Innlent

Um­ræðu um bókun 35 aftur frestað

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Ætla má að þingmenn komist seinna í sumarfrí en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. 
Ætla má að þingmenn komist seinna í sumarfrí en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.  Vísir/Einar

Þingfundi á Alþingi lauk um tuttugu mínútur yfir fjögur en þá hafði hann staðið í um sex klukkustundir. Umræður um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 á Alþingi höfðu þegar staðið í sex klukkustundir á föstudagskvöld þegar henni var frestað fram á laugardagsmorgun. Umræðunni hefur aftur verið frestað fram á þriðjudag.

Nú síðdegis héldu þingmenn áfram að skrá sig á mælendaskrá, einkum úr röðum stjórnarandstöðunnar. Samkvæmt dagskrá þingsins voru fjögur önnur mál, sem áttu að vera á dagskrá í dag, tekin af dagskrá.

„Nú eru umræðu um fyrsta dagskrárlið frestað og málið tekið af dagskrá,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis.

Forseti Alþingis tilkynnti forsætisnefnd og formönnum þingflokka í gær að starfsáætlun Alþingis hefur verið felld úr gildi, en upphaflega gerði starfsáætlun ráð fyrir því að þingstörfum myndi ljúka á föstudaginn í næstu viku. Ljóst þykir að þing mun starfa eitthvað lengur inn í sumarið. Þó er gert ráð fyrir að eldhúsdagsumræður fari fram samkvæmt fyrri áætlun miðvikudagskvöldið 11. júní.

Þing kemur aftur saman á þriðjudag eftir hádegi. Gera má ráð fyrir að umræðurnar haldi þá áfram.

Fréttin var uppfærð eftir að þingfundi lauk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×