

Besta deild karla
Leikirnir

Segja Aron Jóhannsson vera á leið til Vals
Svo virðist sem framherjinn Aron Jóhannsson muni leika með Val í efstu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.

Íslenski boltinn sýndur um allan heim
Leikir í úrvalsdeild karla í fótbolta hér á landi verða sýndir í streymisveitum um allan heim frá og með næstu leiktíð. „Það eru gríðarlega spennandi tímar framundan í íslenskum fótbolta í þessum efnum,“ segir Orri Hlöðversson, formaður Íslensks toppfótbolta.

Sigurður Ragnar verður eini þjálfari Keflavíkur
Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður einn þjálfari karlaliðs Keflavíkur í fótbolta eftir að hafa starfað við hlið Eysteins Húna Haukssonar undanfarin tvö ár.

Fór upp að Pálma og spurði hvort hann ætlaði að skjóta í sama horn og alltaf fyrir vítið mikilvæga
Ingvar Jónsson varði vítaspyrnu Pálma Rafns Pálmasonar í 2-1 sigri Víkinga á KR í Frostaskjólinu í leik sem fór langleiðina með að tryggja Víking sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 30 ár.

Utan vallar: Enginn hlær lengur að Arnari Gunnlaugssyni
Fyrir þremur árum virtist Arnar Gunnlaugsson ekki í miklum tengslum við raunveruleikann þegar hann ræddi um sína fótboltaheimspeki, þá nýtekinn við Víkingi. En núna er hann heitasti þjálfari landsins.

Rúnar blæs á tal um miðlungsframherja: Bæta sig við að fara í betra lið
„Við erum að stækka hópinn og á sama tíma erum við að yngja upp og horfa til framtíðar,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs KR í fótbolta. Félagið hefur fengið þrjá nýja leikmenn eftir síðasta tímabil.

KR fékk tvo sóknarmenn
KR-ingar kynntu á blaðamannafundi í dag til leiks tvo nýja framherja sem verða með liðinu á næstu fótboltaleiktíð.

Aðstoðar Heimi áfram á Hlíðarenda
Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins og hann er nær alltaf kallaður, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Val. Hann verður því áfram aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar á Hlíðarenda.

Áfram í Fram
Alex Freyr Elísson hefur skrifað undir nýjan samning við Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Samningur hans gildir til ársins 2023.

Víkingar ekki bara tvöfaldir meistarar því þeir unnu í raun sexfalt í sumar
Víkingur bættu um helgina bikarmeistaratitlinum við Íslandsmeistaratitilinn sinn frá því fyrir tveimur vikum og urðu þar með fyrstu tvöföldu meistarar karlafótboltans í heilan áratug.

Birnir til Íslandsmeistaranna
Íslandsmeistarar Víkings hafa keypt kantmanninn Birni Snæ Ingason frá HK.

Ágúst tekur við Stjörnunni
Ágúst Gylfason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Birnir Snær að ganga í raðir Íslandsmeistaranna
Birnir Snær Ingason, sóknarmaður HK, er að ganga í raðir Íslandsmeistara Víkings frá Kópavogsliðinu.

Segir að Stjarnan fái ekki Heimi
Heimir Hallgrímsson verður ekki næsti þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Þetta segir Hjörvar Hafliðason, þáttastjórnandi Dr. Football.

Heimir um mál Hannesar: Það verður ekki leyst í fjölmiðlum
Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, segist vera steinhissa á framkomu Valsmanna gagnvart sér. Hannes segir að þjálfari liðsins vilji ekki hafa hann lengur og að forsvarsmenn félagsins tali ekki við sig.

Heimir mögulega að taka við Stjörnunni
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, segist hafa átt í viðræðum við fjölmörg félög en vildi ekki tjá sig um orðróminn þess efnis að hann gæti verið að taka við Stjörnunni.

Hannes: „Heimir vill ekki hafa mig hjá félaginu“
Hannes Þór Halldórsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, segir að Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, vilji ekki hafa hann lengur hjá félaginu.

Ferðuðust til tunglsins til að spila leiki íslenska fótboltasumarsins
Á meðan að KA-menn þurftu að ferðast samtals um 8.500 kílómetra til að spila leiki sína í efstu deild karla í fótbolta í sumar þurftu Íslandsmeistarar Víkings aðeins að ferðast 1.000 kílómetra. Liðin á Austfjörðum þurftu þó að ferðast lengst allra þetta fótboltasumar.

Þungavigtin: HK neitaði tilboði frá KR upp á fjórar og hálfa milljón í Valgeir
„KR-ingar eru með opið heftið núna og buðu fjórar og hálfa í Valgeir Valgeirsson,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson í nýjasta þætti Þungavigtarinnar. Valgeir er leikmaður HK sem féll úr Pepsi Max deild karla í sumar.

Fór yfir það þegar Albert þóttist vera Willum er hann lék sér í FIFA
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson lék sér í tölvuleiknum FIFA eins og margur er hann var yngri. Það sem Albert gerði sem aðrir gerðu ef til vill ekki var að þykjast vera knattspyrnuþjálfarinn – og alþingismaðurinn - Willum Þór Þórsson og skamma leikmenn fyrir slakan fyrri hálfleik.

KR fær markvörð Fylkis
Markvörðurinn Aron Snær Friðriksson er genginn í raðir KR frá Fylki. Hann skrifaði undir samning við Vesturbæjarfélagið sem gildir til næstu tveggja ára.

Kristall Máni kom heim til að fá að spila framar á vellinum: „Ég á heima fremstur“
Kristall Máni Ingason var kosinn efnilegasti leikmaður Pepsi Max deild karla í sumar og hélt upp á það með því að skora þrennu í undanúrslitaleik bikarkeppninnar á dögunum.

Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik
Jóhannesi Karli Guðjónssyni tókst að bjarga Skagamönnum frá falli úr Pepsi Max deild karla og koma liðinu í bikarúrslitaleik í fyrsta sinn í átján ár. Það er stutt í bikarúrslitaleikinn en Þungavigtin segir að þjálfari ÍA sé ekki á landinu þótt að það sé stutt í leikinn.

Ræddi við Óskar og Rúnar en valið auðvelt þegar Ólafur samdi við FH
Knattspyrnumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson ræddi við þjálfara Breiðabliks og KR áður en hann ákvað að ganga til liðs við FH. Hann segir allt til staðar í Kaplakrika til að FH-ingar nái vopnum sínum á nýjum leik.

„Við verðum að taka til og hagræða“
„Við vorum með stóran hóp og mikla umgjörð, og við verðum að taka til og hagræða,“ segir Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals. Ljóst er að karlalið Vals kveður að minnsta kosti fimm leikmenn eftir vonbrigðatímabil og mikil óvissa ríkir um markvörðinn Hannes Þór Halldórsson.

Þorvaldur hættir að þjálfa Stjörnuna en verður rekstrarstjóri hjá félaginu
Þorvaldur Örlygsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann verður þó áfram hjá félaginu því hann hefur verið ráðinn rekstrarstjóri knattspyrnudeildar þess.

Þungavigtin um mál Hannesar Þórs: „Veit að leikmenn Vals eru mjög ósáttir við þessa meðferð“
„Mál málanna á þessum markaði í dag, þessum leikmannamarkaði, er náttúrulega besti markmaður fyrr og síðar – Hannes Þór Halldórsson – er í stríði við Valsmenn,“ segir Mikael Nikulásson í nýjasta þætti Þungavigtarinnar.

Hermann ráðinn þjálfari uppeldisfélagsins
Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem mun leika í Pepsi Max deild karla í fótbolta næsta sumarið. Hann skrifar undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið.

Kristinn Freyr gengur til liðs við FH
Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn í raðir FH frá Valsmönnum þar sem hann mun hitta fyrir sinn gamla þjálfara, Ólaf Jóhannesson.

Guy Smit semur við Val
Hollenski markvörðurinn Guy Smit er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Val, en hann lék með Leikni seinustu tvö tímabil.