Rúmlega 11 þúsund kusu formann 19. maí 2005 00:01
Frestur til að kjósa formann Samfylkingarinnar og skila atkvæðinu rann út nú klukkan sex. Alls bárust rúmlega 11 þúsund atkvæði en úrslit verða birt á hádegi á laugardaginn. Reglurnar voru skýrar. Atkvæðið yrði að hafa borist klukkan sex ef það ætti að teljast með. Fáum mínútum áður en klukkan sló var ys og þys á skrifstofu Samfylkingarinnar. Margir voru á síðustu stundu til að koma atkvæði sínu til skila en fjórar vikur eru frá því atkvæðaseðlar voru sendir út í póstkosningunni. Á slaginu sex var dyrunum læst. Það var ekki fyrr búið að snúa lyklinum en einhverjir birtust, örfáum sekúndum of seinir. Síðast kusu fimm þúsund manns í formannskjöri Samfylkingarinnar. Hvað voru þeir margir nú? Flosi Eiríksson, formaður kjörstjórnar, segir að eftir eigi að bera það sem barst í dag saman við kjörskrá en kjörstjórnin treysti sér til að segja að rúmlega ellefu þúsund að lágmarki hafi kosið. Talið verði á laugardagsmorguninn og úrslitin tilkynnt klukkan 12.01 sama dag. Þá komi í ljós hver verði næsti formaður Samfylkingarinnar og næsti forsætisráðherra lýðveldisins. Úrslitin í formannskjöri Samfylkingarinnar verða tilkynnt í beinni útsendingu í aukafréttatíma á Stöð 2 í hádeginu á laugardaginn. Þá verða líka flutt ávörp þess sem sigrar og þess sem tapar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Innlent Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Innlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Erlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Fleiri fréttir Setja hundrað milljónir í barnavernd í Mosó Skora á Alþingi að bæta stöðu Kvikmyndasjóðs Enginn formlegur sáttafundur í tíu daga Leikskólakennarar á Nesinu fjölmenntu til fundar við bæjarstjóra Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Samgöngur og neysluvatn að komast í samt lag Pallborðið: Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Engin bein tilmæli um breytingar á meðan endurskoðun stendur Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Sjá meira