Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar 17. september 2026 14:03 Menningarlíf Reykjavíkur verður til hjá öllu því ótrúlega skapandi og öfluga listafólki sem iðkar list sína í borginni. Borgin á að skapa þessu fólki og hugmyndum þess góð skilyrði til að blómstra. Þegar nýr meirihluti tók við í Reykjavík var eitt verkefnanna á listanum að gera menningarstyrki markvissari, auka áherslu á stuðning við grasrótarstarf og bæta eftirfylgni með þeim verkefnum sem hljóta styrki. Á fyrsta fundi nýs Menningarráðs settum við því á laggirnar þverpólitískan rýnihóp til að fara yfir styrkjakerfið með það að markmiði að einfalda það, gera það gagnsærra og tengja það betur við menningarstefnu Reykjavíkur. Í hópnum sátu undirritaður og Þorvaldur Davíð Kristjánsson frá meirihluta og Arnar Ingi Ingason frá minnihluta. Afraksturinn eru uppfærðar reglur um úthlutun menningarstyrkja og gerð samstarfssamninga sem Menningarráð hefur samþykkt. Þrjár skýrar leiðir Ein helsta breytingin er að gera styrkjaflokkana skýrari og aðgengilegri fyrir listafólk og aðra sem vilja sækja um stuðning til menningarverkefna. Grasrótastyrkir verða sérstaklega ætlaðir yngri listamönnum og nýliðum í listum og verða að jafnaði á bilinu 200–800 þúsund krónur. Verkefnastyrkir verða á bilinu 800 þúsund til 3 milljónir króna og samstarfssamningar 1,5–6,5 milljónir króna. Með þessu viljum við opna dyrnar enn frekar fyrir nýju fólki, nýjum verkefnum og nýjum hugmyndum í menningarlífi borgarinnar. Jafnframt verður fyrirkomulag vegna smærri styrkja einfaldara. Fyrir grasrótastyrki og verkefnastyrki að fjárhæð 1,5 milljónir króna eða lægri verður gefið út styrktarbréf en formlegur samningur gerður vegna hærri verkefnastyrkja og samstarfssamninga. Markmiðið er að hafa stjórnsýsluna í réttu hlutfalli við umfang styrksins og gera ferlið aðgengilegra, sérstaklega fyrir ungt listafólk sem er að stíga sín fyrstu skref. Við viljum líka skerpa á því til hvers styrkirnir eru. Menningarstyrkir Reykjavíkurborgar eiga að styðja öflugt, faglegt og fjölbreytt menningarlíf. Við leggjum sérstaka áherslu á að borgarbúar hafi aðgang að listum og menningu, að Reykjavík sé borg þar sem listafólki þykir gott að búa og starfa og að menningarstarf nái út í öll hverfi borgarinnar. Faglegt mat og pólitísk ábyrgð Þegar við ráðstöfum skattfé Reykvíkinga eigum við að geta svarað því hvaða ávinningur verður af því fyrir borgina, menningarlífið og borgarbúa. Faghópur mun áfram meta umsóknir sjálfstætt á faglegum forsendum. Þar verður meðal annars horft til listrænna og menningarlegra gæða, ávinnings fyrir menningarlíf borgarinnar og borgarbúa, aðgengis, inngildingar, fjölbreytni, mannréttinda og jafnréttis, auk raunhæfni verkefna og framkvæmdagetu umsækjenda. Fjórir fulltrúar faghópsins verða tilnefndir af Bandalagi íslenskra listamanna og einn af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Menningarráð skipar formann úr hópi þeirra. Faghópurinn metur umsóknir á faglegum forsendum og skilar rökstuddum tillögum til Menningarráðs. Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á ráðstöfun opinbers fjár og Menningarráð tekur því að lokum formlega ákvörðun um úthlutun. Fagfólkið metur umsóknirnar á faglegum forsendum. Kjörnir fulltrúar marka stefnuna og bera ábyrgð á ráðstöfun fjármunanna. Meiri eftirfylgni, minni skriffinnska Við viljum líka vita betur hvað verður um styrkina eftir að þeir hafa verið veittir. Nýju reglurnar skerpa á skilum og eftirfylgni. Þau sem fá styrki skulu skila stöðu- og lokaskýrslum eftir því sem kveðið er á um í styrktarbréfi eða samningi og verulegar breytingar á verkefnum þurfa samþykki. En stjórnsýslan þarf líka að vera í eðlilegu samhengi við umfang styrksins. Það væri fráleitt að gera sömu kröfur til ungs listamanns sem fær 300 þúsund króna grasrótarstyrk og rótgróins lögaðila sem fær milljónir á ári í eitt til þrjú ár. Kerfið þarf að vera ábyrgt án þess að verða kæfandi. Fleiri krónur í listina sjálfa Reglubreytingarnar eru aðeins eitt af þeim skrefum sem við viljum stíga til að efla menningarlíf Reykjavíkur. Eftirspurn eftir menningarstyrkjum borgarinnar er miklu meiri en það fjármagn sem er til skiptanna. Það þýðir að á hverju ári sitja fjölmörg góð verkefni eftir. Þess vegna er það stefna okkar að efla styrkjapottinn fyrir úthlutun ársins 2027 eftir því sem fjárheimildir borgarinnar leyfa. Sú ákvörðun er tekin við gerð fjárhagsáætlunar og er aðskilin frá þessum reglubreytingum. Við ætlum ekki að lofa peningum sem ekki eru til. Reykjavíkurborg stendur í hagræðingu og menningarmálin eru hluti af þeirri ábyrgð. Innan þess svigrúms sem við höfum viljum við hins vegar forgangsraða þannig að meira af fjármununum skili sér beint til þeirra sem skapa menninguna. Spurningin á alltaf að vera: Hversu stór hluti hverrar krónu endar hjá listafólkinu og í raunverulegu menningarstarfi fyrir borgarbúa? Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr borgarsjóði fyrir árið 2027 og umsóknarfrestur er til 30. september. Umsóknir eru rafrænar í gegnum Mínar síður Reykjavíkurborgar. Ég hvet listafólk til að sækja um, hvort sem það hefur áratuga reynslu að baki eða er ungt og upprennandi og að stíga sín fyrstu skref. Í Reykjavík blómstrar menningarlífið nú þegar. Við viljum halda áfram og stefna enn hærra. Reykjavík á að vera menningarborg á heimsmælikvarða. Höfundur er formaður Menningarráðs Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Freyr Gíslason Menning Reykjavík Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun