
FIFA

Átti að hreinsa upp skítinn en fær nú hæli í Katar
„Einbeitið ykkur að fótboltanum“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, í bréfi til þátttökuþjóða á HM í Katar tæpum þremur vikum fyrir upphafsflaut mótsins sem hefst á sunnudaginn kemur. FIFA hefur dregið í land með ýmis loforð fyrir mótið og lítið pláss virðist vera fyrir mannréttindamál hjá forseta sem á nú hæli í gestgjafaríkinu.

Forseti FIFA biður um vopnahlé í Úkraínu yfir HM
Gianni Infantino, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, biðlar til Rússa, Úkraínumanna og heimsins alls um að gera hlé á stríðinu á meðan heimsmeistaramótið í Katar stendur yfir.

FIFA bannar Dönum að klæðast æfingafatnaði til stuðnings mannréttindum
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur hafnað beiðni danska knattspyrnusambandsins um að landslið Danmerkur fái að klæðast æfingatreyjum sem á stendur „Mannréttindi fyrir alla“ á HM 2022 í Katar.

Sepp Blatter segir að FIFA hafi gert mistök með því að láta Katar fá HM
Fyrrum forseti FIFA og sá sem sat í forsetastólnum þegar Katar fékk heimsmeistaramótið í fótbolta viðurkennir nú tólf árum seinna að Alþjóða knattspyrnusambandið hafi gert mistök.

FIFA sendi bréf á allar þátttökuþjóðir á HM: „Einbeitið ykkur að fótboltanum!“
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur sent bréf á öll 32 þátttökuliðin á HM í Katar þar sem þau eru beðin að einbeita sér að fótboltanum en ekki siðferðislegum álitamálum.

Utan vallar: Er KSÍ að taka brýnt samtal eða blóðuga seðla?
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar í Abú Dabí á sunnudaginn kemur við landslið Sádi-Arabíu og hjálpar Sádum þannig við undirbúning sinn fyrir HM í Katar sem hefst 20. nóvember. Í því samhengi er vert er að spyrja: Hvað liggur þar að baki?

FIFA deilir mörkum Dags: „Nei, þið sjáið ekki tvöfalt“
Dagur Dan Þórhallsson skoraði merkilega aukaspyrnutvennu fyrir Íslandsmeistara Breiðabliks gegn Val, í blíðviðri á Hlíðarenda, í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta. FIFA hefur nú dreift myndbandi af mörkunum.

FIFA segir að stöðvarnar verði að bjóða hærra í HM kvenna
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur hafnað mörgum tilboðum í útsendingarétt á heimsmeistarakeppni kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.

HM-ævintýri Íslands á veitu FIFA: „Gerðu eitthvað sem var áður ómögulegt“
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú birt á streymisveitu sinni, FIFA+, sérstakan þátt um HM-ævintýri Íslands sem árið 2018 varð fámennasta þjóð sögunnar til að taka þátt á HM karla í fótbolta.

Bandarískir og franskir þingmenn krefjast að FIFA beiti sér vegna látins verkafólks í Katar
Þingmenn frá bæði Bandaríkjunum og Frakklandi hafa sent bréf á Gianni Infantino, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem þess er krafist að sambandið greiði fjölskyldum látinna verkamanna í Katar bætur. Þúsundir verkafólks eru talin hafa látið lífið við uppbyggingu heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem hefst í Katar í nóvember.

Harry Kane staðráðinn í að brjóta reglu FIFA á HM í Katar
Harry Kane ætlar ekki að láta reglur Alþjóða knattspyrnusambandsins stoppa sig á HM í Katar í næsta mánuði.

FIFA leyfði ekki keppnistreyju Portúgal
Alþjóðlega knattspyrnusambandið FIFA, lét portúgalska knattspyrnusambandið vita að fyrirhuguð keppnistreyja þeirra fyrir HM 2022 væri ólögleg.

Vilja fá Úkraínu með sér að halda HM 2030
Úkraína er sagt ætla að sækjast eftir því að halda heimsmeistaramót karla í fótbolta ásamt Spáni og Portúgal árið 2030.

Sádi-Arabía sækist eftir HM 2030
HM 2022 fer fram um miðjan vetur í Katar í nóvember og desember næstkomandi. Það gæti farið svo að HM 2030 fari aftur fram um vetur ef umsókn Sáda gengur eftir.

UEFA ekki tekið ákvörðun en Rússland þegar skipulagt æfingaleiki
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ekki tekið ákvörðun hvort Rússland eigi að fá taka þátt í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer sumarið 2024. Á sama tíma er Rússland þegar byrjað að skipuleggja æfingaleiki og hefur fulla trú á að þjóðin fái að taka þátt.

Umboðsmenn þénuðu tæpa 70 milljarða í sumarglugganum
Umboðsmenn knattspyrnumanna þurfa margir hverjir ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir salti í grautinn á næstunni. Samkvæmt alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA þénuðu þeir tæplega 431 milljón punda í félagsskiptaglugga sumarsins sem lokaði í seinustu viku.

Sitja uppi með stóra skuld eftir andlát sonar síns
Sænska fjölmiðlafyrirtækið Blankspot hefur opnað vefsíðu sem ber heitið Spjöldin í Katar (e. Cards of Qatar) þar sem fjölmargra verkamanna sem létust við uppbyggingu komandi heimsmeistaramóts í fótbolta er minnst.

Ísland stendur í stað á heimslistanum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er sem fyrr í 63. sæti styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Þar var liðið einnig á síðasta lista.

Úrúgvæ vill halda HM hundrað árum seinna
Argentína, Paragvæ, Síle og Úrúgvæ hafa sótt um að halda heimsmeistaramót karla í fótbolta árið 2030. Þá verða 100 ár frá fyrsta heimsmeistaramótinu í sögunni sem fór fram í Úrúgvæ 1930.

Engin plön hjá FIFA um að færa HM kvenna í fótbolta
Alþjóða knattspyrnusambandið segir ekkert til í þeim orðrómi að FIFA sé að kanna möguleikann á því að færa næsta heimsmeistaramót kvenna í fótbolta sem á að fara fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.

FIFA ætlar tvöfalda verðlaunafé á HM kvenna 2023 | Styrktaraðilar sjá möguleikana í kvennaknattspyrnu
Verðlaunafé á næsta heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu gæti farið yfir 60 milljónir Bandaríkjadala samkvæmt aðalritara FIFA, Fatma Samoura.

Sam Kerr fyrsta konan til að verða andlit FIFA
Ástralska knattspyrnukonan Sam Kerr, leikmaður Chelsea, verður fyrsta konan til að verða andlit heimsútgáfu tölvuleiksins FIFA þegar FIFA 23 kemur út í haust.

Þrettánfaldir úkraínskir meistarar krefja FIFA um sjö milljarða í skaðabætur
Úkraínska knattspyrnufélagið Shaktar Donetsk hefur krafið alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA um tæpa sjö milljarða íslenskra króna í skaðabætur. Félagið segist hafa orðið af tekjum eftir ákvörðun FIFA um að leyfa erlendum leikmönnum að segja upp samningum sínum við úkraínsk og rússnesk lið eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.

Áfrýjun Rússlands hafnað
CAS, Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn í Sviss, hefur hafnað áfrýjunarkröfu frá fjórum rússneskum félagsliðum vegna þátttökubanns UEFA sem meinar liðunum frá því að taka þátt í Evrópukeppnum á næsta leiktímabili. Rússnesku landsliðin mega heldur ekki leika í alþjóðlegum keppnum.

Blatter sendir út viðvörun til heimsfótboltans
Sepp Blatter, fyrrum forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, segir sjö ár af lygum loksins vera lokið.

Bann FIFA og UEFA á rússnesk félags- og landslið stendur
Rússneska knattspyrnusambandinu tókst ekki að sannfæra Alþjóða íþróttadómstólinn um að hnekkja ákvörðun Alþjóða- og knattspyrnusambands Evrópu um að banna rússnesk félags- og landslið frá keppnum sínum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.

FIFA stefnir á myndavélar inn í búningsklefum á HM í Katar
Alþjóðlega knattspyrnusambandið, FIFA, er að skoða möguleika þess að hafa beinar sjónvarpsútsendingar úr búningsklefum þátttökuþjóða á heimsmeistaramótinu í Katar

Blatter og Platini sýknaðir af ásökunum um spillingu
Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, og Michel Platini, fyrrverandi forseti UEFA, hafa verið sýknaðir af ásökunum um spillingu, en dómurinn var kveðinn upp í Sviss í morgun.

Rússar saka FIFA um mismunun
Rússneska knattspyrnusambandið RFS og rússneska úrvalsdeildin í fótbolta hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA er sakað um mismunun eftir að FIFA gaf leikmönnum og þjálfurum leyfi til að segja samningum sínum við rússnesk félög lausum.

FIFA samþykkir stækkun leikmannahópa á HM
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur samþykkt reglubreytingu sem gerir þjóðum kleift að mæta með 26 manna leikmannahóp á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Katar í lok árs.