Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar 30. október 2026 07:47 Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, hefur lagt til að ríkið setji 20% hlut í Landsvirkjun á markað. Meðal raka hans er að fjölga fjárfestingarkostum, efla íslenska hlutabréfamarkaðinn og laða að erlenda fjárfesta.[1] Landsvirkjun er eitt verðmætasta fyrirtæki þjóðarinnar. Þess vegna er eðlilegt að spyrja ekki aðeins hvort hugmyndin sé góð heldur líka um árangur þess sem gefur okkur þetta viðskiptaráð. Ólafur hefur langan feril á íslenskum fjármálamarkaði. Hann var framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs frá stofnun hans árið 2007 og hefur verið framkvæmdastjóri Birtu frá stofnun sjóðsins árið 2016.[2] Það væri ósanngjarnt að halda því fram að hann hafi einn tekið allar fjárfestingarákvarðanir Birtu. Þar koma fleiri að málum. En framkvæmdastjóri Birtu stjórnar daglegum rekstri sjóðsins samkvæmt lögum, reglum og fyrirmælum stjórnar.[3] Vandinn er ekki bara að fjárfestingar fari illa Allir fjárfestar gera mistök. Það sem vekur meiri athygli hjá Birtu er að sjóðurinn hefur í sumum tilvikum aukið stöðu sína eftir að fjárfestingin hafði þegar þróast mjög illa. Play er skýrasta dæmið. Í árslok 2023 var kostnaðarverð hlutabréfa Birtu í Play um 1,27 milljarðar króna, eignarhluturinn 9,4% og langtímaraunávöxtun fjárfestingarinnar –31,8% á ári.[4] Árið 2024 hækkaði eignarhlutur Birtu í 10,4% og kostnaðarverðið í um 1,71 milljarð króna. Við árslok var markaðsvirðið aðeins um 196 milljónir króna og langtímaraunávöxtunin komin í –76,4%.[5] Síðan fór Play í þrot. Birta staðfesti sjálf að uppsafnað kostnaðarverð hlutafjárfjárfestingarinnar hefði verið rúmlega 1,7 milljarðar króna og að eftirstandandi eign yrði að fullu töpuð við gjaldþrotið.[6] Það er eitt að fjárfesta í fyrirtæki sem síðar fer illa. Það er annað að sjá fjárfestingu með –31,8% langtímaraunávöxtun og auka síðan bæði eignarhlut og kostnaðarverð. Svipaðar spurningar vakna vegna annarra fjárfestinga Birtu. Í árslok 2024 var langtímaraunávöxtun Iceland Seafood –17,1% og Icelandair –14,2%.[5] Meiri áhætta – en fyrir hvað? Meðalhrein raunávöxtun samtryggingardeildar Birtu síðustu fimm ár, 2021–2025, var 1,74% á ári.[7] Berum það saman við ríkisskuldabréfaeign Birtu sjálfrar. Raunávöxtun hennar var 2,2% árið 2021, –3,5% árið 2022, 2,1% árið 2023, 3,3% árið 2024 og 6,2% árið 2025. Samsett yfir tímabilið jafngildir það um 2,01% raunávöxtun á ári.[8–12] Munurinn yfir öll fimm árin er ekki stór. En niðurstaðan er samt athyglisverð: einfaldari og áhættuminni eignaflokkur skilaði aðeins betur en heildarsafn sjóðsins. Frá 2022 verður munurinn mun skýrari. Ríkisskuldabréfin skiluðu samkvæmt sömu tölum um 1,96% raunávöxtun á ári 2022–2025, en samtryggingardeild Birtu um –0,24% á ári á sama tímabili. Birta tók því meiri áhættu án þess að fá samsvarandi ávöxtun fyrir hana. Og þá er Landsvirkjun Landsvirkjun hefur á sama tíma styrkt fjárhag sinn. Arðsemi eigin fjár var 6,4% árið 2021, 7,3% árið 2022, 9,1% árið 2023 og 6,8% árið 2024. Nettóskuldir lækkuðu úr um 1,09 milljörðum Bandaríkjadala í árslok 2021 í um 667 milljónir í árslok 2024 og eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 59,1% í 66,2%.[13] Fyrir rekstrarárin 2021–2024 námu samþykktar arðgreiðslur Landsvirkjunar til íslenska ríkisins samtals um 703 milljónum Bandaríkjadala.[14] Árið 2025 var kjarnarekstrarhagnaður enn um 287 milljónir dala, eiginfjárhlutfall 64,5% og lagt til að greiddar yrðu 165 milljónir dala í arð.[15] Þetta er ekki nákvæmlega sami mælikvarði og raunávöxtun lífeyrissjóðs. Landsvirkjun er rekstrarfyrirtæki en Birta fjárfestir. Ólafur hefur keypt margar gæsir sem hafa verpt fúleggjum. Nú vill hann fá að kaupa gæsina sem verpir gulleggjum. Eigum við að taka viðskiptaráðum frá Ólafi? Höfundur er framleiðslutæknifræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar