Sport

Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar
Ólafur Andrés Guðmundsson gerði eitt mark og var tvisvar vikið af velli í tvær mínútur, þegar lið hans HF Karlskrona gerði 35-35 jafntefli gegn IK Sävehof .

Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði
Jason Daði Svanþórsson skoraði sitt annað deildarmark á tímabilinu í 2-1 sigri Grimsby gegn Harrogate.

Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið
Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði Birmingham, sem vann 2-0 gegn Burton og komst upp í efsta sæti ensku C-deildarinnar, stigi ofar og með leik til góða á liðið fyrir neðan.

Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park
Aston Villa tapaði 3-0 gegn Newcastle og Jhon Duran var rekinn af velli. Fimm fóru fimm leikir fram síðdegis í ensku úrvalsdeildinni.

Sáu ekki til sólar en unnu samt
Nottingham Forest vann með einu marki gegn engu þegar Tottenham Hotspur kom í heimsókn. Mikilvæg þrjú stig fyrir heimamenn sem eru í harðri Meistaradeildarsætisbaráttu, hrikaleg niðurstaða fyrir Tottenham sem situr í neðri hluta deildarinnar og var að missa enn einn varnarmanninn í meiðsli.

Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir
Chelsea komst yfir snemma gegn Fulham og virtist ætla að vinna en fékk tvö mörk á sig mjög seint og tapaði leiknum. 1-2 lokaniðurstaða á Stamford Bridge. Fjórum stigum munar því enn á Chelsea og Liverpool í efsta sætinu en Fulham hefur nú jafnað Englandsmeistara Manchester City að stigum.

Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“
Arne Slot mun í kvöld stýra liði Liverpool gegn Leicester, lærisveinum samlanda síns Ruud van Nistelrooy. Þeir hafa tvisvar áður mæst sem þjálfarar en þá í hollensku úrvalsdeildinni, Cody Gakpo skoraði í báðum leikjunum.

Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum
Manchester City gerði 1-1 jafntefli gegn Everton á Etihad í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar eftir jólafrí. Heimamenn komust yfir og fengu síðan tækifæri snemma seinni hálfleiks til að vinna leikinn, en Erling Haaland brenndi víti.

Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia
Valencia hefur verið í miklum vandræðum það sem af er tímabils, liðið hefur nú sótt sér nýjan þjálfara. Carlos Corberan var keyptur út úr starfi sínu sem þjálfari West Bromwich Albion. Hann segir það erfiðustu ákvörðun lífs síns að fara frá enska félaginu.

„Ég elska NFL en jóladagur er okkar“
LeBron James hefur unnið flesta leiki á jóladag í sögu NBA deildarinnar. Ellefti sigurinn skilaði sér gegn Golden State Warriors þegar Los Angeles Lakers unnu 115-113 í gær en þá fóru einnig leikir fram í NFL deildinni.

Þúsundasta sendingin gripin og hlaupamet Michael Vick slegið
NFL meistarar Kansas City Chiefs stefna á að verja Super Bowl titilinn þriðja árið í röð og tryggðu sér efsta sæti AFC deildarinnar með 29-10 sigri gegn Pittsburgh Steelers í nótt. Baltimore Ravens fóru svo upp fyrir Steelers í AFC norður deildinni með 31-2 sigri gegn Houston Texans.

Látnir gista líka á æfingasvæðinu
Ekki nóg með að leikmenn Manchester City voru kallaðir til æfinga í gær, jóladag, þegar þeir eru vanir að vera í fríi þá fengu þeir heldur ekki að fara heim eftir æfinguna. Allir leikmenn liðsins sem taka þátt í leiknum gegn Everton á eftir gistu á æfingasvæðinu í nótt.

Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam
Alls hafa fimm einstaklingar hlotið dóm fyrir ólætin sem áttu sér stað í Amsterdam í síðasta mánuði í kringum leik Ajax og Maccabi Tel Aviv í Evrópudeildinni í knattspyrnu.

Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti
Íþróttalífið er heldur betur að vakna eftir stutt jólafrí og boðið verður upp á þrjár beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 og Vodafone, ásamt því að annar þátturinn í seríunni Íslandsmeistarar fer í loftið.

76ers sóttu sigur úr Garðinum
Boston Celtics tóku á móti Philadelphia 76ers í TD Garden í stórleik jóladags í austurdeildinni. 76ers sluppu með 114-118 sigur eftir stórkostlegan leik, þar sem þeir leiddu framan af en voru hársbreidd frá því að missa leikinn frá sér.

Risaleikur Wembanyama dugði ekki til
Franski körfuboltamaðurinn Victor Wembanyama átti sannkallaðan risaleik fyrir San Antonio Spurs er liðið heimsótti New York Knicks í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Það dugði þó ekki til og liðið þurfti að sætta sig við þriggja stiga tap, 117-114.

Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit
Luke Humphries, ríkjandi heimsmeistari og efsti maður heimslistans í pílukasti, er talinn næstlíklegastur til að vinna heimsmeistaramótið sem nú fer fram í Alexandra Palace í London.

Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið
Einu sinni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hefur það gerst að liðið sem situr í sjöunda sæti deildarinnar yfir jólahátíðina hefur fallið úr deild þeirra bestu. Englandsmeistarar Manchester City sitja í sjöunda sæti þessi jólin.

Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz
Þýska stórvaldið Bayern München heldur enn í vonina um að næla í ungstirnir Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen í sumar.

Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út
Luke Littler, ein skærasta stjarna pílukastsins, er orðinn pirraður á því að ná ekki að bæta met sem hann á nú með þeim Michael van Gerwen og Gerwyn Price.

Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum
Enski knattspyrnudómarinn David Coote mun ekki áfrýja brottrekstri sínum úr ensku dómarasamtökunum PGMOL.

Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford
Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, er hissa á þeim ákvörðunum sem fólkið í kringum Marcus Rashford, leikmann liðsins, virðist vera að taka.

Viggó færir sig um set á nýju ári
Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson mun yfirgefa DHfK Leipzig yfir til HC Erlangen þegar nýtt ár gengur í garð.

Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði
Ólympíusnjóbrettakappinn Sophie Hediger lést í snjóflóði í Arosa í Sviss á mánudaginn síðasta. Svissneska skíðasambandið greinir frá andláti hennar.

Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar
Wayne Rooney og Frank Lampard unnu sér inn goðsagnastimpil sem leikmenn í ensku úrvalsdeildinni. Nú stýra þeir báðir liðum í næstefstu deild og munu mætast á morgun í fyrsta sinn sem þjálfarar, eftir að hafa eldað grátt silfur sem leikmenn um árabil.

Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA
Aðfangadagur kom og fór án stórra íþróttaviðburða þetta árið. Nú hefst veislan aftur að nýju og finna má fjöruga dagskrá á jóladag á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone.

Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna
Pep Guardiola hefur klórað sér í höfði undanfarið yfir gengi Manchester City, hann segir vandamál liðsins ekki Erling Haaland einum að kenna. Liðið allt verði að stíga upp, en það gæti reynst erfitt gegn Everton, sem fær varla á sig mark þessa dagana.

Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin
Leikmenn Liverpool snæða jólasteikina í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar þetta árið, sem hefur sjö sinnum gerst áður en aðeins einu sinni hefur liðið orðið meistari. Englandsmeistarar Manchester City voru í fimmta sæti á sama tíma í fyrra.

Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik
Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í áhugaverðri íþrótt sem hefur vaxið mikið í vinsældum undanfarin ár. Pickleball, eða súrknattleikur, er blanda af badminton, tennis og borðtennis.

Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð
Alex Iwobi, leikmaður Fulham í ensku úrvalsdeildinni, hefur tímabundið gerst búðareigandi í Lundúnum. Hann opnaði „AleXpress“ í hverfinu þar sem hann ólst upp til að hjálpa þeim sem minna mega sín yfir hátíðarnar.