Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar 30. október 2026 11:02 Pakistanski trúarleiðtoginn Muhammad Taqi Usmani, flutti á dögunum fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg. Sá maður hefur varið dauðarefsingu gagnvart því fólki sem yfirgefur íslamska trú, það er þeirra sem voga sér að breyta sinni trúarafstöðu, nokkuð sem við teljum algerlega vera persónulegt mál. Sem sagt þá sem skipta um trúarskoðun, má drepa. Einnig talar hann fyrir refsingum svo sem aflimunum og grýtingum sem fullgildum refsingum, samkvæmt íslömskum rétti. Hann hefur einnig talað fyrir auknum refsingum fyrir kynferðislegu samneyti samkynhneigðra. Eins fagnaði hann valdatöku talíbana í Afganistan á sínum tíma. Við þekkjum afstöðu talíbana til kvenna. Þetta er sjúk afstaða. Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn land okkar! Þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar rótgrónu, vestrænu og íslensku gildi. Ég trúi að við Íslendingar reynum að aðhyllast víðsýni, mannréttindi og umburðarlyndi. En þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar gildi. Ofstækisfullar sértrúarskoðanir eru einfaldlega eitur. Nokkuð sem okkur ber að forðast og fjarlægja úr okkar umhverfi. Sama hvort þær koma frá íslam, kristni eða gyðingdómi. Þær er nefnilega að finna í öllum helstu trúarbrögðunum. Þær eru að finna í gyðingdómi svo sem í dag hjá mönnum eins og Bezalel Smotrich og Itamar Ben Gvir í fráfarandi ríkisstjórn Ísrael en beinast í allt aðra átt. Megi þeir aldrei koma til okkar lands með sínar sjúku hugmyndir. Aðra mætti nefna hér. Í kristnum menningarheimi nútímans er að finna einhverja alvarlegustu glæpina. Í Rússlandi notar Pútín rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna og Kírill patríarka æðsta mann kirkjunnar til að blessa yfir og kyssa, öll þau viðbjóðslegu vopn, tæki og tól sem hann dælir yfir saklausa borgara Úkraínu til að drepa sem flesta og eyðileggja sem mest. Í Bandaríkjunum undir núverandi forseta er kristnum gildum gersamlega snúið á hvolf þar sem þau eru notuð til að réttlæta sjálfhverfar og forheimskulegar aðgerðir einstaklings sem kosta ómælda þjáningu og ótal mannslíf. Öfgafull hægri bókstafstrú einkum í suðurfylkjum Bandaríkjana er kominn óralangt frá upphaflegum boðskap Jesú Krists. Þrjár stóru eingyðistrúarhefðirnar gyðingdómur, kristni og islam eiga mun meira sameiginlegt en það sem greinir á milli. Í kjarnaboðskap þeirra allra er að finna samhygð, náungakærleika og umburðarlyndi. En ofstækið og blind bókstafstrú er sem eitur, mikill skaðvaldur innan allra trúarhefðanna og hafa komið óorði á allar trúarhefðirnar og valdið þjáningu og tjóni um allan heim. Jú, við eigum að hafa þroska og þor til að útiloka skaðræðis ofstækismenn eins og Muhammad Taqi Usmani. Eins eigum við að kanna þann fjárhagslega bakgrunn þeirra sem bjóða manni sem þessum til landsins. Hverjir hafa fjármagnað það trúfélag eða þann grunn sem stendur að baki þessum fáránleika? Berjumst gegn þeim öflum sem þennan sjúklega málstað styðja. Burt með bölvað ofstækið. Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar