Fótbolti

Andri Rúnar í Víking

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Andri Rúnar í búningi Víkings
Andri Rúnar í búningi Víkings vísir/aðsend
Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason hefur gert þriggja ára samning við Pepsí deildar félagið Víking en hann kemur frá BÍ/Bolungarvík.

Andri Rúnar hefur leikið fyrir vestan síðustu 9 tímabilin og skorað 72 mörk í 164 leikjum en hann skoraði 7 mörk í 17 leikjum í 1. deildinni í sumar.

Hinn 24 ára gamli Andri Rúnar styrkir leikmannahóp Víkings sem tekur þátt í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×