Sport

Antonio útskrifaður eftir rúmlega þriggja vikna spítaladvöl
Michail Antonio, framherji West Ham í ensku úrvalsdeildinni, er laus af spítala eftir rúma þriggja vikna dvöl í kjölfar alvarlegs bílslyss.

Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar
LeBron James fagnaði fertugsafmæli sínu í gær. Hann er á tuttugasta og öðru tímabilinu í NBA en segist eiga nóg eftir, ef hann svo kýs.

Martin stiga- og stoðsendingahæstur í tapi Berlínarmanna
Martin Hermannsson endaði árið stigahæstur í 85-96 tapi Alba Berlin gegn Rostock Seawolves í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að ýta öryggisverði
Matheus Cunha, framherji Wolves, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir hegðun sína eftir leik gegn Ipswich þann 14. desember.

Magnus Carlsen mættur aftur í glænýjum gallabuxum
Magnus Carlsen mætti aftur, í glænýjum gallabuxum, á heimsmeistaramótið í at- og hraðskák í New York. Hann fékk sekt fyrir að keppa í gallabuxum og dró sig af þeirri ástæðu úr keppni síðasta föstudag.

Áfrýjun Barcelona hafnað og tíminn að renna út
Dani Olmo mun að öllu óbreyttu missa leikheimild sína með Barcelona á morgun. Liðið áfrýjaði ákvörðun spænska knattspyrnusambandsins en var hafnað af dómstólum á Spáni. Kjósi Olmo að ræða við önnur félög er honum frjálst að segja upp samningi sínum og gera það á morgun.

„Við erum ekki að einbeita okkur að titilbaráttu“
Enzo Maresca, þjálfari Chelsea, þurfti að sætta sig við annað deildartapið í röð í gærkvöldi. Hann var svekktur með færanýtingu sinna manna en segir liðið í góðri stöðu eftir fyrri helming tímabilsins, þó einbeitingin sé ekki á titilbaráttu.

Rooney hættur að þjálfa Guðlaug Victor
Þjálfarinn Wayne Rooney og enska félagið Plymouth Argyle hafa ákveðið að slíta samstarfinu. Hann mun því ekki þjálfa landsliðsmanninn Guðlaug Victor Pálsson áfram, eins og hann hefur gert hjá tveimur mismunandi liðum undanfarin tvö ár.

Sá þriðji í sögunni til að spila fullkominn leik
Russell Westbrook varð í nótt þriðji leikmaður NBA sögunnar til að skila af sér þrefaldri tvennu, án þess að tapa boltanum eða klikka á skoti, í 132-121 sigri Denver Nuggets gegn Utah Jazz.

Óttaðist að drukkna í eigin blóði og ólétta eiginkonan gat ekki horft á
Einn fremsti hjólreiðamaður heims, Jonas Vingegaard, segist hafa óttast að drukkna í eigin blóði þegar hann lá eftir skelfilegt slys í hjólreiðakeppni í Baskahéraði síðastliðið vor.

Víkingar minnast vinar sem lést á 27 ára afmæli sínu
Enski fótboltamaðurinn Michael Newberry, sem lék í þrjú ár á Íslandi, er látinn, aðeins 27 ára að aldri. Víkingur Ólafsvík og enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle eru á meðal þeirra sem minnast varnarmannsins.

Dagskráin í dag: Sportsíldin og Lokasóknin í beinni
Það verður líf og fjör á sportrásum Stöðvar 2 í dag, á gamlársdag, og árið kvatt með viðeigandi hætti.

Littler létt eftir mikla pressu
Hinn 17 ára gamli Luke Littler þurfti að hafa gríðarlega mikið fyrir því að grípa síðasta farseðilinn inn í átta manna úrslitin á HM í pílukasti í kvöld.

Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“
Ruben Amorim segir að Newcastle sé betra lið en Manchester United og viðurkennir að liðið sem hann tók við í nóvember sé að sogast niður í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Newcastle bætti við martröð Man. Utd
Vandræði Manchester United héldu áfram í kvöld en liðið tapaði 2-0 á heimavelli gegn Newcastle, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var þriðja tap Manchester United í röð í deildinni, og markatalan úr þeim leikjum er 7-0. Aston Villa og Brighton gerðu 2-2 jafntefli.

Skelltu Chelsea í þriðja sigri sínum á leiktíðinni
Ipswich er reyndar enn í fallsæti en fagnaði afar góðum 2-0 sigri gegn Chelsea í kvöld, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var annað tap Chelsea í röð og liðið missti af tækifæri til að fara aftur upp í 2. sæti.

Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína
Dómarar leikjanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta munu þurfa að greina frá VAR-ákvörðunum sínum í gegnum hátalarakerfi til áhorfenda, á leikvöngunum sem spilað verður á.

Tveir Grindvíkingar og Valskona tilnefnd sem Íþróttaeldhugi ársins
Valnefnd Íþrótta- og ólympíusambands Íslands hefur valið þrjá öfluga sjálfboðaliða úr íþróttahreyfingunni sem koma til greina sem Íþróttaeldhugi ársins 2024. Þau koma úr fótbolta, handbolta og körfubolta.

Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu
Gunnlaugur Árni Sveinsson og Hulda Clara Gestsdóttir hafa verið útnefnd kylfingar ársins á Íslandi, í fyrsta sinn. Árið endar því heldur betur vel hjá þeim og sérstaklega hinum 19 ára Gunnlaugi sem nú hefur verið valinn í úrvalslið Evrópu fyrir Bonallack Trophy mótið.

Rashford laus úr útlegð
Enski fótboltamaðurinn Marcus Rashford er kominn inn í leikmannahóp Manchester United á nýjan leik eftir að hafa verið hafður utan hóps í síðustu fjórum leikjum.

Vann nauman sigur með geitung í hárinu
Callan Rydz má prísa sig sælan að vera kominn áfram í átta manna úrslitin á HM í pílukasti, eftir 4-3 sigur gegn Rob Owen í dag. Geitungur gerði sig heimakominn í hári Rydz í miðjum leik.

De'Sean Parsons mætir aftur til Hauka
Bandaríkjamaðurinn De'Sean Parsons mun leik með Haukum í Bónusdeild karla eftir áramót. Á dögunum lét félagið þá Tyson Jolly og Steeve Ho You Fat fara frá liðinu.

Júdó og karate ekki lengur með afrekssérsambönd að mati ÍSÍ
Framkvæmdastjórn Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands samþykkti fyrr í desember tillögu stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ um flokkun sérsambanda í afreksflokka.

Meiddist eftir aðeins eina sekúndu
Kvöldið var mjög stutt hjá bandaríska körfuboltamanninum Kevin Schutte í leik um helgina.

Kostaði hann fjórtán milljónir að nota f-orðið í viðtali
Bandaríski körfuboltamaðurinn Anthony Edwards fékk stóra sekt frá NBA deildinni eftir viðtal sem hann veitti eftir leik á dögunum.

Margfaldur Ólympíuverðlaunahafi skiptir um íþrótt
Danski kajakræðarinn Emma Jörgensen hætti keppni í sinni íþrótt eftir Ólympíuleikana í París í haust en nú ætlar hún að byrja aftur en bara í annarri íþrótt.

Yfirgnæfandi líkur á að Liverpool verði Englandsmeistari
Nýjustu útreikningar ofurtölvu tölfræðiveitunnar Opta gefa til kynna að rétt rúmlega níutíu og eitt prósent líkur séu á því að Liverpool standi uppi sem Englandsmeistari að loknu yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

Skoraði í ensku og dreif sig síðan í Ally Pally
Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson var á skotskónum með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær en þrátt fyrir að það væri leikdagur þá lét hann sig ekki vanta á kvöldleikina á heimsmeistaramótinu í pílu.

Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins í handbolta, segir þrjú landslið vera líklegri en önnur til að standa uppi sem heimsmeistari á komandi stórmóti í janúar. Alfreð setur Ísland og Þýskaland í sama flokk. Lið sem geta strítt þeim líklegustu.

Í stormi innan vallar en vann góðverk utan hans
Þrátt fyrir að gengi Manchester United í ensku úrvalsdeildinni hafi ekki verið upp á marga fiska síðkastið er ljóst að Rúben Amorim, knattspyrnustjóri liðsins, lætur það ekki eyðileggja fyrir sér allan daginn. Hann gerði góðverk og gladdi ungan stuðningsmann félagsins á dögunum.