Körfubolti

Enn meiðslin hjá Davis setja tímabil Lakers í hættu
Anthony Davis, önnur af stórstjörnum Los Angeles Lakers í NBA deildinni í körfubolta, verður frá í ótilgreindan tíma. Óttast er að tímabil hans sé á enda og segja má að það endi tímabil Lakers í leiðinni.

Fögnuðu ofan á mótherja sínum
Það eru til slæmir dagar og svo eru þessir einstaklega slæmu dagar eins og einn NBA-leikmaður fékk að upplifa í vikunni.

Isiah Thomas útskýrir af hverju Jordan gerði hann svona reiðan
Körfuboltagoðsögnin Isiah Thomas er enn mjög ósáttur með Michael Jordan vegna „Last Dance“ heimildarþáttanna sem slógu í gegn á sínum tíma en máluðu ekki fallega mynd af Thomas.

Sjáðu stiklu úr Hamingjan er hér
Hamingjan er hér eru nýir heimildaþættir frá Stöð 2 Sport um sögu körfuboltaliðs Þórs Þorlákshafnar.

Sara Rún öflug í sigri Faenza
Faenza vann sex stiga sigur á Lucca í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir lét að sér kveða í liði Faenza.

Elvar Már frábær og Rytas í umspil í Meistaradeildinni
Rytas Vilníus, lið landsliðsmannsins Elvars Más Friðrikssonar, komst í kvöld í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í körfubolta. Elvar Már átti frábæran leik.

NBA stjarna montaði sig af engisprettuáti en missti síðan af leik vegna magakveisu
NBA körfuboltamaðurinn Jimmy Butler missti af leik Miami Heat á móti Chicago Bulls í nótt og sumum þykir ástæðan svolítið vandræðaleg.

„Það á bara að splundra þessu“
Farið var yfir stóru málin í NBA-deildinni í Lögmáli leiksins í gær. Mikil umræða skapaðist um lið Chicago Bulls.

Viðar í Hetti: Fólki hrífst með og það er gott að við séum að gera eitthvað gagn
Viðar Örn Hafsteinsson og lærisveinar hans í Hetti frá Egilsstöðum stigu sögulegt skref á dögunum með því að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta.

„Fyrsta skipti í sögu Körfuboltakvölds sem þetta er svona“
Að venju voru „Tilþrif umferðarinnar“ á sínum stað í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Alls voru tíu tilþrif valin og þau má sjá hér að neðan. Sami leikmaður átti bestu og næstbestu tilþrifin að þessu sinni.

Matthías Orri æfir með KR: Endurkoma í kortunum?
Matthías Orri Sigurðarson hefur verið að æfa með KR að undanförnu samkvæmt heimildum Vísis. Gæti farið svo að hann taki fram skóna til að hjálpa sínum fyrrum félögum í fallbaráttunni í Subway deild karla.

Lillard tók fram úr Drexler
Damian Lillard er orðinn stigahæstur í sögu NBA-liðsins Portland Trail Blazers. Hann tók fram úr Clyde Drexler í nótt.

„Erfitt þegar besti leikmaður liðsins vill að þjálfarinn sé rekinn“
Magnaður viðsnúningur Brooklyn Nets á þeirra tímabili er á meðal þess sem farið verður yfir í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Þátturinn hefst klukkan 21:00 á Stöð 2 Sport 2.

Sjónvarpsfólkið þarf að passa sig á lukkudýri Thunder
Vísundurinn Rumble er lukkudýr NBA körfuboltaliðsins Oklahoma City Thunder og hefur verið það í næstum því einn og hálfan áratug.

Maður í „sjokki“ á bekknum hjá Hetti
Varamenn körfuboltaliða skipta miklu máli þegar kemur að því að halda uppi stemmningunni í sínu liði. Þeirra viðbrögð og orka hafa áhrif og einn leikmaður á bekknum hjá Hetti sló í gegn hjá mönnunum í Subway Körfuboltakvöldi.

Framlengingin: Þórsarar eiga mest inni og KR-ingar fá jólagjöf
Framlengingin var á sínum stað í seinasta þætti af Körfuboltakvöldi þar sem Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi þáttarins, fór um víðan völl með sérfræðingunum í setti.

Jokic í sögubækurnar með Chamberlain með einstakri þrennu
Nikola Jokic, leikmaður Denver Nuggets, afrekaði í nótt eitthvað sem aðeins Wilt Chamberlain hafði gert í 76 ára sögu NBA-deildarinnar í körfubolta.

„Þetta er algjör einhyrningur í þessari deild“
Ólafur Ólafsson átti stórleik með Grindvíkingum í sigurleik á útivelli á móti Haukum í tíundu umferð Subway deildar karla.

Stjarnan og Keflavík mætast bæði karla- og kvennamegin
Stjarnan og Keflavík mætast í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta, bæði í karla- og kvennaflokki. Dregið var í undanúrslitin í hádeginu.

Skorar á Brilla og Matta að taka fram skóna og bjarga KR
KR-ingar sitja á botni Subway deildar karla í körfubolta og meira að segja bjartsýnustu KR-ingar hljóta að vera farnir að hafa miklar áhyggjur af því að liðið falli úr deildinni í vor.

Fyrrverandi NBA-stjarna handtekin fyrir að kýla dóttur sína
Amar'e Stoudemire, sem var einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á sínum tíma, var handtekinn í gær eftir að hafa kýlt dóttur sína.

Sara Rún, Jón Axel og Hilmar fóru með sigur af hólmi
Sara Rún Hinriksdóttir, landsliðskona í körfubolta, skoraði fimm stig þegar lið hennar Faenza vann sannfærandi sigur gegn Parking Graf Crema í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Chris Paul útskrifaður úr háskóla
Það er þekkt að leikmenn í atvinnumannaíþróttum í Bandaríkjunum hætti í háskóla til þess að komast í atvinnumennsku sem fyrst. Þar eru náttúrlega gull og grænir skógar sem fólk sækist eftir og því er menntunin látin sitja á hakanum. Það er einnig þekkt að leikmenn nái sér í gráðu um miðjan ferilinn og nú er Chris Paul, leikstjórnandi Phoenix Suns, orðinn einn af þeim sem hafa útskrifast úr háskóla

Elvar Már og Þórir Þorbjarnarson í sigurliðum í dag
Elvar Már Friðriksson og Þórir Þorbjarnarson stóðu í ströngu með liðum sínum í evrópska körfuboltanum fyrr í dag. Báðir komu þeir einn af varamannabekknum en lögðu lóð sín á vogarskálarnar við að hjálpa liðum sínum að vinna leikina sína.

Sara Líf segir Sævald hafa snert leikmenn á óviðeigandi hátt
Sara Líf Boama, leikmaður kvennaliðs Vals í körfubolta og landsliðskona í körfubolta, stígur fram á facebook-síðu sinni og segir körfuboltaþjálfarann Sævald Bjarnason hafa valdið sér öðrum leikmönnum U-18 ára landsliðs kvenna í körfubolta vanlíðan á meðan hann stýrði liðinu.

Doncic heldur áfram að spila frábærlega
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta karla í nótt sem leið. Luka Doncic og LeBron James léku afar vel fyrir lið sín.

Syrtir í álinn hjá meisturunum: Curry frá næstu vikurnar
NBA meistarar Golden State Warriors verða án síns besta manns næstu tvær vikurnar hið minnsta þar sem Stephen Curry er meiddur á öxl. Þetta er mikið áfall fyrir liðið sem hefur ekki enn náð að sýna sínar bestu hliðar á tímabilinu.

Griner þakkar Biden og stefnir á að spila á næstu leiktíð
Brittney Griner þakkaði Bandaríkjaforseta þegar hún tjáði sig í fyrsta skipti opinberlega eftir að vera loks komin heim eftir tíu mánuði í rússnesku fangelsi. Þá stefnir hún á að spila með Phoenix Mercury í WNBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Njarðvík 88-75 | Valsmenn náðu í stigin sem í boði voru
Leikur Vals og Njarðvíkinga í 10. umferð Subway deildar karla náði ekki flugi fyrr en í fjórða leikhluta en þá náðu Valsmenn að keyra yfir gestina og klára leikinn með 13 stiga mun 88-75.

Benedikt Guðmundsson: Meiðsladraugur yfir Njarðvík
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkinga, var sammála blaðamanni um að leikurinn við Val í kvöld hafi ekki verið fallegur en hann gat verið stoltur af sínum mönnum. Leikurinn endaði með sigri Valsmanna 88-75 sem sitja í öðru sæti en Njarðvíkingar verða í því fjórða yfir jólin.