Frjálsar íþróttir

Mo Farah var seldur í mansal sem barn
Langhlauparinn Sir Mo Farah var seldur í mansal sem barn en hann kom til Bretlands frá Sómalíu þegar hann var einungis níu ára gamall. Hann var látinn gera húsverk hjá fjölskyldu í Bretlandi og fékk ekki að fara í skóla fyrstu þrjú árin.

Guðni Valur kastaði sig inn á EM - myndskeið
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason kastaði kringlu sinni yfir lágmark fyrir komandi Evrópumót þegar hann tók þátt á Nike-móti FH í dag.

Duplantis setur enn eitt heimsmetið
Svíinn Armand Duplantis sló í kvöld heimsmetið í stangarstökki utandyra. Hann fór yfir 6,16 metra.

Lengdu bannið hennar í ellefu ár
Nígeríska spretthlaupakonan Blessing Okagbare verður í banni í rúmlegan áratug eftir að bann hennar var lengt í gær.

Afrekaði það sama og stórstjarnan faðir hans en bara 46 árum seinna
Þeir sem muna eftir súperstjörnunni Daley Thompson ætti að hafa gaman af því að sjá Elliot Thompson feta í fótspor föður síns á breska meistaramótinu í frjálsum íþróttum um helgina.

Íris Anna og Daníel Ingi unnu flest gull á meistaramótinu í frjálsum íþróttum
FH-ingarnir Íris Anna Skúladóttir og Daníel Ingi Egilsson voru sigursælust á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fór fram á heimavelli þeirra í Kaplakrika um helgina.

Hættir við að keppa á HM af því að keppnin fer fram á sunnudegi
Bandaríski stangarstökkvarinn Alina McDonald vann sér um helgina sæti á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í næsta mánuði með því að ná öðru sæti á bandaríska meistaramótinu. Hún mun þó ekki þiggja það.

Ráðist á hlaupara skömmu fyrir keppni en hann vann samt og það á mettíma
Franski frjálsíþróttamaðurinn Wilfried Happio lét ekki líkamsárás í upphitun stöðva sig á franska meistaramótinu í frjálsum íþróttum um helgina.

Hlynur kom fyrstur í mark á nýju mótsmeti
Hlauparinn Hlynur Andrésson úr ÍR kom fyrstur í mark í 5000 metra hlaupi á nýju mótsmeti á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór um helgina. Í kvennaflokki var það Íris Anna Skúladóttir sem kom fyrst í mark.

Guðni Valur rétt marði sigur og Erna Sóley vann með yfirburðum
Íslandsmethafinn í kringlukasti, Guðni Valur Guðnason úr ÍR, rétt marði sigur í kringlukasti karla á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fer í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina. Þá sigraði Íslandsmethafinn Erna Sóley Gunnarsdóttir í kúluvarpi kvenna.

Gætu fylgt í fótspor FINA og bannað transkonur frá keppni í kvennaflokki
Sebastian Coe, forseti alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, hefur gefið í skyn að sambandið gæti fylgt í fótspor alþjóðasundsambandsins FINA og bannað transkonum að taka þátt í kvennaflokki.

Bætingar í Breiðholti á 115 ára afmæli ÍR
Það er ekki lítið sem ÍR hefur lagt til samfélagsins á sinni 115 ára sögu! Á frjálsíþróttasviðinu voru ÍR-ingar í fararbroddi á síðustu öld allt frá upphafi, báðir verðlaunahafar Íslands á Ólympíuleikum ÍR-ingar. Fjöldi annarra Ólympíufara, landsliðsmanna og leiðtoga hefur stolt borið ÍR merkið í barmi.

Gamlir mótherjar mætast á Landsmóti UMFÍ 50+
„Þarna fær maður tækifæri til að rifja upp mjög gamla takta og spila við gamla keppinauta sem maður hefur kannski ekki séð í mörg ár. Keppnisandinn er enn til staðar og menn stífna upp í vöðvum og fá tak í nára, sem er mjög vinsælt á Landsmótinu 50+. Ég fékk einmitt tak aftan í læri á síðasta móti þannig að þetta kemur fyrir bestu menn,“ segir Garðar Jónsson en hann tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Borgarnesi 24. til 26. júní.

Frjálsíþróttastarfið í forgangi á þessum velli og í fyrsta skipti í Reykjavík
ÍR-ingar tóku nýverið í gagnið glænýja frjálsíþróttaaðstöðu í Breiðholti. Hægt er að skoppa þar og hoppa í allar áttir. Rætt var við Þráin Hafsteinsson, fyrrverandi yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar ÍR til 22. ára en hann kom að skipulagningu svæðisins.

Bætti eigið Íslandsmet
Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir, úr ÍR, bætti í dag eigið Íslandsmet á móti sem fram fer í Þýskalandi.

„Er búinn að vera á leiðinni heim í 36 ár“
Vésteinn Hafsteinsson er staddur í heimabænum, Selfossi, með þrjá af fremstu kringlukösturum heims. Hann hélt fyrirlestur í gær og um helgina keppa strákarnir hans á afmælismóti Frjálsíþróttasambands Íslands.

Frá Selfossi að Ólympíugulli: Vésteinn með fyrirlestur á morgun
Vésteinn Hafsteinsson er mættur til Íslands með bæði gull- og silfurstrákinn sinn frá því á Ólympíuleikunum í Tókýó á síðasta ári.

Ólympíumeistarinn bauðst til að sýna kynfærin til að sanna kyn sitt
Hlaupakonan Caster Semenya var sú besta í heimi þegar hún þurfti ekki lengur bara að keppa við andstæðinga sína heldur einnig fyrir rétti sínum að fá að keppa sem kona.

Baldvin valinn verðmætastur
Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon bætti við sig nafnbót um helgina þegar hann var valinn verðmætasti keppandinn á svæðismóti Mið-Ameríku háskólariðilsins í frjálsum íþróttum í Bandaríkjunum. Erna Sóley Gunnarsdóttir varð svæðismeistari í kúluvarpi.

Dagbjartur og Baldvin svæðismeistarar í Bandaríkjunum
ÍR-ingurinn Dagbjartur Daði Jónsson og Akureyringurinn Baldvin Þór Magnússon fögnuðu báðir gullverðlaunum á svæðismótum í frjálsum íþróttum í Bandaríkjunum í gær.

Íþróttafólkið sem keppir um atkvæði á laugardaginn
Heimsmeistari, ólympíufarar og margfaldir Íslandsmeistarar eru á framboðslistum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn. Þar keppa líka samherjar um atkvæði kjósenda.

Átján ára strákur nálgast heimsmet Usain Bolt
Erriyon Knighton er nafn sem fólk fer að heyra miklu meira af í framtíðinni en þetta er ekkert venjulegt spretthlauparaefni.

Ekki útilokað að þjóðarhöllin rísi utan borgarmarka
Sífellt bætist í þau sveitarfélög sem eru tilbúin að reisa þjóðarhöll fyrir landslið Íslands. Ráðherrar segja Reykjavík vænlegasta staðinn fyrir slíka höll en að leita verði annað ef samningar nást ekki við borgina á næstu dögum.

Frjálsíþróttafólk víkur vegna tölvuleikjamóts: „Auðvitað alveg fáránlegt“
„Þetta er auðvitað alveg fáránlegt að æfingaaðstaðan sé enn og aftur að loka!“ skrifar ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason nú þegar frjálsíþróttafólk missir aðstöðu sína í Laugardalshöll á ný vegna tölvuleikjamóts.

Sjáðu Ernu kasta kúlunni yfir sautján metra fyrst íslenskra kvenna
Erna Sóley Gunnarsdóttir setti nýtt Íslandsmet í kúluvarpi um helgina á Texas Relays móti í Austin Texas-fylki og náði þá fyrst yfir sautján metra.

Erna setti nýtt Íslandsmet í kúluvarpi
Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR setti nýtt Íslandsmet í kúluvarpi utanhús í Texas í gær þegar hún varpaði kúlunni 17,29 metra.

Varð margfaldur meistari í tveimur íþróttagreinum um helgina
Það er óhætt að segja að það hafi verið mikið að gera hjá Ísold Sævarsdóttur um helgina. Þessi fimmtán ára stelpa safnaði þá að sér titlum í tveimur íþróttagreinum.

„Pabbi má alveg segja þetta en ég þarf að fara að sofa“
Armand Duplantis hélt áfram að heilla frjálsíþróttaheiminn um helgina með nýju heimsmeti í stangarstökki, og nú í fyrsta sinn fyrir framan föður sinn, Greg.

Tvö þúsund kílómetra flótti endaði með úkraínsku HM gulli
Yaroslava Mahuchikh var án efa ein af eftirminnilegustu heimsmeisturum helgarinnar á HM innanhúss í frjálsum íþróttum í Belgrad.

Duplantis bætti eigið heimsmet enn á ný
Hinn sænski Armand Gustav Duplantis bætti eigið heimsmet í stangarstökki enn á ný en aðeins eru 13 dagar síðan hann bætti það síðast.