsluvarðhald yfir fjórum, sem taldir eru tengjast árásinni á Bankastræti club fyrir tíu dögum, var framlengt í dag. Einum var sleppt úr haldi og nú sitja alls fimm í gæsluvarðhaldi í tengslum við árásina. Innlent 28.11.2022 18:27
Vikið úr starfi fyrir að dreifa myndskeiðum frá Bankastræti Club Starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið vikið úr starfi fyrir að hafa staðið að dreifingu á myndskeiði af hnífstunguárásinni á Bankastræti Club fyrr í mánuðinum. Talið er að starfsmaðurinn hafi ekki ætlað að myndböndin færu til fjölmiðla. Innlent 28.11.2022 15:55
Hafa ekki lagt það í vana sinn að skrópa þegar kallið kemur Samtök reykvískra skemmtistaða hafa farið fram á annan fund með mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar. Fjarvera stjórnarinnar á fundi sem haldinn var á fimmtudag skýrist af því að fundarboð barst ekki. Lögregla verður áfram með aukinn viðbúnað í miðbænum eftir hnífaárás á Bankastræti club fyrr í mánuðinum. Innlent 28.11.2022 13:45
Óvarkárt orðalag um afbrot ýtir undir fordóma „Þetta snýst fyrst og fremst um orðanotkun. Ég held að það væri farsælla fyrir alla að sleppa því að nota þetta og hugsa um þetta á annan hátt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur en hún telur óvarkárt orðalag um afbrot ala á fordómum. Innlent 27.11.2022 21:14
Neitaði að yfirgefa lögreglustöð þrátt fyrir að vera laus úr haldi Ofurölvi einstaklingur sem fluttur var á lögreglustöð í nótt neitaði að fara heim þrátt fyrir að vera laus úr haldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en talsverður erill var hjá lögreglunni í nótt. Innlent 27.11.2022 17:48
„Það er raunveruleg ógn sem að okkur steðjar“ Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að styrkja lögregluna og þá sérstaklega varðandi rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og varðandi forvarnir. Aukin notkun stunguvopna kallaði líka eftir því að lögregluþjónar fengju rafmagnsbyssur. Innlent 27.11.2022 13:32
Ruddist inn í íbúð í miðbænum og sofnaði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um mann sem hafði farið óvelkominn inn í íbúð í miðbænum. Þetta var klukkan sjö í gærkvöldi en þegar lögregluþjóna bar að garði var maðurinn sofandi í íbúðinni en hann hafði valdið einhverju tjóni þar. Innlent 27.11.2022 07:23
Foreldrar á Seltjarnarnesi segja ástandið ólíðandi Foreldrafélag Grunnskóla Seltjarnarness segir ástand í æskulýðsmálum á Seltjarnarnesi ólíðandi. Sveitarfélagið hafi dregið það of lengi að endurvekja stöðu æskulýðsfulltrúa sem var lögð niður fyrir tveimur árum og ekki sé boðlegt að íþróttafélag hverfisins leigi menntaskólanemum sali sína undir bjórkvöld. Innlent 26.11.2022 18:20
Aukinn viðbúnaður í miðbænum næstu daga Lítið var um að vera í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt þrátt fyrir áhyggjur lögreglu um átök milli hópa. Lögregla var með aukinn viðbúnað í miðbænum vegna deilna sem hófust með stunguárás í Bankastræti Club fyrir rúmri viku síðan. Innlent 26.11.2022 16:28
Grótta nörruð til að leigja ungmennum veislusal Íþróttafélagið Grótta segist leggja sig fram við að leigja veislusal félagsins ekki ungmennum sem ekki hafa náð áfengiskaupaaldri. Fjölmennt lið lögreglu leysti upp bjórkvöld menntaskólanema í salnum í gær. Félagið segir 23 ára einstakling hafa leigt salinn og lofað að allir gestir yrðu tvítugir eða eldri. Innlent 26.11.2022 14:26
Umræðan hafði mikil áhrif á næturlífið: „Þetta var ákveðinn draugabær“ Lítið sem ekkert var að gera á öldurhúsum miðbæjar Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Veitingamenn segja umræðu undanfarinna daga ótvírætt hafa fælt fólk frá næturlífinu. Innlent 26.11.2022 12:10
Ölvun en lítið um átök í miðbænum Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu þurftu að hafa afskipti af þó nokkrum ölvuðum einstaklingum í miðbænum og víðar. Einnig var tilkynnt um líkamsárás í miðbænum þar sem meintur árásarmaður var handtekinn. Innlent 26.11.2022 07:27
Uppfært: Hvorki vopn né grímur á bjórkvöldi ungmenna á Nesinu Fjölmennt lið lögreglu leysti upp bjórkvöld menntaskólanema í samkomusal í Íþróttamiðstöðinni á Seltjarnarnesi laust eftir miðnætti. Mikil ölvun var á staðnum og fjölmargir menntaskólanemar á aldrinum 16 til 17 ára meðal gesta. Innlent 26.11.2022 02:05