
Formúla 1

Schumacher spenntur að keppa á heimavelli
Það verða sex ökumenn á heimavelli í Formúlu 1 mótinu á Hockenheim brautinni í Þýskalandi um helgina. Mikill áhugi hefur verið á Formúlu 1 í Þýskalandi í gegnum tíðina og hefur ekki sakað að Þjóðverjinn Michael Schumacher keppir á ný og er hjá Mercedes sem er þýskt ásamt landa sínum Nico Rosberg.

McLaren stjórinn afskrifar ekki Ferrari og Mercedes liðin í titilslagnum
McLaren liðið telur sig vera með toppbíl í höndunum, en Martin Whitmarsh framkvæmdarstjóri liðsins segir að stöðug þróunarvinna sé lykilatriði í meistarabaráttunni og bakvið sigur í einstökum mótum.

Buemi áfram hjá Torro Rosso
Svisslendingurinn Sebastian Buemi verður áfram hjá Torro Rosso samkvæmt frétt á autosport.com í dag.

Yamamoto tekur sæti Chandok
Enn verða skipti á ökumönnum hjá Hispania liðinu spænska Formúlu 1. Í síðustu keppni tók Sakan Yamamoto sæti Bruno Senna án mikils fyrirvara, en í mótinu á Hockenheim um næstu helgi ekur Yamamoto bíl Karun Chandok.

Villeneuve vill stofna Formúlu 1 lið
Talið er að Formúlu 1 meistarinn frá 1997, Jacques Villeneuve hafi sett inn umsókn til FIA um að mæta með keppnislið á ráslínuna á næsta ári.

Webber: Gekk of langt í ummælum
Mark Webber var eldheitur eftir kappaksturinn á Silverstone sem hann vann og lét ummæli frá sér fara, sem hann segir í dga að hafa verið of langt gengið.

Buemi hefur ekki skrifað undir
Sebastian Buemi frá Sviss hefur ekki skrifað undir samning við Torro Rosso, þrátt fyrir að Franz Tost, framkvæmdarstjóri liðsins hafi tilkynnt í gær að hann og Jamie Alguersuari yrðu hjá liðinu á næsta ári.

Alguersuari og Buemi áfram hjá Torro Rosso
Torro Rosso liðið ítalska staðfesti í dag að Jamie Alguersuari og Sebastian Buemi verða áfram ökumenn Torro Rosso árið 2011.

Webber og Red Bull stjórar hreinsuðu andrúmsloftið
Mark Webber tilkynnti á vefsíðu sinni í dag að hann og yfirmenn Red Bull hafi rætt það sem kom upp í Silverstone kappakstrinum um síðustu helgi og andrúmsloftið á milli aðila hafi verið hreinsað. Autosport.com greinir frá þess í dag og lausleg þýðing á ummælum hans fylgir hér að neðan.

Framtíð Petrovs ræðst af árangri
Rússneski nýliðinn Vitaly Petrov hefur átt góða spretti um borð í Formúlu 1 bíl Renault á þessu ári, en hann hefur líka gert mistök á stundum.

Button: Deila Red Bull manna hjápar McLaren
Heimsmeistarinn Jenson Button telur að hamgangurinn milli Sebastian Vettel og Mark Webber muni hjálpa McLaren í titilslagnum, en Lewis Hamilton og Button eru í tveimur efstu sætum stigamótsins.

Engin pressa að hygla að Vettel
Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir að engin pressa sá á honum frá eigendum Red Bull liðsins að þjónusta Sebastian Vettel betur en Mark Webber í Formúlu 1 mótum. Webber var mjög ósáttur um helgina, þegar vængur var tekin af bíl hans og settur á bíl Vettels.

McLaren klúðraði titli á innanhúsdeilum
Staðan á milli ökumanna Red Bull liðsins hefur vakið athygli, þar sem Mark Webber taldi sér mismunað í mótinu á Silverstone um helgina varðandi búnað og taldi hann að Sebastian Vettel hefði verið tekinn framyrir sig. Webber svaraði þessu með sigri á Silverstone.

Webber ekki vanmetinn af Red Bull
Christian Horner segir Mark Webber ekki vera ökumann númer tvö hjá líðinu, þó Webber hafi skotið föstu skoti að liði sínu í talkerfi bílsins eftir að hann kom í endamark sem sigurvegari í gær á Silverstone.

Webber: Réttlætinu fullnægt með sigrinum
Mark Webber hjá Red Bull var ánægður að vinna Formúlu 1 mótið á Silverstone, þrátt fyrir að honum finndist liðið mismuna sér fyrir tímatökuna í gær.

Webber vann eftir að hafa verið móðgaður
Ástralinn Mark Webber sem býr í Englandi vann sætan sigur á Silverstone í dag, eftir hafa að hafa skákað liðsfélaga sínum Sebastian Vettel og heimamanninum Lewis Hamilton hjá McLaren.

Vettel: Erum dálítið brjálaðir
Sebastian Vettel náði besta tíma í tímatökum á Silverstone brautinni í dag, en einhver áhöld er um að hann hafi fengið betri framvæng á bíl sinn en Mark Webber af því liðið tekur hann framyfir Webber.

Vettel fremstur á ráslínu á Silverstone
Þjóðverjinn Sebastian var fljótastur á Red Bull í tímatökum annað árið i röð. Hann varð á undan Mark Webber á Red Bull og og Fernando Alonso, en fremstur heimamanna var Lewis Hamilton á McLaren.

Vettel á flugi á Silverstone
Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra á lokaæfingu keppnisliða á Silverstone brautinni í morgun. Hann varð á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull.

Yamamoto sjokkeraður að fá sæti Senna
Engar skýringar hafa verið gefnar á því afhverju Japaninn Sakan Yamamoto ekur Hispania keppnisbílnum í stað Bruno Senna frá Brasilíu. Hann keppir á bílnum í stað Senna á Silverstone um helgina.

Webber á undan Alonso á Silverstone
Mark Webber varð tæplega 0.4 sekúndum á undan Fernando Alonso á seinni æfingu keppnisliða á Silverstone í dag, en Sebastian Vettel varð þriðji, en Felipe Massa fjórði. Staðan á milli Red Bull og Ferrari því 2-2.

Yngsti meistarakandídatinn fljótastur
Þjóðverjinn Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra á fyrstu æfingu keppnisliða á breyttri Silverstone braut í dag. Hann varð á undan heimamanninum Lewis Hamilton á McLaren.

Senna hættur hjá Hispania liðinu
Brasilíumaðurinn Bruno Senna mun ekki aka í fleiri mótum með Hispania liðinu spænska og Japanainn Sakan Yamamoto keyrir í hans stað um helgina ásamt Karun Chandok.

Schumacher stefnir á titil 2011
Michael Schumacher hjá Mercedes hefur gengist við því að eiga ekki möguleika á titilinum í ár, eftir brösótt gengi í mótum ársins. Besti árangur hans er fjórða sæti. Hann hefur sett stefnuna á 2011 hvað titil varðar.

Barrichello setur markið hærra
Rubens Barrichello vonast eftir góðum árangri á Williams á heimavelli liðsins á Silverstone um helgina. Williams hefur ekki landað sigri í mörg herrans ár, en hefur unnið marga meistaratitila gegnum tíðina.

Fyrrum meistari í dómaraherberginu
Bretinn Nigel Mansell sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1992 verður dómurum til aðstoðar á breska kappakstrinum á Silverstone um helgina.

Bandarískir aðilar vilja í Formúlu 1
Bandarískir aðilar hafa sótt formlega um að komast í Formúlu 1 á næsta ári og flagga m.a. Bandaríkjamanninum Jonathan Summerton sem ökumanni. Hann var einnig nefndur til sögunnar hjá USF1 liðinu sem sótti um fyrir þetta tímabil en allt fór handaskolum hjá þeim

Mikilvægt fyrir Ferrari að sigra fljótlega
Stefano Domenicali, framkvæmdarstjóri Ferrari segir á vefsíðu liðsins að mikilvægt verði fyrir liðið að knýja fram sigur í næstu þremur mótum. Ferrari er á eftir Red Bull og McLaren í stigakeppni bílasmiða og Fernando Alonso er fimmti í stigamóti ökumanna.

Kubica hjá Renault til loka 2012
Pólverjinn Robert Kubica hefur framlengt samning sinn við Renault til loka ársins 2012, en hann gat verið laus allra mála í lok þessa árs.

Ecclestone vill mót í New York
Bernie Ecclestone er enn að leita eftir að halda mót við New York, þó búið sé að semja um mótshald í Austin í Texas frá árinu 2010. Autosport.com greinir frá þessu í dag.