Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Kjartan Kjartansson skrifar 2. júní 2026 14:44 Hátt í þúsund mælitæki eins og þetta voru hluti af Ocean Observatories Initiative-verkefninu sem bandarísk stjórnvöld ætla nú að binda enda á fimmtán árum á undan áætlun. Woods Hole-haffræðistofnunin Mælitæki í Grænlandshafi sem hefur nýst vísindamönnum til þess að fylgjast með styrk veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) er eitt hundraða sem bandarísk stjórnvöld ætla að byrja að fjarlægja á næstunni. Aðgerðin er nýjasti liðurinn í herferð þeirra gegn loftslagsvísindum.
Vísindasjóður Bandaríkjanna (NSF) ætlar að byrja að fjarlægja rúmlega níuhundruð mælitæki sem fylgjast með sjávarhita, hafstraumum og upptöku sjávar á koltvísýringi úr andrúmsloftinu í þessum mánuði, að því er segir í frétt New York Times. Eitt þeirra er í Grænlandshafi á milli Íslands og Grænlands. Það er tjóðrað við hafsbotninn þar sem hefur alþjóðlegur hópur vísindamanna sem rannsakar veltihringrásina notfært sér mælitækið. Vaxandi áhyggjur eru nú af því að veltihringrásin, sem flytur varma norður á bóginn og gerir aðstæður við Norður-Atlantshaf vistlegri en ella, veikist eða hrynji jafnvel alveg vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Það ylli gríðarlegri kólnun sem hefði hamfarakennd áhrif á búsetuskilyrði á Íslandi og víðar í kringum Norður-Atlantshafið. Þessu neti mælitækja var komið fyrir árið 2016 og áttu þau að vera starfrækt í aldarfjórðung. Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Repúblikanaflokksins hafa lengi hamast gegn verkefninu og hafa ítrekað reynt að fjársvelta það. Bandaríkjaþing neitaði þó að samþykkja það. Ítrekað reynt að skera framlög niður við nögl Nú hefur NSF ákveðið að leggja vöktunarkerfið alveg niður þrátt fyrir að umsjónarmenn þess hefðu þegar slökkt á hluta þess til þess að draga úr rekstrarkostnaði. Talsmaður sjóðsins gaf New York Times ekki efnislegt svar um hvers vegna ákvörðunin hefði verið tekin en vísaði til þess að hún samræmdist nýjum áherslum sjóðsins. Craig McLean, aðalvísindamaður Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA) á fyrra kjörtímabili Trump, segir að ákvörðunin um að fjarlægja mælitækin séu hluti af mynstri hjá núverandi ráðuneyti forsetans. „Þetta endurspeglar frekara skilningsleysi núverandi ríkisstjórnar á virði vísindastarfs. Með því að taka kerfi af þessu tagi úr umferð setjum við Bandaríkin enn og aftur í aftursæti í vísindastarfi í heiminum,“ segir McLean við bandaríska blaðið. Ríkisstjórn Trump hefur þegar dregið Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. Umhverfisstofnun hennar skilgreinir gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, ekki lengur skaðlegar og tekur ekki tillit til áhrifa loftmengunar á heilsu fólks við ákvarðanir um mengunarreglur. Þá er umhverfisvernd ekki lengur á meðal markmiða þeirrar stofnunar. Hafa hvatt til frekari rannsókna Vísbendingar eru um að AMOC hafi ekki verið veikari í þúsund ár. Þá er það ekki lengur talið óraunhæft að hringrásin gæti hægt verulega á sér eða stöðvast með áframhaldandi hlýnun á þessari öld. Vísindamenn sem rannsaka hringrásina hafa jafnframt varað við því að hugsanlegt sé að farið verði yfir vendipunkt þar sem hrun hennar verður óumflýjanlegt verði ekkert að gert. Mögulega muni menn ekki vita af því fyrr en það verði of seint. Því hafa þeir hvatt til aukinna rannsókna og athugana í hafinu. Niðurstöður rannsóknar sem vísindamenn frá Íslandi tóku þátt í og birtust í síðustu viku bentu til þess að kuldapollur í hafinu sunnan við Ísland sé tilkominn vegna minni varmaflutninga í hafinu. Ángel Ruiz-Angulo, dósent við Háskóla Íslands, sem var á meðal höfunda greinar um rannsóknina sagði Vísi um helgina að athuganir og vöktun skorti í hafinu suður af Íslandi til þess að fylgjast nánar með mögulegum breytingum þar. Hópur nokkurra fremstu loftslagsvísindamanna og haffræðinga í heimi vöruðu norræna ráðherra við mögulegu hruni AMOC á Hringborði norðurslóða árið 2024. Hvöttu þeir norræna ríki til þess að nýta áhrif sín til þess að þrýsta á um hertar aðgerðir til þess að draga úr hættunni.
Loftslagsmál Vísindi Tækni Bandaríkin Donald Trump Hafið Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira