Aron Einar lék allan leikinn í grátlegu tapi gegn Chelsea Arnar Geir Halldórsson skrifar 31. mars 2019 14:45 Aron Einar lék allan leikinn á miðju Cardiff vísir/getty Chelsea heimsótti Cardiff í ensku úrvalsdeildinni í dag og var íslenski landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson á sínum stað í byrjunarliði Cardiff. Maurizio Sarri ákvað að hefja leik með Eden Hazard á varamannabekknum og það var ekki að virka vel fyrir Chelsea því þeir náðu ekki að ógna marki Cardiff að neinu viti í fyrri hálfleik. Raunar gerðist fátt markvert í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi jöfn, 0-0. Síðari hálfleikur var svo rétt nýhafinn þegar Cardiff komst yfir með marki Victor Camarasa. Fljótlega í kjölfarið var Eden Hazard sendur á vettvang til að bjarga málunum. Chelsea jafnaði hins vegar ekki metin fyrr en á 84.mínútu með ólöglegu marki þegar Cesar Azpilicueta skoraði en hann var rangstæður. Það fór framhjá línuverðinum og markið fékk því að standa. Gestirnir stálu svo sigrinum í uppbótartíma en þá var það varamaðurinn Ruben Loftus Cheek sem kom boltanum í netið. Lokatölur 1-2 fyrir Chelsea. Mikilvæg stig í sarpinn fyrir Chelsea en grátlegt tap fyrir Cardiff sem er fimm stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn