
Veiði

Tveir óveiddir stórlaxar ennþá í Ytri Rangá
Ytri Rangá er komin í heildarveiði uppá 9.126 laxa og endar líklega í 9.300 löxum sem er feyknaveiði og gerir þetta að einu besta sumrinu í ánni.

Árleg urriðaganga á Þingvöllum á laugardaginn
Hin árlega urriðaganga verður á Þingvöllum á laugardaginn kemur og að þessu sinni spáir góðu veðri á þáttakendur.

Góður frágangur fer betur með búnaðinn
Nú er aðeins veitt í fimm laxveiðiám en þó fleiri ám þar sem sjóbirtingur er aðalbráðin en tímabilið er þó að enda.

Ágætt sumar að baki á svæðum Strengja
Veiðiskýrsla fyrir veiðisvæðin hjá Veiðiþjónustunni Strengir endurspeglar ágætt sumar á svæðum félagsins og þá sérstaklega í Hrútafjarðará og Jöklusvæðinu.

Glæsileg viðbygging við veiðihúsið í Eystri Rangá
Eitt af því sem erlendir veiðimenn lofa í hástert við komuna í veiðihús landsins er hversu glæsileg hús þetta eru.

Ytri Rangá gæti bætt við sig 500 löxum
Ytri Rangá hefur átt frábært sumar og það sést á veiðitölunum en áinn hefur skilað um 9.000 löxum á land.

Stóra bókin um Villibráð komin út aftur
Það eru margar matreiðslubækurnar sem veiðimenn glugga í þegar á að elda aflann en fáar bækur hafa þó verið jafn vinsælar og Stóra Bókin um villibráð.

Þrjár vikur í rjúpnaveiðina
Nú eru einungis þrjár vikur í að rjúpnaveiðar hefjist og það er kominn mikill fiðringur í skyttur landsins.

Lokatölur komnar úr flestum laxveiðiánum
Lokatölur eru nú komnar úr flestum laxveiðiánum og þegar tölurnar eru skoðaðar nánar mega veiðimenn heilt yfir vel við una.

Breytingar hjá SVFR á Laxárdalssvæðinu
Laxárdalurinn í Laxá í Aðaldal er svæði sem er rómað fyrir fegurð og stóra urriða en veiðin hefur þó verið að minnka síðustu ár.

Frábærir lokadagar í Laxá í Dölum
Nú berast lokatölur frá laxveiðiánum eftir sumar sem var mjög sérstakt en lokaspretturinn var góður víða.

Erlendir veiðimenn farnir að sækja í haustveiði
Þetta sumar er líklega eitt besta stórlaxasumar í mörg ár eða áratugi og fréttir af þessari stórlaxaveiði hafa náð út fyrir landssteinana.

Gæsaveiðin hefur gengið vel um allt land
Gæsaveiðin hófst 20. ágúst og þær fréttir sem berast af skyttum sem hafa setið fyrir síðustu daga eru góðar.

Örfáir dagar lausir í Ytri Rangá
Veiðimenn sem hafa ekki fengið fylli sína á þessu tímabili skima eftir lausum leyfum þessa dagana.

Fyrstu lokatölurnar komnar úr laxveiðiánum
Nokkrar laxveiðiárnar hafa þegar lokið veiði og það er áhugavert að skoða hvernig þær hafa staðið sig í sumar.

Nýjar vikutölur úr laxveiðinni
Það sér fyrir endann á laxveiðitímabilinu þetta sumarið og flestar árnar eru að loka þessa dagana fyrir utan þær sem er haldið uppi með sleppingum.

Mikil eftirspurn eftir laxveiðileyfum fyrir 2017
Þrátt fyrir að veiðin í sumar hafi verið erfið vegna vatnsleysis og sólríkra daga hefur það ekki haft nein áhrif á eftirspurnina fyrir næsta sumar.

Pistill: Eldisfiskur veiðist um allt land
Það er ekki að skilja það sem svo að fyrirsögnin sé á nokkurn hátt gleðiefni enda er um framandi tegund að ræða sem á ekkert erindi í íslenskar ár og vötn.

Flott veiði í Laxá í Dölum
Laxá í Dölum er ein af þessum ám sem á yfirleitt frábæra endaspretti þegar haustlægðirnar láta á sér kræla.

"Veiðistaður 60 er teppalagður af laxi"
Affallið í Landeyjum hefur notið mikilla vinsælda enda er áin aðgengileg og veiðin í henni yfirleitt ansi góð.

Nýir veiðiþættir á Stöð 2
Næstkomandi fimmtudag hefja göngu sína nýjir veiðiþættir á Stöð 2 í umsjón Gunnars Bender og Steingríms Jóns Þórðarsonar.

Haukadalsá komin í 1.013 laxa
Haukadalsá er að eiga frábært sumar og þegar tölurnar voru gerðar upp í fyrradag var áin komin í 1.013 laxa

110 sm lax bættist í bókina í Nesi
Það er heldur betur líf við árnar þessa dagana en góðar fréttir hafa borist úr ánum á vesturlandi loksins þegar það ringdi.

110 sm lax í Vatnsdalsá
Hausthængarnir eru komnir á stjá og það fréttist daglega af löxum um 100 sm en þeir eru orðnir ansi margir á þessu sumri.

Miðfjarðará og Ytri Rangá standa upp úr
Nýjar tölur um vikuveiðina í laxveiðiánum liggja fyrir og það kemur líklega fáum á óvart að staðan hefur lítið breyst.

Sá stærsti úr Ytri Rangá í sumar
Veiðin í Ytri Rangá heldur áfram að vera fantagóð og er áinn sú langhæsta á aflatölulista sumarsins.

Þrír dagar í veiðilok í Elliðavatni
Elliðavatn hefur verið ansi dyntótt á köflum í sumar en það kemur kunnugum við vatnið svo sem ekki á óvart.

Góður kippur í veiðina í kjölfar rigninga
Rigningunni hefur verið vel fagnað af veiðimönnum á vesturlandi þar sem árnar voru orðnar ansi vatnslitlar.

Gæsaveiðin gengur vel hjá flestum skyttum
Gæsaveiðin gengur vel hjá þeim skyttum sem við höfum verið í sambandi við og lægðir og rok í spánni er nákvæmlega veðrið sem gæsaskyttur vilja fá.

Mikið líf í Jónskvísl
Sjóbirtingsveiðin virðist fara ágætlega af stað á sjóbirtingsslóðum á austurlandi en nokkuð af fiski er greinilega að ganga.