Innlent

Mál Sam­herja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni

Kjartan Kjartansson skrifar
ODEE (Oddur Eysteinn Friðriksson) þarf að verja sig fyrir dómi í Bretlandi í vikunni.
ODEE (Oddur Eysteinn Friðriksson) þarf að verja sig fyrir dómi í Bretlandi í vikunni. Davíð Þór/Heimildin

Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteni Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.

Afsökunarbeiðnin og vefsíða sem Oddur smíðaði og lét líta út fyrir að vera á vegum Samherja var hluti af útskriftarverkefni hans við Háskólans í Björgvin í Noregi. Oddur hefur ítrekað reynt að blekkja fjölmiðla með fölskum fréttatilkynningum sem hann hefur sent út, nú síðast í nafni bandarísku kaffihúsakeðjunnar Starbucks.

Samherji óskaði eftir því að Oddur tæki vefsíðuna niður, afhenti fyrirtækinu lén hennar og gerði grein fyrir því að síðan hefði verið fölsuð. Því neitaði hann. Í kjölfarið stefndi Samherji Oddi fyrir breskum dómstól en vefsíðan var hýst í Bretlandi.

Í viðtali norska ríkisútvarpsins NRK við Odd kemur fram að réttarhöldin hefjist á fimmtudaginn, 26. september.

„Þeir vilja að ég skili vefsíðunni og eyði öllu tengdu listaverkinu,“ segir hann við NRK.

Vilja aðeins stöðva gjörninginn

Haft er eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, að Oddur hafi gerst sekur um hugverkabrot. Í ljósi þess að Oddur hafi neitað að bregast við óskum fyrirtækisins hafi það haft þann kost einan eftir að leita til dómstóla.

„Samherji hefur engan áhuga á að stefna [Oddi] umfram það að stöðva vísvitandi ólögleg brot hans.“

Afsökunarbeiðnin sem Oddur gaf út í nafni Samherja tengdist ásökum á hendur sjávarútvegsrisanum vegna spillingarmála í Namibíu. Fulltrúar fyrirtækisins voru sakaðir um að bera fé á áhrifamenn þar til þess að tryggja sér aflaheimildir.

Bandalag íslenskra listamanna lýsti yfir stuðningi við Odd í sumar og hvatti Samherja til þess að láta málið gegn honum falla niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×