Eldgos og jarðhræringar

Fylgjast með hvort kvika sé á flæði undir Krýsuvík
Reykjanesskaginn heldur áfram að nötra og hafa sjö skjálftar í dag mælst milli þrjú og fjögur stig. Jarðvísindamenn sjá þó skýr merki þess að dregið hafi úr hrinunni eftir stóra skjálftann í gær.

Líkur á frekari jarðskjálftum nær höfuðborgarsvæðinu
Líkur eru á frekari jarðskjálftum á suðvesturhorninu á næstu árum og þá sérstaklega jarðskjálfta með upptök við Brennisteinsfjöll, sem er töluvert nær höfuðborgarsvæðinu en skjálftinn sem varð í gær.

Rotaðist í fjallgöngu í skjálftanum
Jarðskjálfti og rothögg voru ekki ofarlega í huga Benedikts Þórðar Jakobssonar sem skellti sér í fjallgöngu með hundi sínum á Keili á Reykjanesi eftir hádegið í gær.

Sprettur Helga og viðbrögð Katrínar vekja heimsathygli
Það er óhætt að segja að jarðskjálftinn stór sem reið yfir Suvesturhorn landsins hafi vakið athygli landsmanna, en svo virðist sem að hann hafi einnig vakið viðbrögð út fyrir landsteinana.

Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri
Eftirskjálftar eftir stóra skjálftann í gær eru orðnir hátt í 2000 talsins; frá miðnætti hafa þeir verið á milli 700 og 800.

Tveir snarpir skjálftar í morgunsárið
Um 1700 eftirskjálftar hafa mælst síðan í gær þegar jarðskjálfti að stærð 5,6 varð vestan við Kleifarvatn klukkan 13:43.

Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út
Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum.

„Ég hefði átt að taka forseta Alþingis með mér“
Jarðskjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og var hann á allra vörum í dag.

Stærsti eftirskjálftinn yfir fjórir að stærð
Um 300 eftirskjálftar hafa mælst í og við svæðið þar sem stóri skjálftinn átti upptök sín í dag.

Djúpavatnsleið lokuð eftir grjóthrun
Veginum um Djúpavatnsleið á Reykjanesi, nærri upptökum skjálfta sem orðið hafa síðdegis, hefur verið lokað vegna grótfalls.

Engar tilkynningar um slys á fólki
Engar tilkynningar hafa borist almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um slys á fólki eða tjón á mannvirkjum í tengslum við stóran jarðskjálfta sem reið yfir á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag.

Myndband sýnir vel hvernig jarðskjálftinn gekk yfir
Myndband sem Borgnesingurinn Heiðrún Helga Bjarnadóttir tók upp á meðan jarðskálftinn reið yfir Suðvesturhornið í dag sýnir vel hvernig hann gekk yfir.

Snarpur eftirskjálfti fannst í höfuðborginni
Nokkuð snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu um klukkan 15:32.

Allt skalf og nötraði hjá þríeykinu sem hélt kúlinu
Alma Möller landlæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason voru saman á fundi í húsakynnum Landlæknis í Katrínartúni 2, Höfðatorgsturninum, þegar stór skjálfti reið yfir suðvesturhornið klukkan 13:43.

Einn stærsti skjálftinn á Reykjanesi í þrjátíu ár
Náttúruvársérfræðingur segir að engin merki séu um gosóróa í tengslum við stóran jarðskjálfta sem varð á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag.

Svona á að bregðast við í jarðskjálfta
Jarðskjálfti að stærð 5,6 varð á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag. Fólk fann vel fyrir skjálftanum á suðvesturhorninu og jafnvel vestur á firði. Um fimmtíu eftirskjálftar hafa orðið á svæðinu í kjölfarið.

Brá við skjálftann en allir héldu ró sinni
Skólabygging Hraunvallaskóla á Völlunum í Hafnarfirði gekk til í jarðskjálftanum sem reið yfir á öðrum tímanum í dag. Skólastjórinn þar segir að nemendum og starfsfólki hafi verið brugðið en að allir hafi haldið ró sinni.

„Við erum orðin vön svona skjálftum hérna“
„Þessi var langur en töluvert snarpur,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík um jarðskjálftann sem reið yfir Suðvesturhornið nú fyrir skömmu.

Sjáðu viðbrögð forsætisráðherra við skjálftanum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í miðju viðtali við blaðamann bandaríska blaðsins Washington Post þegar skjálftinn reið yfir á öðrum tímanum í dag.

Hljóp úr pontu Alþingis við skjálftann
Þingfundi var frestað þegar jarðskjálftinn reið yfir nú fyrir skömmu. Í útsendingu Alþingis heyrðist vel í glamri í þingsal og gardínur fyrir aftan Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, fóru á hreyfingu.

Allt lék á reiðiskjálfi á suðvesturhorni landsins
Stór jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu nú á öðrum tímanum.

Fann vel fyrir skjálftanum á Húsavík
Skjálfti af stærðinni 3,4 reið yfir Húsavík rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Upptök hans voru um 2,3 kílómetra norðvestur af Húsavík. Íbúi á Húsavík segir skjálftann hafa fundist vel í bænum.

Skyndiaðgerð til að tryggja gögn frá tifandi eldstöð
Óvæntur liðsauki sem Almannavarnir fengu á Vatnajökli í vikunni, frá ólíkum félögum, stofnunum og einstaklingum, tryggði að samband rofnaði ekki við tækjabúnað sem vaktar eldstöðina Grímsvötn. Stefndi í að bilun rafstöðvar á Grímsfjalli myndi valda sambandsleysi við rannsóknartæki Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands.

Myndir sýna að stærra svæði hefur losnað við skriðusárið
Skriðuhætta er enn til staðar í Hleiðargarðsfjalli ofan við bæinn Gilsá 2 í Eyjafirði, að því fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra og almannavörnum.

Grímsvatnagos það síðasta sem alþjóðaflug þarf núna
Gulur litakóði, sem settur var á eldgosaviðvörun fyrir Grímsvötn í síðustu viku, veldur áhyggjum í flugheiminum. Einn helsti flugfréttamiðill heims segir Grímvatnagos það síðasta sem alþjóðaflugið þurfi núna ofan í heimsfaraldur kórónuveiru.

Ekki útilokað að jarðskjálftar eigi sinn þátt í aurskriðunni
Ekki er hægt að útiloka að jarðskjálftahrinan undan Norðausturlandi eigi einhvern þátt í aurskriðunni sem féll ofan við Gilsá í Eyjafjarðarsveit í dag.

Nokkrir snarpir skjálftar norður af Gjögurtá
Klukkan 05:47 í morgun varð skjálfti að stærð fjórir um fjóra kílómetra norðaustur af Gjögurtá. Er þetta stærsti skjálfti á svæðinu frá því 8. ágúst.

Stærsti jarðskjálfti í Bárðarbungu frá því í apríl
Jarðskjálfti upp á 4,8 að stærð varð í austanverðri Bárðarbungu rétt eftir miðnætti í nótt. Hann er sá stærsti í eldstöðinni frá því í janúar og apríl en þeir skjálftar voru jafnstórir þessum.

Fann vel fyrir skjálftunum í Grímsey
Þrír jarðskjálftar öflugri en fjórir að stærð skóku Norðurland í jarðskjálftahrinu sem átti upptök sín norðaustur af Grímsey liðna nótt.

Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta af sömu stærð
Þrír jarðskjálftar stærri en fjórir að stærð skóku Norðurland í jarðskjálftahrinu sem átti upptök sín utan við Grímsey í gærkvöldi. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir fleiri stóra skjálfta á svæðinu ekki útilokaða.