
Video kassi sport íþróttir

Bardagi Gunnars Nelson í heild sinni
Eins og alþjóð veit hafði Gunnar Nelson betur gegn Jorge Santiago í UFC-bardaga í London á laugardagskvöldið.

Hér eru öll mörkin hans Messi fyrir Barcelona - frá 1 til 301
Lionel Messi tryggði Barcelona 2-1 endurkomusigur á Granada í spænsku úrvalsdeildinni með því að skora tvö mörk í seinni hálfleiknum. Messi braut þrjú hundruð marka múrinn með fyrra markinu og hefur nú skorað 301 mark í 366 leikjum fyrir Barcelona.

Fagnaði glæsimarki með því að kyssa mömmu sína
Damien Diaz, leikmaður ekvadorska Barcelona-liðsins, skoraði stórglæsilegt mark í Copa Libertadores og fagnaði því líka á eftirminnilegan hátt.

Hvað varstu að hugsa drengur?
Sergio Asenjo, markvörður Atletico Madrid, gerði sig sekan um hræðileg mistök í leik liðsins gegn Rubin Kazan í Evrópudeildinni í gær.

Glæsitilþrif De Gea | Myndband
Spánverjinn David De Gea átti frábæran leik í marki Manchester United sem gerði 1-1 jafntefli við Real Madrid í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Messan: Lampard minnir á sig
Frank Lampard, leikmaður Chelsea, hefur verið sjóðheitur með liði sínu og landsliði að undanförnu.

Condoleeza rotaði áhorfanda | Myndband
Condoleeza Rice, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn á kaf í golfið og hún tekur nú þátt á PRO AM-móti á Pebble Beach. Það hefur gengið misjafnlega.

Glæsileg hjólhestaspyrna | Myndband
Bandaríkjamenn töpuðu óvænt, 2-1, fyrir Hondúras í undankeppni HM í gær. Fyrra mark Hondúras var af dýrari gerðinni.

Hljóp inn á völlinn og kyssti Messi | Myndband
Vinsældir Argentínumannsins Lionel Messi um allan heim eru ótrúlegar. Líka í Svíþjóð þar sem einn aðdáandi hans hljóp inn á völlinn í gær til þess eins að kyssa hann.

Klúður ársins hjá Shelvey | Myndband
Jonjo Shelvey, leikmaður Liverpool, bauð upp á klúður ársins er hann spilaði með enska U-21 árs liðinu gegn Svíum í gær.

Áhorfandi stökk á markvörð
Það virðist vera að færast í aukana hjá áhorfendum að hlaupa inn á knattspyrnuvelli og reyna að lemja markvörð annars hvors liðsins.

Gazza í skelfilegu ástandi | Myndband
Eins og fram hefur komið á Vísi þá hafa vinir og aðstandendur Paul Gascoigne miklar áhyggjur af honum og óttast að hann sé að drepa sig með drykkju.

Glórulaust rautt spjald | Myndband
Hollenskur dómari gaf glórulaust rautt spjald á dögunum í leik Ado Den Haag og Roda án þess að hugsa sig tvisvar um.

Barkley tók yfir veðurfréttirnar
Charles Barkley, fyrrum NBA-leikmaður, er mikið ólíkindatól. Það sannaði hann rækilega er hann tók yfir veðurfréttirnar á sjónvarpsstöð í Phoenix.

LeBron tryllist af fögnuði
LeBron James fagnaði eins og óður með áhorfenda sem setti niður skot sem tryggði honum næstum tíu milljónir króna í verðlaun.

Flottasti bakgarður heims | Myndband
Langar þig að spila Augusta, St. Andrews, Sawgrass og Pebble Beach-golfvellina á einum og sama stað? Þá þarft þú að heimsækja Dave Pelz, fyrrum starfsmann Nasa og núverandi golfkennara. Hann hefur kennt mönnum eins og Phil Mickelson, Vijay Singh, Payne Stewart og Lee Janzen.

Hvað varstu eiginlega að hugsa?
Eunan O'Kane, varnarmaður Bournemouth, er ekkert í sérstöku uppáhaldi hjá félögum sínum eftir að hann gaf víti á fáranlegan hátt í leik gegn Walsall.

Svaraði síma blaðamanns | Rabbaði við eiginkonuna
Neil Lennon, stjóri skoska stórliðsins Celtic, er með húmorinn í lagi. Hann svaraði síma blaðamanns á nýlegum blaðamannafundi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Ótrúlegt klúður í skíðastökki | Myndband
Japaninn Daiki Ito er orðinn heimsfrægur enda fer ævintýraleg skíðastökktilraun hans sem eldur í sinu um veraldarvefinn í dag.

Stuðningsmenn Íslands syngja um Kára Kristján | myndband
Það er allt undir hjá strákunum okkar klukkan 19.15 í kvöld er þeir mæta heims- og Ólympíumeisturum Frakka í 16-liða úrslitum HM.

Öll mörk Íslands gegn Katar | Myndband
Hér má sjá öll mörkin 39 sem Ísland skoraði gegn Katar á HM í handbolta, sem og tilþrif markvarðanna Arons Rafns Eðvarðssonar og Björgvins Páls Gústavssonar.

Ísland! Ekki Danmörk
Það er stórleikur í dag. Ísland þarf að vinna Katar og Danir þurfa líka að vinna Makedóníu. Burtséð frá því eru íslensku aðdáendurnir í Sevilla með formsatriðin á hreinu.

Ótrúlegt skot frá miðju | myndband
Það er fastur liður á körfuboltaleikjum út um allan heim að menn reyni að hitta ofan í körfuna frá miðju í leikhléum og hálfleik.

Þreyta er engin afsökun | myndband
Það er sannkallaður stórleikur á HM í kvöld er Ísland og Danmörk mætast á heimsmeistaramótinu á Spáni. Það er mikið undir í þessum leik gegn frændum okkar. Það er landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson sem gefur tóninn en Of Monsters and Men leika fyrir dansi í myndbandinu hér að ofan.

Mikkel Hansen reiknar með jöfnum leik
Mikkel Hansen, lykilmaður í Evrópumeistaraliði Dana, þekkir vel til íslenska liðsins og reiknar með erfiðum leik í kvöld.

Tiger og Rory fara á kostum í nýrri Nike-auglýsingu
Nike tilkynnti í gær að það væri búið að gera risasamning við kylfinginn Rory McIlroy sem gerir hann að einum launahæsta íþróttamanni heims.

Stórleikur gegn Makedóníu í dag
Það er stórleikur hjá strákunum okkar í dag er þeir mæta Makedóníu í lykilleik fyrir bæði lið sem mega ekki við því að tapa.

Messi talar japönsku | Myndband
Lionel Messi setur það ekki fyrir sig að segja nokkur orð á japönsku fyrir sjónvarpsauglýsingu.

Casillas kleip Ronaldo í rassinn
Það hefur verið mikið talað um það í vetur að ekki sé allt í góðu í samskiptum þeirra Iker Casillas og Cristiano Ronaldo en þeir spila saman hjá Real Madrid.

Arsenal-leikskóli í Noregi
Það eru til eldheitir stuðningsmenn enska boltans út um allan heim. Norskir stuðningsmenn Arsenal sem reka leikskóla ganga þó lengra en flestir aðrir.