Fótbolti

Orri úr frystinum í fremstu víg­línu gegn Man. City

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Steinn Óskarsson hefur mætt stórliðum á borð við Bayern München og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í vetur.
Orri Steinn Óskarsson hefur mætt stórliðum á borð við Bayern München og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í vetur. Getty/Lars Ronbog

Orri Steinn Óskarsson er í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar í seinni leik liðsins við meistara Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Vakið hefur furðu margra að Orri skuli ekkert hafa spilað með FCK á þessu ári, og raunar verið utan hóps í þeim þremur deildarleikjum sem liðið hefur spilað eftir vetrarfrí. Hann var á varamannabekknum allan tímann í fyrri leiknum við City, sem enska stórliðið vann 3-1.

Núna færi Orri ekki bara sínar fyrstu mínútur með FCK á árinu heldur sæti í byrjunarliðinu.

Leikur Manchester City og FCK hefst klukkan 20 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×