Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 29. júní 2025 18:31 Valur - KR Besta deild karla Sumar 2025 vísir/Diego KR tók á móti FH á AVIS vellinum í 13. umferð Bestu deildar karla í kvöld. KR-ingar sem höfðu unnið einn sigur í síðustu fimm leikjum sóttu langþráðan sigur eftir rasskellingu síðustu umferðar þegar liðið tapaði 6-1 fyrir Valsmönnum. FH-ingar lágu neðarlega á vellinum og leyfðu KR-ingum að stýra spilinu og halda boltanum og reyndu að nýta sér skyndisóknir þegar þeir unnu boltann. Það gekk ágætlega enda skoruðu þeir fyrsta mark leiksins á 27. mínútu með frábæru marki Kjartans Kára Halldórssonar. KR-ingar sóttu á mark FH-inga en þeir voru þéttir í vörninni og KR-ingar komu boltanum ekki í netið. Staðan því 0-1 fyrir gestina og þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik. KR-ingar komu af krafti út í seinni hálfleikinn og það tók heimamenn aðeins tvær mínútur að jafna leikinn. Ástbjörn Þórðarson tekur boltann í fyrsta eftir hornspyrnu frá Jóhannesi Kristni Bjarnasyni og staðan því 1-1. Á 62. mínútu skoraði Kjartan Kári Halldórsson beint úr aukaspyrnu og tóku FH-ingar því aftur forystuna. KR-ingar voru ekki lengi að jafna en fjórum mínútum síðar voru KR-ingar á ferðinni aftur. Jóhannes Kristinn Bjarnason finnur Eið Gauta Sæbjörnsson einan og yfirgefin í teigi gestanna og nær hann að klára færið laglega. Eftir seinna mark heimamanna tóku KR-ingar öll völd á vellinum og voru mun líklegri til þess að sækja sigur og öll þrjú stigin. Eiður Gauti Sæbjörnsson klárar svo leikinn á fyrstu mínútu í uppbótartíma þegar Júlíus Mar Júlíusson er með langa fyrirgjöf inn í teiginn og þar er Aron Sigurðarson sem tekur boltann í fyrsta og Eiður Gauti kemur boltanum í netið, alvöru framherja mark. Staðan því 3-2 fyrir heimamönnum þó ekki beint á heimavelli en langþráður sigur fyrir KR-inga sem koma sér af botninum og fyrir miðja töflu. Atvik leiksins Mörkin voru frábær og laglega kláruð. Langar að nefna það að Ívar Orri dómari leiksins gaf Eiði Gauta Snæbjörnssyni áminningu fyrr í leiknum og lét hann vita að næsta brot yrði gult spjald. Hann stóð þó ekki við það þegar Eiður Gauti braut af sér á annarri mínútu í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Á 69. mínútu hefði Grétar Snær Gunnarsson hreinlega geta fengið sitt annað gula spjald þegar hann fer harkalega í bakið Jóhannesi Kristni Bjarnasyni. Stjörnur og skúrkar Eiður Gauti Sæbjörnsson virkilega góður í dag og náði að skila sínu með tveimur frábærum framherjamörkum ef það má segja það. Kjartan Kári Halldórsson einnig með tvö góð mörk í kvöld. Stemning og umgjörð Góð stemning á vellinum og mikið um manninn. Styttri röð á kvennaklósettið en karla sem er eitthvað sem maður upplifir sjaldan. Það þarf líka að þrífa glerið á blaðamannaboxinu það er allt út í fuglaskít en annars allir hressir bara. Dómarar Ívar Orri Kristjánsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson dæmdu leikinn í kvöld. Hef ekkert út á dómgæsluna þannig séð að setja, þetta var bara þokkalega gert. Viðtöl: Óskar Hrafn: „Skemmtilegra að vinna en að tapa“ Óskar Hrafn er þjálfari KRvísir / diego „Ég er feikilega sáttur með frammistöðuna, hún var gífurlega öflug. Frá fyrstu mínútu til síðustu og ég er ánægður með að við hættum aldrei. Við lendum undir og það hefði verið auðvelt að „panika“ og fara að flýta sér, mér fannst við ekki gera það. Mér fannst við góðir að halda skipulaginu allan leikinn og ég er gríðarlega ánægður.“ „Það er auðvitað skemmtilegra að vinna fótboltaleiki heldur en að tapa þeim, þó ég hafi kannski talað um að úrslitin séu ekki allt og þú getur ekki látið lífið stjórnast af úrslitum þá er skemmtilegra að vinna en að tapa.“ Aron Sigurðarson og Atli Hrafn Andrason komust báðir í ágætis færi seint í leiknum en boltinn virtist ekki vilja inn og var óvíst undir lokin hvort stigin myndu skiptast jafnt eða hvort KR-ingar myndu taka öll þrjú. „Maður fer kannski að hugsa að þetta sé ekki dagurinn okkar því að mér fannst við hafa mikla yfirburði allan leikinn. Þú stjórnar því sem þú stjórnar, brennir af og það er bara næsta sókn. Mér fannst við góðir í því að svekkja okkur ekki á færum sem fóru forgörðum heldur núllstilltu menn sig og fóru aftur af stað. Þetta var kannski KR liðið sem við þekkjum, liðið sem hefur ekki hætt, þó við gerðum það í síðasta leik þá er bara mikilvægt að láta ekki útlagan skilgreina sig. Þetta er það sem KR liðið stendur fyrir, að spila fram á 94. mínútu eða 100. mínútu ef þannig ber undir og klára leikinn almennilega.“ KR-ingar töpuðu 6-1 fyrir Valsmönnum í síðustu umferð Bestu deildar karla og voru stuðningsmenn liðsins allt annað en sáttir með þau úrslit. „Ég hugsa að stemningin í Frostaskjóli verði léttari á morgun heldur en hún var á þriðjudaginn í síðustu viku. Það er frábært og mikilvægt að vinna leiki og það léttir lundina, sérstaklega þegar yfirburðirnir eru svo miklir að það hefði verið galið að labba útaf vellinum án þess að vera með þrjú stig í farteskinu.“ „Það sem situr eftir hjá mér er frammistaðan allan leikinn, ég set Gabríel Hrannar Eyjólfsson í hafsent og hann leysir það stórkostlega. Guðmundur Andri Tryggvason er að koma til baka, Ástbjörn Þórðarson er á kantinum. Eiður Gauti Sæbjörnsson er búin að ganga í gegnum smá þurrð og skorar hér tvö frábær mörk. Það er þetta sem er svo dýrmætt, af því við erum jú auðvitað að reyna að gera eins vel og við getum í hverjum leik, reyna að ná eins góðum úrslitum og frammistöðum og við getum. Það eru samt svona leikir sem að færa manni ennþá meiri trú á að við getum þetta og að þetta geti orðið virkilega gott.“ KR-ingar náðu aldrei almennilega í gegnum vörn FH-inga í fyrri hálfleik. Þeir komu þó af krafti út í seinni hálfleik og tók þá einungis þrjár mínútur að jafna leikinn. Hvað var það sem heimamenn þurftu að gera öðruvísi? „Við þurftum að draga djúpt andann, við fórum kannski full snemma í fyrirgjafir í fyrri hálfleik og margar af þeim strönduðu á þessum stóru hafsentum sem FH er með. Þetta snerist um að vera rólegir og halda rónni, gera aðeins betur í stöðunum sem við fengum. Við fengum engin dauðafæri í fyrri hálfleik en fengum góðar stöður og það þarf ekki mikið að gerast til þess að þessar stöður verða að einhverju og ef þú heldur áfram að banka nógu fast á hurðina þá gefur hún sig á endanum og hún gerði það. “ Besta deild karla KR FH