NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 7. júlí 2026 18:33 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Lýður Valberg Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu.
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hófst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækja fundinn fyrir hönd Íslands. Þorgerður Katrín var á línunni frá Ankara í Reykjavík síðdegis í dag. Hún segir aðild Íslands að NATO vera mikilvæga og að samstaða meðal Íslendinga varðandi aðild að bandalaginu sé eindregin en að hátt í áttatíu prósent landsmanna styðji aðild Íslands að bandalagi sem hafi það að markmiði að stuðla að friði. Nýlegar árásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, dragi fram mikilvægi þess að NATO standi þétt með frelsisbaráttu Úkraínu og sýni fram á samstöðu og samheldni bandalagsins. Leiðtogafundurinn í ár sé fyrsti fundurinn eftir að ákvarðanir Evrópuríkja og Kanada voru teknar um að stórauka fjárframlög til varnarmála til að mæta ógninni frá Rússlandi. Aðildarríki séu að bæta við fjárframlög sín við stuðning við Úkraínu. Ísland sé meðal þeirra ríkja sem auki fjárframlög sín en stuðningur Íslands við Úkraínu sé margvíslegur. Auk hernaðarlegs stuðnings sé mikill mannúðarstuðningur fólginn í stuðningi Íslands við Úkraínu sem og aðstoð við uppbyggingu borgaralegra innviða í kjölfar árásar Rússa á orkumannvirki. Þorgerður segist vona að í kjölfar fundarins verði frekari kraftur settur í friðarviðræður á svæðinu. „Það er ljóst að síðustu mánuðina hefur Úkraína verið með ákveðna yfirhönd og þá er núna tími sem við eigum akkúrat að styðja enn frekar við Úkraínu, þannig að hún nái almennilegum yfirtökum í þessu stríði og þrýsti þar með kannski Rússlandi enn frekar að samningaborðinu,“ segir hún.
NATO Utanríkismál Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Tyrkland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira