Blaðamenn Wall Street Journal hafa séð umrædd drög, sem voru samin af einum af mörgum stefnumótunarhópum sem starfa með aðlögunarteymi Trumps sem vinnur að myndun ríkisstjórnar hans.
Samkvæmt drögunum yrðu herforingjar sem nefndin myndi benda á neyddir til að setjast í helgan stein innan þrjátíu daga. Ekki er ljóst á hverju nefndin mun byggja störf sín, verði forsetatilskipunin samþykkt af Trump, eða hvaða staðla herforingjar þyrftu að fylgja. Það seina sem stendur er að nefndin myndi kanna leiðtogahæfileika, viðbúnað og hernaðargetu.
Sem forseti og æðsti leiðtogi herafla Bandaríkjanna mun Trump geta rekið þá herforingja sem hann vill. Í frétt WSJ segir hins vegar að stofnun nefndarinnar, sem skipuð yrði mönnum að hans vali, myndi fara fram hjá hefðbundnu ferli varnarmálaráðuneytisins varðandi það að hækka menn í tign og gefa til kynna að Trump hefði í hyggju að fara í hreinsanir í efstu stigum heraflans.
Deildi oft við herforingja sína
Í fyrstu forsetatíð hans skipaði Trump nokkra herforingja í embætti í ríkisstjórn. Þeirra á meðal voru James Mattis, varnarmálaráðherra, og John Kelly, starfsmannastjóri hans. Báðir hafa gagnrýnt Trump harðlega og Kelly sagði til að mynda skömmu fyrir kosningarnar að Trump félli undir skilgreiningu fasista.
Sjá einnig: Kelly segir Trump ekki skilja takmörk valda sinna
Trump deildi einnig mjög við Mark Milley, fyrrverandi formann herforingjaráðs Bandaríkjanna, og hefur sagt að taka ætti Milley af lífi fyrir landráð.
Trump mun eitt sinn hafa skammað Kelly og spurt hann af hverju herforingjar hans gætu ekki verið eins og herforingjar Adolfs Hitler. Þeir hefðu verið hliðhollir Hitler og gert það sem hann sagði þeim að gera.
Eins og frægt er reyndu herforingjar Hitlers að ráða hann af dögum þann 20. júli 1944.
Vill reynslulausan sjónvarpsmann við stýrið
Trump tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að skipa sjónvarpsmanninn Pete Hegseth, sem vinnur hjá Fox og er einn stjórnanda Fox and Friends, í embætti varnarmálaráðherra. AP fréttaveitan segir þær fregnir hafa komið starfsmönnum varnarmálaráðuneytisins og embættismönnum í Washington DC verulega á óvart.
Trump hefur verið tíður gestur í Fox and Friends á undanförnum árum og myndað vinabönd við Hegseth.
Hegseth er uppgjafahermaður en er að öðru leyti talinn frekar reynslulaus fyrir embætti varnarmálaráðherra.
Sjónvarpsmaðurinn hefur áður sagt að hann sé verulega mótfallinn því sem hann og aðrir kalla „woke“ verkefni innan hersins, þar sem ýtt er undir jafnrétti og jafna þátttöku, og að reka eigi alla herforingja sem komið hafa að slíkum verkefnum.
Hann hefur einnig gefið til kynna að hann sé mótfallinn því að konur fái að taka þátt í bardögum.
Meðal annars hefur Hegseth sagt að fjölbreytileiki í hernum sé styrkleiki, í því samhengi að hvítir menn og menn úr minnihlutahópum geti staðið sig svipað vel í átökum, þá eigi það sama ekki við konur.
Hegseth hefur einnig hvatt til þess að náða hermenn sem sakfelldir hafa verið fyrir stríðsglæpi. Það gerði Trump árið 2019, þegar hann náðaði þrjá menn sem höfðu verið sakaði og dæmdir fyrir stríðsglæpi.
Sjá einnig: Trump náðar hermenn sakaða um og dæmda fyrir stríðsglæpi
Einn sérfræðingur sagði í samtali við AP fréttaveituna að reynsluleysi Hegseth gæti komið niður á möguleikum hans á því að komast í gegnum öldungadeildina, sem þarf mögulega að staðfesta tilnefningu hans í embætti.
„Ég held að Trump sé þreyttur á því að slást við varnarmálaráðherra sína og hafi valið einn sem er honum hliðhollur,“ sagði sérfræðingurinn.
Trump hefur kallað eftir því að næsti leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni, sem valinn verður í dag, muni færa tálma úr vegi hans og gera honum kleift að tilnefna menn í embætti án aðkomu þingsins.
Embættismenn í ráðuneytinu sögðu í samtali við blaðamenn AP að þeir óttist að reynsluleysi Hegseth gæti komið niður á starfi ráðuneytisins, þar sem hann hafi enga reynslu af því að stýra svo stóru batteríi.
Varnarmálaráðuneytið fær meira en átta hundruð milljarða dali á ári og undir ráðuneytinu starfa um 1,3 milljónir hermanna og 1,4 milljónir í þjóðvarðliði, varaliði og óbreyttir borgarar um heiminn allan.
Þá standa Bandaríkjamenn frammi fyrir margvíslegum vandamálum á heimsvísu. Má þar nefna átök í Mið-Austurlöndum og í Úkraínu, aukið samstarf Rússlands og Norður-Kóreu, auk aukinnar samkeppni við Kína.
Þá þurfa Bandaríkjamenn einnig að nútímavæða kjarnorkuvopnabúr sín og eldflaugavarnir, auk þess sem bæta þarf hergagnaiðnað landsins svo hann anni mikilli eftirspurn þessa dagana.