Innlent

Þing­fundi frestað: Stjórnar­and­staðan lagði fram „að­eins mýkri“ til­lögu

Agnar Már Másson skrifar
Sigurður Ingi staðfestir þetta.
Sigurður Ingi staðfestir þetta.

Þingfundi hefur verið slitið án árangurs í þinglokaviðræðum eftir dramatískan dag. Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu fyrir ríkisstjórnina í kvöld í von um að leysa úr þráteflinu sem myndast hefur í málþófinu um veiðigjaldafrumvarpið.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, einn af varaforsetum þingsins, tilkynnti þingheimi klukkan 21 í kvöld að þingfundi væri frestað.

Líklega verður veiðigjaldamálið aftur tekið fyrir á þingfundi á morgun klukkan 10 en dagskrá liggur ekki fyrir.

Formenn flokkanna á Alþingi funduðu síðdegis í dag. Stjórnarandstaðan lagði fram nýja tillögu sem var „aðeins mýkri“ en fyrri tillaga, segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, í samtali við Vísi.

„Við lögðum bara fram aðeins mýkri nálgun,“ segir Sigurður Ingi en hann vildi ekki greina frá innihaldi tillögunnar. Samkvæmt heimildarmönnum Vísis í þinghúsinu kvað fyrri tillaga stjórnarandstæðinga á um eins prósentustiga hækkun á veiðigjaldi yfir næstu fimm ár, þá úr 33 prósentum í 38 prósent.

Sigurður Ingi lýsir því að „þreifingar“ hafi verið í gangi seinni partinn og telur að „allt sé gerlegt“ en lengra verði ekki komist í kvöld. „Einfaldlega vegna þess að það hefur verið kannski fullmikið sagt í dag,“ bætir hann við.

„Og það þurfa allir aðeins að hvíla sig hver á öðrum. Stundum er það ágætis leið til að ná samningum.“

Þung orð féllu á þingfundi í dag. Þar má nefna að Guðmundur Ingi Kristinsson menntamálaráðherra hafi sakað Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, um valdaránstilræði eftir að hafa slitið þingfundi í gærkvöldi í óþökk forseta þingsins.

Í framhaldi af fundi formanna hittust þingflokksformenn og forseti Alþingis þar sem ákveðið var að slíta fundinum, segir Hildur í samtali við fréttastofu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×