Varar við nýju vígbúnaðarkapphlaupi

Hann sagðist hafa áhyggjur af því að Bandaríkin hefðu þegar rift Anti-Ballistic Missile (ABM) samkomulagið, ætluðu sér að rifta INF og framtíð New START væri óviss.
„Það væri ekkert annað í stöðunni en nýtt vígbúnaðarkapphlaup,“ sagði Pútín.
Aðildarríkjum ABM var bannað að þróa leiðir til að skjóta niður langdrægar eldflaugar. George Bush, yngri, rifti samkomulaginu árið 2002. INF snýr að banni við þróun og framleiðslu meðaldrægra eldflauga. New START snýr að því að Bandaríkin og Rússland fækki kjarnorkuvopnum og langdrægum eldflaugum. Skrifað var undir samkomulagið árið 2010 og á fækkunin að standa yfir til 2021.
Munu bregðast hratt við
Þá sagði Pútín að Rússar myndu bregðast hratt við ef Bandaríkin kæmu kjarnorkuvopnum fyrir í Evrópu. Kjarnorkuvopnum Rússlands yrðu miðað á þau tilteknu ríki, hver sem þau yrðu.
„Þetta er augljóst,“ sagði Pútín og bætti við: „Ég skil ekki af hverju við ættum að setja Evrópu í svo mikla hættu.“
Þá sakaði Pútín Bandaríkin um að brjóta gegn INF, sem bæði Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið hafa sakað Rússa um að brjóta gegn. Hann sagði auðvelt að breyta eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna í Rúmeníu til að gera mögulegat að skjóta kjarnorkuvopnum með þeim. Hann sagðist ætla að ræða þetta við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar þeir hittast í París í næsta mánuði.
„Við erum tilbúnir að vinna með félögum okkar í Bandaríkjunum án allrar móðursýki,“ sagði Pútín.
Trump ekki smeykur við vígbúnaðarkapphlaup
Ef marka má orð Trump frá því fyrr í vikunni er hann þó alls ekki hræddur við vígbúnaðarkapphlaup. Hann sagði á mánudaginn að hann vildi gera nýtt samkomulag um kjarnorkuvopn og að Kínverjar yrðu aðilar að því einnig.
Þá sagði hann að Bandaríkin myndu byggja upp kjarnorkuvopn ríkisins og þar sem Bandaríkin ættu mun meiri peninga en aðrir gætu þeir gert staðið að uppbyggingu lengur en önnur ríki.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, sagði í dag að þó Rússar væru að brjóta gegn INF byggist hann ekki við því að bandalagið myndi koma fleiri kjarnorkuvopnum fyrir í Evrópu.
Tengdar fréttir

Fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna gagnrýnir ákvörðun Trumps
Fyrrum forseti og síðasti leiðtogi hinna sálugu Sovétríkja, Mikhail Gorbachev, segir að áform Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að rifta kjarnorkusamkomulagi milli Rússlands og Bandaríkjamanna séu einungis til þess fallin að draga úr þeim árangri sem náðst hefur í kjarnorkuafvopnun heimsins.

Rússar segja að riftun kjarnorkuvopnasamkomulagsins muni hafa alvarlegar afleiðingar
Yfirvöld í Rússlandi hafa fordæmt áætlanir stjórnvalda í Bandaríkjunum um að rifta kjarnorkuvopnasamkomulagi ríkjanna frá árinu 1987. Bandaríkin séu með þessu að stíga "mjög hættulegt skref“ sem muni kalla á aðgerðir af hálfu Rússlands.

Trump og Pútín stefna á fund í París
Áætlað er að fundur forsetanna fari fram þann 11. nóvember en þá verða þeir báðir í París vegna aldarafmælis fyrri heimsstyrjaldarinnar.

Ætlar að byggja upp kjarnorkuvopnabúr Bandaríkjanna þar til aðrir „ná áttum“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin muni byggja upp kjarnorkuvopnabúr sitt. Það verði gert til að beita Rússland og Kína þrýstingi.