Sport

Uppgjörið: Afturelding - KR 4-3 | Heimasigur eftir tvöfalda endurkomu
Blásið var til veislu á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld þegar Afturelding sigraði KR 4-3, eftir að hafa jafnað leikinn í tvígang og komið sér að lokum í forystu. Áhorfendametið féll og fengu áhorfendur nóg fyrir peninginn. KR að tapa sínum fyrsta leik í Bestu deildinni og Afturelding að jafna KR að stigum í deildinni.

„Við máttum ekki gefast upp“
Jase Febres var einn af þeim sem leiddu áhlaupið sem skiluðu sigri Stjörnunnar í leik númer fjögur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Hann skoraði 24 stig, hvert öðru mikilvægara, en þau komu öll í seinni hálfleik til að skila sigri Stjörnunnar 91-86 gegn Tindastól.

Fjögur mörk og tvö rauð í Grindavíkursigri í Laugardalnum
Grindavík vann góðan sigur á Þrótti Reykjavík þegar liðin mættust á Þróttarvellinum í Laugardal í dag. Grindvíkingar skoruðu fjögur mörk í leiknum en misstu tvo menn af velli með rautt spjald.

Inter missti af gullnu tækifæri þegar Napoli missteig sig
Napoli heldur efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar ein umferð er eftir af deildinni. Inter missti af gullnu tækifæri að ná efsta sætinu í kvöld.

Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan
Fjórði úrslitaleikur Stjörnunnar og Tindastóls er í gangi í Ásgarði þessa stundina. Hlynur Bæringsson fékk óíþróttamannslega villu í fyrri hálfleiknum sem gerði hörðustu stuðningsmenn Tindastóls sótilla.

Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl
Shaquille Rombley leikmaður Stjörnunnar þurfti að fara af velli í leik Stjörnunnar og Tindastóls í úrslitum Bónus-deildarinnar. Rombley var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fengið læknisaðstoð í Ásgarði.

Meistararnir töpuðu en Real vann í hitaleik
Næstsíðasta umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í dag. Barcelona hefur nú þegar tryggt sér titilinn en liðið mætti Villareal á heimavelli.

Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Stjarnan tryggði oddaleik eftir háspennu
Stjarnan sýndi gífurlegan karakter þegar þeir sneru við erfiðri stöðu í hálfleik og náðu í sigur í leik fjögur um Íslandsmeistaratitilinn. Leikar enduðu 91-86 þar sem Stólarnir leiddur lungan úr leiknum en Stjarnan sneri við taflinu og tryggði oddaleikinn í næstu viku.

Sigur hjá Kolstad í fyrsta leik úrslitanna
Íslendingaliðið Kolstad vann í dag sigur á Elverum í fyrsta úrslitaleik liðanna um norska meistaratitilinn í handbolta. Fjórir Íslendingar komu við sögu hjá Kolstad í leiknum.

Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti
Arsenal nánast gulltryggði sér Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð með því að leggja Newcastle að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fyrir leikinn hafði Arsenal ekki unnið deildarleik síðan 20. apríl.

Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins
Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur með átta mörk fyrir Kadetten Schaffhausen í fyrsta leik gegn BSV Bern í úrslitaeinvígi svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Sævar og Nóel fallnir úr dönsku úrvalsdeildinni
Lyngby og Aalborg, lið Sævars Atla Magnússonar og Nóels Atla Arnórssonar, eru bæði fallin úr dönsku úrvalsdeildinni. Sævar og félagar töpuðu 5-1 gegn Sönderjyske. Nóel og félagar töpuðu 2-3 gegn Silkeborg. Liðin munu mætast í þýðingarlausum leik í lokaumferðinni næstu helgi.

Gabríel Aron skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Nítján ára gamli Keflvíkingurinn Gabríel Aron Sævarsson gerði sér lítið fyrir á Akureyri og skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik gegn Þór, í 2-4 sigri Keflvíkinga sem settust í efsta sæti Lengjudeildarinnar.

Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum
Jamie Vardy átti draumaendi á ferli sínum með Leicester City þegar hann skoraði 200. mark sitt fyrir félagið í 500. leiknum. Leicester fór með 2-0 sigur af hólmi gegn Ipswich.

Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra
Fram bar sigurorð af Vestra með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Það var Simon Tibbling sem skoraði sigurmark Fram úr vítaspyrnu sem Vuk Oskar Dimitrijevic nældi í.

Ísak kórónaði frábært tímabil með marki í lokaumferðinni
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði í 4-2 tapi Fortuna Dusseldorf gegn Magdeburg í lokaumferð næstefstu deildar þýska fótboltans. Ísak var einn besti leikmaður Fortuna á tímabilinu, sem endaði í sjötta sæti deildarinnar.

Gummi Tóta skoraði fyrir armensku meistarana
Guðmundur Þórarinsson skoraði í 3-3 jafntefli armensku meistaranna Noah gegn Urartu í 28. umferð armensku úrvalsdeildarinnar.

Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi
Glódís Perla Viggósdóttir, klædd í þýskan þjóðbúning, fagnaði meistaratitlum Bayern Munchen fyrir framan troðfullt torg af fólki. Bæði karla- og kvennalið félagsins klæddu sig upp af tilefninu og skemmtu sér stórkostlega.

Verstappen tók fram úr á fyrsta hring og fagnaði sigri
Max Verstappen hjá Red Bull fagnaði öðrum sigri sínum í sjöunda kappakstri tímabilsins í Formúlu 1, sem fór fram á Imola brautinni í Emilia Romagna héraðinu á Ítalíu.

Íslendingaliðið stríddi PSV en stóð ekki í vegi fyrir sögulegu klúðri
PSV er hollenskur meistari eftir 1-3 sigur gegn Sparta Rotterdam í lokaumferðinni. Kristian Hlynsson var í byrjunarliði Sparta Rotterdam og Nökkvi Þeyr Þórisson kom inn af bekknum. Spörtungar stríddu PSV aðeins en gátu ekki aðstoðað Ajax, sem fleygði titlinum frá sér á lokakafla tímabilsins.

Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna
Chelsea varð FA bikarmeistari með 3-0 sigri gegn Manchester United í úrslitaleik á Wembley. Titilinn var sá þriðji á tímabilinu hjá Chelsea sem bar höfuð og herðar yfir önnur lið á Englandi.

Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni
ÍBV og KA gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í blíðskaparveðri á Þórvellinum í Vestmannaeyjum í dag.

Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði
Stórkostleg stemning myndaðist og stóð yfir síðasta leik karlaliðs Everton í Guttagarði, Goodison Park, í 2-0 sigri gegn Southampton. Iliman Ndiaye skoraði bæði mörkin.

Magnaður sigur í síðasta leik tímabilsins hjá Hildi og Ásdísi
Hildur Antonsdóttir byrjaði á miðjunni hjá Madrid CFF í 4-3 endurkomusigri gegn Deportivo Abanca í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Ásdís Karen Halldórsdóttir var á bekknum og kom ekki við sögu. Sigurinn færði Madrid CFF upp í tíunda sæti deildarinnar.

Di María á förum frá Benfica
Eftir að hafa misst af deildarmeistaratitlinum í gær tilkynnti Ángel Di María að hann væri á förum frá portúgalska félaginu Benfica.

„Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“
Hilmar Smári Henningsson var ósáttur með sína frammistöðu í seinni hálfleik í síðasta leik og segir Stjörnuna hafa átt skilið tap gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla. Hann settist niður með Stefáni Árna Pálssyni og ræddi fjórða leik liðanna sem er framundan í kvöld.

Sjáðu glæsimark Úlfu, stórsigur Stólanna, sjóðheita Þróttara og Þór/KA þrennuna
Fjórir fjörugir leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir tryggði Stjörnunni sigur með glæsilegu marki. Tindastóll vann stórsigur á heimavelli hamingjunnar. Þróttur skoraði fjögur og fagnaði fjórða sigrinum í röð. Þór/KA setti þrjú í sigri á nýliðunum. Mörkin úr öllum leikjum má finna hér fyrir neðan.

Fyrsti Ítalinn í fjörutíu ár til að vinna opna ítalska
Jasmine Paolini varð í gærkvöldi fyrsti Ítalinn í fjörutíu ár, og aðeins sá fjórði í sögunni, til að vinna opna ítalska meistaramótið í tennis. Paolini sigraði Coco Gauff afar örugglega í úrslitaleiknum.

Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn
Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, átti stórfínan laugardag og leiðir með þremur höggum fyrir lokadag PGA meistaramótsins í golfi.

Löggan óskaði Hildigunni til hamingju
Valur varð í gær Evrópubikarmeistari í handknattleik eftir að hafa lagt spænska liðið Porrino í úrslitaleik. Eftir leik fékk einn leikmaður Vals sérstaka kveðju frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.