Eldgos og jarðhræringar

Enginn til aðstoðar Grindvíkingum sem komnir séu í þrot
Hilmar Gunnarsson, íbúi í Grindavík, segir marga Grindvíkinga komna í algjört þrot vegna reikninga. Sjálfur á hann skemmt hús en þarf samt að greiða af lánum, hita, rafmagn og fasteignagjöld.

Tekur undir með Ármanni: „Skynsamlegt að skoða fyrirbyggjandi aðgerðir“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur tekur undir með kollega sínum Ármanni Höskuldssyni að byggja eigi upp eldgosavarnir við Hafnarfjörð. Hann kallar eftir því að gert verði nýtt og umfangsmikið hættumat fyrir stór-höfuðborgarsvæðið.

Framlengja lokun lónsins
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að framlengja lokun til og með föstudagsins 5. janúar næstkomandi. Þá verður staðan endurmetin.

Vill eldgosavarnir við Hafnarfjörð
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að nú verði að fara að skoða að reisa eldgosavarnir í byggðunum vestast í Hafnarfirði en þar má finna Vellina og Hvaleyri. Eldgos geti hafist nánast hvar sem er á Brennisteins-Bláfjallakerfinu, Krýsuvíkurkerfinu og í Eldvörpum á Reykjanesi.

Virknin færir sig nær höfuðborgarsvæðinu: „Þetta er þessi nýi veruleiki“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir stóran skjálfta sem skók suðvesturhornið rétt fyrir hádegi í dag benda til þess að skjálftavirknin sé að færa sig hægt og rólega yfir í Trölladyngju sem staðsett er mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og Grindavíkur. Skjálftin er ekki vísbending um að neitt stórt sé að fara að gerast á svæðinu á næstu mánuðum.

Skjálftinn líklega ekki merki um kvika sé að brjótast upp
Tveir nokkuð stórir skjálftar riðu yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þá líklega ekki til marks um að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðsins heldur afleiðing spennubreytinga á Reykjanesi.

Gikkskjálfti að stærð 4,5 skók suðvesturhornið
Stór skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar um klukkan 10:50 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni benda fyrstu tölur til að skjálftinn hafi verið 4,5 að stærð og að upptök hans hafi verið við Trölladyngju, nærri Keili, á um fimm kílómetra dýpi. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

„Náttúran er svolítið í að koma manni á óvart“
Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga aukist með tímanum. Líklegast sé að eldgos yrði svipað gosinu sem hófst um miðjan desember.

Kapphlaup við tímann og náttúruna
Undirbúningur fyrir varnargarða fyrir utan Grindavík er hafinn. Unnið verður allan sólarhringinn á svæðinu næstu vikur en verkstjóri segir starfsmenn vera í kapphlaupi við náttúruna og tímann.

Mögulegt gos líklega eins og það síðasta
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur líklegt að mögulegt eldgos á Reykjanesskaga verði líkt síðasta gosi, sem varð í nýliðnum desember.

Kvikuþrýstingur að byggjast upp og líkur á eldgosi aukast
Vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp og þar með aukast líkur á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Sennilega spurning um tíma frekar en hvort
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir stöðuna við Svartsengi vera óbreytta þar sem land hefur haldið áfram að rísa sem sé merki um að verið sé að safna í nýtt kvikuhlaup eða að nýtt gos sé yfirvofandi. „Það er því sennilega spurning um tíma frekar en hvort.“

Gist á 23 heimilum
Gist var í 23 húsum í Grindavík á nýársnótt. Lögreglustjórinn segir allt hafa gengið vel í bænum yfir hátíðarnar. Vinna við varnargarða í kringum Grindavík hefst í dag.

Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan
Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt.

Áfram skjálftavirkni við kvikuganginn
Um 110 skjálftar hafa mælst við kvikuganginn norðan Grindavíkur frá miðnætti en til samanburðar mældust 160 í gær. Enn eru taldar auknar líkur á eldgosi.

Grindvíkingurinn er maður ársins
Maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, er Grindvíkingurinn. Valið var ekki erfitt að þessu sinni. Hver og einn íbúi bæjarins á hlutdeild í útnefningunni.

Lokun Bláa lónsins framlengd
Lokun Bláa lónsins sem tók gildi í kjölfar eldgossins við Sundhnúkagíga þann 18. desember síðastliðinn hefur verið framlengd til 3. janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Bláa lónsins.

Einstæð móðir rukkuð um tvöfalda leigu
Kolbrún Jónsdóttir, einstæð móðir, hefur verið rukkuð um leigu janúarmánaðar fyrir íbúð sína í Grindavík. Líkt og aðrir íbúar bæjarins fór hún úr bænum þegar hann var rýmdur þann tíunda nóvember, en síðan hefur hún byrjað að leigja íbúð í Hafnarfirði. Hún situr því uppi með tvær rukkanir fyrir leigu í næsta mánuði.

Óttast að Grindvíkingar í göngutúr endi í sprungum
Lögreglan á Suðurnesjum varar fólk í Grindavík við það að ganga utan vega um bæinn. Fólk gæti lent í sprungum án þess að verða þeirra vart.

Áfram heimilt að dvelja í bænum þó að lögreglustjóri mæli gegn því
Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara í bæinn og dvelja heima hjá sér þrátt fyrir nýtt hættumatskort sem bendi til þess að auknar líkur séu á eldgosi norðan Grindavíkur. Þetta tilkynnir lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem fundaði í dag um stöðu mála með fulltrúum almannavarna.

Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svartsengi
Auknar líkur eru á eldgosi norðan Grindavíkur og hætta er talin á hraunflæði inn í bæinn. Byrjað verður að reisa gríðarstóra varnargarða við Grindavík strax eftir helgi. Bæjarstjóri telur að uppbygging garðanna fái Grindvíkinga til að flytja heim.

Svona mun varnargarðurinn við Grindavík líta út
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur tilkynnt að ráðist verði í fyrsta áfanga varnargarða við Grindavík og er undirbúningur framkvæmdanna þegar hafin. Gert er ráð fyrir að garðurinn verði um 7 km að lengd og að hann muni liggja að mestu í hápunktum í landinu ofan og umhverfis Grindavík.

Fannar þakkar fyrir skjót viðbrögð
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi að samhugur væri í ríkisstjórninni varðandi byggingu varnargarða við Grindavík og að undirbúningur hans væri þegar hafinn. Fannar Jónsson, bæjarstjóri í Grindavík, segir þetta vera ánægjulegar fréttir.

Breytt hætta í Grindavík vegna mögulegs hraunflæðis
Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort sem er byggt á samtúlkun gagna á samráðsfundi vísindafólks sem var haldinn var í morgun, en mat á hættustigi innan svæðanna er óbreytt frá því síðast. Hins vegar hefur þó verið gerð breyting á þeim hættum sem eru mögulegar innan Grindavíkur. Þar hafa bæst við hættur vegna hugsanlegs hraunflæðis og gasmengunar.

Gríðarlega stór varnargarður til að gera Grindavík að öruggum kosti
Eitt mál var á dagskrá á ríkisstjórnarfundi í dag, að sögn Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra, en það var bygging varnargarðs í kringum Grindavík til að verja innviði bæjarins. Hún segir algjöra samstöðu um málið í ríkisstjórninni.

Telur skynsamlegt að reisa varnargarða norðan við Grindavíkurbæ
Innviðaráðherra telur skynsamlegt að byggja varnargarða norðan við Grindavíkurbæ til að verja bæinn ef til eldgoss kemur. Framkvæmdin sé vissulega dýr en verndi mun meiri verðmæti.

Nýjar sprungur í Grindavíkurvegi
Nýjar sprungur hafa myndast í Grindavíkurvegi, í nýrri viðgerð nærri Svartsengi. Vegagerðin segir talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær.

Smáaurar í öllu samhengi
Kostnaður við uppbyggingu varnargarða norðan við Grindavíkurbæ er smáaurar miðað við þau verðmæti sem garðarnir verja að sögn bæjarstjóra Grindavíkur. Það sé mikilvægt fyrir þjóðarbúið að ráðist verði í uppbyggingu garðanna sem fyrst.

Yrði líklega aflminna en gæti varað lengur
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið hafi haldið áfram við Svartsengi og sé nú á svipað statt og það var fyrir 18. desember þegar síðast byrjaði að gjósa.

Þrautseigja Grindvíkinga
Föstudagskvöldið 10. nóvember var heilt bæjarfélag rýmt í skyndi eftir stanslausa skjálftahrinu. Eldgosið á Reykjanesskaga varði sögulega stutt og íbúar Grindavíkur vita lítið sem ekkert um framhaldið.