Tekinn á 155 kílómetra hraða við erfiðar aðstæður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. febrúar 2018 13:20 Lögreglan á Suðurlandi hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku. Vísir/Eyþór
Erlendur ferðamaður frá Hong Kong var gripinn á 155 kílómetra hraða um helgina við Hóla í Hornafirði. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum. Krap var milli hjólfara á veginum þar sem þetta var og hættan af þessu aksturslagi augljós að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Greiddi maðurinn sektina á staðnum og tók ferðafélagi hans við akstrinum. 30 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku. Í fimm þeirra urðu slys á fólki en þó ekki alvarleg. Alvarlegasta atvikið reyndist þegar ökumaður sem hugðist aka fram úr annarri bifreið, á Suðurlandsvegi skammt vestan Kúðafljóts þann 13. febrúar síðastliðinn, rak bíl sinn í horn bifreiðarinnar sem hann hugðist aka fram úr og lenti út af vegi og valt. Sama dag valt bifreið á Suðurlandsvegi við Mókeldu. Ökumaður og farþegi hlutu minniháttar meiðsl af veltunni. Bifreiðin reyndist ótryggð og eins var um 3 aðrar sem fundust í eftirlitsferðum um umdæmið í vikunni. Skráningarnúmer þessara bifreiða voru fjarlægð.
Lögreglumál Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Fleiri fréttir Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Sjá meira